Ég settist undir stýri á nýjum Leapmotor C10 með galopnum huga, sérstaklega eftir að ég ók litla bróður hans, B10. Kínverskir rafbílum fer ört fjölgandi í umferðinni hér á landi og ekkert sem bendir til annars en þeir standi sig jafnvel og aðrir bílar sem eiga uppruna að rekja í Evrópu.
Við hljótum þó að skoða þessa bíla með gagnrýnum hætti með tilliti til aksturseiginleika, tækni og upplifunar. C10 er greinilega hugsaður til stórra verka í flokki meðalstórra rafjepplinga. Spurning hvort hann standist væntingar þegar ár reynir?

Kínverskir rafbílum fer ört fjölgandi í umferðinni hér á landi og ekkert sem bendir til annars en þeir standi sig jafnvel og aðrir bílar sem eiga uppruna að rekja í Evrópu.
Hönnun og útlit
Leapmotor C10 er ekki bíll sem reynir að stela senunni með öfgafullu útliti. Hann er 4.739 mm á lengd, stendur breiður og traustur á veginum og einkennist af hreinum línum og fáguðu yfirbragði. Framendinn er einfaldur, ljósin mjó og LED-línur gefa honum nútímalegt útlit án þess að verða ágengar. Bíllinn er virkilega huggulegur að öllu leyti.

Flottur að aftan. Heil ljósalína og lag afturendans minnir óneitanlega á Porsche.
Á 20 tommu felgunum í Design-útgáfu nær bíllinn sérstaklega góðum hlutföllum og heildarmyndin er yfirveguð og tímalaus. Sumum gæti fundist hann skorta karakter, en mér finnst það fremur kostur – þetta er bíll sem eldist líklega vel og reynir ekki of mikið.
Rafhlaða og mótor
Leapmotor C10 er í boði með mismunandi aflrásum sem höfða til ólíkra kaupenda.
Rafhlaðan í Design útgáfunni er 81.9 kWh og drægnin uppgefin um 437 km. Á Life útgáfunni er rafhlaðan um 70 kWh og gefur um 424 km drægni. Hægt er að hlaða allt að 180 kWh inn á bílinn í hraðhleðslu en 11 kWh í heimahleðslu. Það er aðeins um 22 mínútna hleðslutími á Desgin bílnum eins og við erum með í reynsluakstri.

20 tommu felgur eru á Design AWD útgáfunni.
AWD-útgáfan með allt að 598 hestöflum er gríðarlega kröftug – jafnvel meira afl en flestir þurfa í fjölskyldubíl. Hröðunin er mögnuð og framúrakstur leikur einn, hvort sem er í borgarakstri eða á þjóðvegi.
Afturhjóladrifna útgáfan með 218 hestöflum er hins vegar líklegri til að höfða til skynsamari kaupenda. Hún er nægilega kraftmikil, lipur í akstri og líklega hagkvæmari kostur til lengri tíma litið.

Innanrýmið er hlýlegt, rúmgott og laust við allt pjátur. Virkilega nútímaleg hönnun.

Gott geymsluhólf milli framsæta og rúmgott geymslupláss undir miðjustokknum. Þar eru líka tengimöguleikar fyrir smáraftæki.
Í boði er einnig REEV-útgáfa með bensínrafal sem skilar allt að 970 km samanlagðri drægni – áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja sameina rafakstur og drægni án hleðslukvíða.
Efnisval og rými
Innanrýmið í C10 kemur skemmtilega á óvart. Hér ríkir skjádrifin rafbílastemning með fáum hefðbundnum tökkum. Fyrir framan ökumann er 10,25 tommu stafrænt mælaborð og í miðjunni 14,6 tommu snertiskjár sem stjórnar flestum kerfum bílsins.
Það góða við takkaleysið er að mögulegt er að forrita stýrishnappa fyrir það sem þú notar mest eins og akstursstillingar. Einnig fannst okkur frekar erfitt að opna bílinn nema þá nota báðar hendur á innfelldu hurðarhúnana. Sannarlega ekki eini bílinn sem býður upp á þessa hönnun.
Sætin eru úr efni sem kallað er Silicon leður sem er að sjálfsögðu gervileður en það er í flestum nýjum rafbílum í dag.

Takkar í stýri eru forritanlegir og enn eru armar fyrir gírinn og stefnuljós.
Efnisval er gott og það á við um allar gerðir Leapmotor. Sætin eru þægileg og bjóða upp á bæði hita og kælingu í framsætum. Panorama glerþakið gerir innanrýmið bjart og opið, og hljóðkerfið með 12 hátölurum skilar fínni upplifun – þó það nái ekki alveg toppnum í þessum flokki.

Sætin eru mjög þægileg. Um leið og þau eru mjúk halda þau vel um ökumann og framsætisfarþega.
Rýmið er eitt af sterkustu atriðum C10. Gott hjólabil, skilar sér í mjög góðu fótarými bæði fram í og aftur í. Ég sat þægilega fyrir aftan bílstjórasætið sem var stillt fyrir mig áður, sem er alltaf gott próf. Farangursrýmið er um 435 lítrar og lítið frunk er til staðar fyrir hleðslukapla. Þetta er greinilega bíll hannaður með fjölskyldur í huga.

Algjörlega fimm manna bíll, slétt gólf og fínt fótarými.
Upplifun og verð
Í akstri kemur C10 helst á óvart hversu afslappaður hann er. Fjöðrunin er mjúk, bíllinn gleypir holur og hraðahindranir vel og hljóðeinangrun er ágæt, jafnvel á grófara slitlagi. Stýringin er létt og ekki sérlega sportleg, sem passar vel við karakter bílsins – þetta er bíll fyrir yfirvegaðan og þægilegan daglegan akstur, ekki krókóttar spyrnubrautir.








Verðlagningin er eitt helsta tromp Leapmotor C10:
- Life Pro frá um 4.990.000 kr. með rafbílastyrk
- Design AWD um 5.990.000 kr.
- REEV-útgáfa um 6.590.000 kr.
Fyrir þetta verð fær maður ríkulegan búnað, mikið rými og öfluga aflrás. Samkeppnisaðilar bjóða oft minna eða kosta meira. En vörumerkið er nýtt og það er oft ákveðinn þröskuldur fyrir marga. Hins vegar er þessi bíll vel ættaður þar sem Stellantis samsteypan á um 20% í Leapmotor og það eru góð meðmæli.
Lepmotor C10 fylgir app þar sem þú getur stýrt meðal annars eftirfarandi:
-Bíllinn opnast eða lokast …með því að nálgast / fjarlægjast bílinn eða með sensorum á hurðarhandföngum.
-Opna afturhlera
-Opna/loka rúðum
-Gefið öðrum aðgang að bílnum
-Séð hleðslu á rafhlöðu
-Fylgjast með og séð eyðslu- og orkunotkun
Stillt hitastigið í bílnum – forhitað bílinn
Sérð hvar bílinn er staðsettur


Aðrir sambærilegir
Í þessum flokki má nefna keppinauta á borð við Tesla Model Y, Skoda Enyaq, Volkswagen ID.4 og fleiri meðalstóra rafjeppa. Leapmotor C10 stendur vel gagnvart þeim hvað varðar verð, afl og rými, þó vörumerkið sjálft sé enn að byggja upp traust á markaðnum.
Niðurstaða
Leapmotor C10 er skynsamlegur og vel heppnaður rafjeppi sem gerir margt rétt. Hann er rúmgóður, þægilegur, vel búinn og býður upp á mikið afl og tækni fyrir verðið.

Hann er ekki fullkominn – hugbúnaðurinn mætti vera einfaldari í notkun og persónuleiki bílsins er hógvær – en sem „heildarpakki” stendur hann sig mjög vel.
Ef þú ert tilbúinn að stíga aðeins út fyrir hefðbundin vörumerki færðu hér afar mikið fyrir peninginn. Leapmotor C10 er ekki bara „ódýr kostur“– hann er raunverulegur keppinautur í sínum flokki.
Myndband
Helstu tölur:
Verð: 5.490.000 kr. – 6.590.000 kr.
Hestöfl: 598 á reynsluakstursbíl
Drægni: 437 km. skv. WLTP.
Rafhlöðustærð: 81,9kWh.
Eigin þyngd: 2.189 kg.
Heimahleðslugeta (AC): 11 kW.
Hraðhleðslugeta (DC): 180 kW.
Dráttargeta: 1500 kg.







