Leapmotor og ÍSBAND umboðsaðili Leapmotor á Íslandi, tilkynna með stolti að nýi B10, sem frumsýndur var á Íslandi um síðustu helgi, hafi hlotið hina virtu 5 stjörnu öryggiseinkunn frá Euro NCAP. Þessi árangur er mikilvægt skref í útbreiðslu Leapmotor í Evrópu og sýnir fram á að fyrirtækið uppfyllir – og fer jafnvel fram úr – ströngum evrópskum öryggisstöðlum.
Nýi Leapmotor B10 sameinar háþróaða rafbílatækni og öryggi í heimsklassa og styrkir þannig skuldbindingu Leapmotor gagnvart viðskiptavinum í Evrópu.
Þessi viðurkenning er stór áfangi fyrir Leapmotor og undirstrikar að fyrirtækið ætlar sér að bjóða upp á öryggi í hæsta gæðaflokki samhliða hagkvæmri nýsköpun á sviði rafknúinns hreyfanleika.

Öryggi fullorðinna farþega
Leapmotor B10 fékk 93% í öryggi fullorðinna farþega og 37,3 af 40 stigum, þökk sé framúrskarandi árekstrarvörnum að framan og hámarksstigum í hliðarprófum.
B10 sýndi fram á framúrskarandi burðarvirki og öryggi farþega í prófunum Euro NCAP. Farþegarýmið hélst stöðugt í framenda- og hliðarrárekstrum og veitti framúrskarandi vernd fyrir hné og lærleggi beggja framsæta.
Sambærileg vernd er tryggð fyrir farþega af mismunandi stærðum og í mismunandi sætisstöðum.
Í prófunum með stífri hindrun yfir alla breiddina var vernd ökumanns mjög góð og ásættanleg fyrir aftursæti. Í hliðar- og stoðprófum fékk bíllinn fullt hús stiga sem staðfestir sterka hliðarvörn.
Öryggi barna
B10 stóð sig frábærlega hvað varðar öryggi barna og fékk fullt hús stiga fyrir árekstra að framan og hliðarárekstra. B10 fékk 93% í öryggi barna og 46,0 af 49 stigum, meðal annars fyrir frábæran árangur í árekstrarprófum með brúðum sem líkja eftir 6 og 10 ára börnum, auk ISOFIX/i-Size kerfis og búnað til að greina hvort barn sé enn í bílnum.
Loftbelgur í farþegasæti að framan er óvirkur þegar bakvísandi barnastóll er notaður, með skýrum upplýsingum fyrir ökumann. Öll viðurkennd barnabílstólakerfi er hægt að festa og koma fyrir á réttan hátt.
Öryggi viðkvæmra vegfarenda
B10 fékk hér 84%, studdur af háþróuðu neyðarhemlunarkerfi (AEB) sem bregst við gangandi vegfarendum, hjólreiðamönnum og mótorhjólum — þar á meðal „dooring“ vernd fyrir hjólreiðafólk.
Aðstoðarkerfi ökumanns
Aðstoðarkerfi fengu 85%, eða 15,4 af 18 stigum, fyrir búnað eins og:
- Hraðatakmörkunarkerfi
- Akreinastuðningskerfi
- Neyðarakreinaastoð
- Ökumannseftirlit sem greinir þreytu og truflun
Neyðarhemlunarkerfi bílsins sýndi góða frammistöðu í prófunum sem mældu viðbrögð þess við öðrum ökutækjum.
Bíllinn er með beinu eftirlitskerfi með ökumanni sem staðalbúnað, sem greinir þreytu og ákveðnar tegundir truflana. Akreinastuðningskerfið leiðréttir mjúklega stefnu bílsins ef hann er að fara úr akrein og grípur einnig inn í í alvarlegri aðstæðum.
Þessi árangur er meira en einkunn; þetta er yfirlýsing um að B10 uppfylli loforð okkar um öruggar, sjálfbærar og snjallar lausnir fyrir evrópska viðskiptavini.
Fréttatilkynning frá Ísband.




