- Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13
Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins GT-Line útfærslu á hinum margverðlaunaða Kia EV3.
Viðtökur EV3 á Íslandi hafa verið vægast frábærar en EV3 er annar mest seldi fólksbíllinn í almenna notkun á Íslandi það sem af er ári.
Þar að auki hefur EV3 sópað að sér verðlaunum á heimsvísu og var t.a.m. valinn bíll ársins 2025 hjá World Car Awards og vann hönnunarverðlaun Red Dot, ein þau stærstu í heiminum, fyrir bestu hönnun.

EV3 kemur með tækni úr EV9 og er því hlaðinn tækni sem finnst vanalega í stærri rafjeppum. EV3 setur þannig nýja gæðastaðla í flokki borgarjepplinga.
Það sem GT-Line útfærslan hefur umfram þegar vel búinn EV3 er:
- GT-Line útlitspakki, innrétting og álfelgur
- Upplýsingavörpun á framrúðu (Head-up display)
- Kæling í framsætum
- Minni í bílstjórasæti
- Mjóbaksstuðningur í farþegasæti
- Rafdrifið farþegasæti
- Relaxion framsæti
- Sóllúga
- Verð 8.490.777 kr. – Með rafbílastyrk 7.590.777 kr.
Fyrir utan GT-Line er hægt að velja um 4 aðrar útfærslur í vefsýningarsal Öskju; Air, Earth og Luxury:
- Kia EV3 Air Standard Range: 6.190.777 kr. – Með rafbílastyrk 5.290.777 kr.
- Kia EV3 Air: 6.890.777 kr. – Með rafbílastyrk 5.990.777 kr.
- Kia EV3 Earth: 7.190.777 kr. – Með rafbílastyrk 6.290.777 kr.
- Kia EV3 Luxury: 7.790.777 kr. – Með rafbílastyrk 6.890.777 kr.

Ekki missa af frumsýningu á glæsilegri GT-Line útfærslu Kia EV3 í sýningarsal Kia.
Fréttatilkynning frá Kia á Íslandi.
Umræður um þessa grein