BM Vallá hefur fest kaup á fimm nýjum rafknúnum Mercedes-Benz eActros 600 vörubílum af Landfara, umboðsaðila Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi.
Kaupin eru liður í áframhaldandi vegferð BM Vallár í átt að aukinni sjálfbærni og minni losun í rekstri. Með fjárfestingunni styrkir fyrirtækið innviði sína fyrir umhverfisvæna flutninga og dregur úr kolefnisspori starfseminnar. Rafvæðing flutninga verður stór þáttur í umhverfisstefnu BM Vallár, þar sem lögð er áhersla á að draga úr losun og nýta nýjustu tækni til að bæta rekstur og umhverfisárangur. Nýju bílarnir munu gegna mikilvægu hlutverki í daglegum flutningum fyrirtækisins.

Mercedes-Benz eActros 600 er hannaður með flutninga í huga og býður upp á allt að um 500 km drægni á einni hleðslu.
Mercedes-Benz eActros 600 er hannaður með flutninga í huga og býður upp á allt að um 500 km drægni á einni hleðslu. Bíllinn nýtir nýjustu rafhlöðu- og orkustýringartækni, sem gerir hann vel til þess fallinn að mæta kröfum nútíma flutninga m.a. við krefjandi íslenskar aðstæður.
„Það er ánægjulegt að sjá íslensk fyrirtæki taka rafvæðingu flutninga föstum tökum. eActros 600 hefur vakið athygli fyrir góða drægni og áreiðanleika, og hefur þegar sýnt að hann hentar vel þeim aðstæðum sem hér eru,“ segir Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara.
Hjá BM Vallá hefur markvisst verið unnið að því að bæta umhverfisárangur starfseminnar, bæði í framleiðslu og flutningum. Innleiðing rafknúinna vörubíla er liður í þeirri stefnu.

Eiríkur Þór Eiríksson og Þorsteinn Víglundsson handsala kaupsamninginn.
„Við viljum vera í fararbroddi þegar kemur að ábyrgum og umhverfisvænum rekstri. Með þessum nýju rafknúnu bílum erum við að þróa flutningakerfið okkar í átt að minni losun og aukinni skilvirkni, í samræmi við okkar stefnu um sjálfbærni,“ segir Þorsteinn Víglundsson, stjórnarformaður BM Vallár, og forstjóri Hornsteins, móðurfélags fyrirtækisins.
Kaup BM Vallár endurspegla þá þróun sem nú á sér stað í íslensku atvinnulífi þar sem sífellt fleiri fyrirtæki horfa til rafknúinna lausna í flutningum sem raunhæfan og hagkvæman kost til framtíðar.




