Hyundai á Íslandi býður til rafbílasýningar í Kauptúni í Garðabæ laugardaginn 11. apríl frá kl. 12:00 til 16:00.

Á sýningunni verður sérstök áhersla lögð á fjölbreytt úrval rafbíla frá Hyundai og gefst gestum kostur á að kynna sér ólíkar stærðir og gerðir sem henta mismunandi þörfum. Undanfarin ár hefur Hyundai byggt upp öflugt framboð rafbíla, allt frá smærri borgarbílum upp í stærri fjölskyldubíla.
Meðal þeirra bíla sem verða til sýnis eru nýr og nettur INSTER og sjö manna IONIQ 9. INSTER var valinn Besti rafbíll í heimi 2025 á World Car Awards en IONIQ 9 hefur einnig hlotið ýmsar viðurkenningar, þar á meðal frá TopGear sem besti sjö sæta rafbíllinn.
Markmið sýningarinnar er að gefa gestum kost á að kynna sér fjölbreytt úrval rafbíla frá Hyundai, tæknilausnir þeirra og hvernig þær nýtast í daglegu lífi.

Mynd: James Einar Becker.




