Hönnunarhópur hefur tekið forystuna í rafbílaverkefni Ferrari

139
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Hönnunaraðilar sem hjálpuðu til við að gera Apple að gullnámu hafa verið ráðnir til að hjálpa Ferrari með rafmagnsbílaverkefni

Það kom fram í frétt frá Reuters þann 9. febrúar að Ferrari RACE.MI birti myndir af nýja rafknúna sportbílnum sínum og afhjúpaði nafn og innréttingarhönnun hins eftirsótta fyrsta bíls frá ítalska lúxusbílaframleiðandanum.

Nýi rafbíllinn sem kallast Luce, sem þýðir ljós á ítölsku, var kynntur með myndum af leðursætum, stýri, mælitækjum og stjórnborði. Útlit bílsins er þó haldið leyndu að öðru leyti fram í maí, nema þessi mynd af bílnum hér að ofan hefur þó sést á vefnum.

LoveFrom, skapandi hópur stofnaður af hönnuðunum Sir Jony Ive og Marc Newson í San Francisco, hefur unnið með Ferrari að hönnun Luce, að sögn bílaframleiðandans.

Tæknin sem liggur að baki nýju gerðinni var kynnt af Ferrari í október.

Bíllinn mun hafa sérhannað hljóðkerfi til að magna raunverulegan titring frá vélinni til að skapa greinilega rafknúið Ferrari-hljóð, frekar en að falsa vélarhljóð, sagði fyrirtækið þá, segir í frétt Reuters

Við fáum ekki allt í einu, segir í vef BilNorge. Ferrari sýnir okkur nokkur atriði nýja rafmagnsbílsins. Nú fáum við stýrið, mælaborðið og eitthvað af innréttingunni. Mynd: Ferrari

Vefur BilNorge greip boltann á lofti og fjallaði um þennan nýja „rafmagnaða“ Ferrari. Gefum þeim orðið:

Ferrari sýnir nú myndir af stjórnklefa væntanlegs rafmagnsbíls, sem hefur fengið nafnið Luce. „Luce“ þýðir „ljós“ á ítölsku.

Hönnunarhópurinn LoveFrom, með aðsetur í San Francisco, hefur aðstoðað sem ráðgjafar við þróun líkansins frá árinu 2021. Það hefur greinilega gengið vel hingað til.

Nú fáum við að sjá fyrstu niðurstöður vinnunnar. Ferrari gefur okkur ítarlega innsýn í innréttinguna og stjórnklefann.

Kynning bílsins hófst í október 2025.

Það er augljóst að Ferrari tekur sér það frelsi að leita sér aðstoðar og hugsa aðeins öðruvísi í þessu verkefni.

Rafbílar eru áhættusamt verkefni fyrir sérhæfða framleiðendur og kannski er það skynsamlegt að nýta sérþekkingu nokkurra af þekktustu iðnhönnuðum heims.

Í fyrsta skipti í framleiðslubíl hefur Ferrari búið til mælaborð sem situr beint á stýrisstönginni. Mælaborðið fylgir hreyfingum stýrisins, þannig að ökumaðurinn getur alltaf fylgst með mælunum. Það sameinar stafræna og hliðræna mæla í einni einingu. Mynd: Ferrari

Reynslubolti frá Apple

Ferrari hefur kosið að vinna ekki með neinum bara hverjum sem er. Bretinn Jony Ive, einn af stofnendum LoveFrom, starfaði hjá Apple frá 1992 til 2019. Þar bar hann ábyrgð á viðmótshönnun og notendaviðmóti.

Ive hefur leitt hönnunarvinnuna á iMac, iPod, iPhone, iPad og Apple Watch.

Verður að segja að vinnan hafi tekist vel þegar Apple er enn á meðal þriggja verðmætustu fyrirtækja í heimi.

Stofnandi Apple, Steve Jobs, er sagður hafa verið mjög hrifinn af Jony Ive.

Stýrið í Ferrari Luce sameinar arfleifð Ferrari og nýsköpun. Hönnunarteymið hefur valið einfaldaða þriggja arma lögun sem minnir á hið fræga Nardi stýri frá sjötta og sjöunda áratugnum. Mynd: Ferrari

Samkvæmt vefsíðu LoveForm á Ive rétt á meira en 14.300 hönnunar- og notagildis einkaleyfum, bæði í hugbúnaði og vélbúnaði.

Listinn yfir hrós heldur áfram með nokkrum heiðursdoktorsgráðum, virtum verðlaunum og það náði sennilega hámarki árið 2012 með heimsókn í Buckingham höll þar sem hann gekk til liðs við riddaraklúbbinn og gat sett Sir á fornafn sitt.

Árið 2019 stofnaði hann skapandi hópinn LoveFrom ásamt vini sínum og hönnuðinum Marc Newson.

Stjórnarformaðurinn John Elkann (sitjandi til vinstri), Benedetto Vigna forstjóri Ferrari, og Flavio Manzoni (með húfu), yfirmaður Ferrari Styling miðstöðvarinnar. Með þeim eru hönnuðir LoveFrom – Jony Ive (í miðjunni með gleraugu) og Marc Newson (lengst til hægri). Mynd: Ferrari

Stjórnborðið er hægt að halla að ökumanni eða farþega. Festingin neðst virkar sem úlnliðsstuðningur þegar skjárinn er notaður. Mynd: Ferrari

Gírstöngin er úr Corning Gorilla gleri. Hagnýt, sterk og glæsileg. Gorilla glerið er þróað til að veita trausta endingu, sem og betri rispuþol en venjulegt gler, og er notað á stjórnborðinu, mælaborðinu og á yfirborði miðstokksins. Mynd: Ferrari

Ræsihnappur í þakinu. Mynd: Ferrari

(fréttir á vef BilNorge og BILYONRYO)

Svipaðar greinar