Fyrstu bílar frægustu bílaframleiðenda heims
Frá upphafinu – farið yfir uppruna meira en 50 bílaframleiðenda
eftir Richard Dredge hjá Auotocar
Fyrsti hluti frá 1886 til 1919
Karl Benz smíðaði fyrsta bílinn árið 1885 og síðan þá hafa sprottið upp mörg þúsund fyrirtæki sem reyna að skapa sér nafn.
En fáir hafa lifað af og hér skoðum við hvernig sumir þeirra sem lifðu af (ásamt nokkrum sem gerðu það ekki). Stundum eru hlutirnir miklu flóknari en þú heldur, þar sem sum fyrirtæki gera tilkall til tveggja (eða jafnvel þriggja) fyrstu bíla…

Mercedes-Benz (1886)
Þetta er þar sem þetta byrjaði allt – fyrsta fyrirtækið til að smíða bíl. Karl Benz smíðaði sinn fyrsta bíl árið 1885 og hann fékk einkaleyfi á honum í janúar 1886, en Mercedes nafnið var ekki tekið upp fyrr en 1901. Fyrsti bíllinn (kallaður Patent Motorwagen, hér á myndinni) var með aðeins þrjú hjól og 0,75 hestöfl 954cc eins -strokks vél, en árið 1893 smíðaði Benz sinn fyrsta bíl á fjórum hjólum, Viktoria, knúinn 3 hestafla 1745cc vél.

Peugeot (1891)
Peugeot byrjaði árið 1842 að búa til salt- og piparkvörn áður en hann fór í reiðhjólaframleiðslu 40 árum síðar. Árið 1891 smíðaði Peugeot fyrsta bílinn sinn, fjórhjóla bíl með tvöfaldri V-vél sem var aftan á bílnum, sem knýr afturhjólin í gegnum keðju. Aðeins fimm bílar voru framleiddir á þessu fyrsta ári, en þeir voru orðnir 29 árið 1892. Árið 1900 var framleiðsla Peugeot allt að 500 bílar á einu ári.

Ford (1896)
Henry Ford smíðaði sinn fyrsta tilraunabíl árið 1896. Þekktur sem Ford Quadricycle (fjórhjól), og aðeins eitt eintak var smíðað. Árið 1899 hafði Ford stofnað Detroit Automobile Company sem árið 1901 var endurnefnt Henry Ford Company. Innan árs hafði Ford lent í baráttu við fjárhagslega bakhjarla sína og hann fór til að stofna nýtt fyrirtæki árið 1903 – Ford Motor Company.

Renault (1898)
Louis, Marcel og Fernand Renault stofnuðu Société Renault Freres árið 1899 og höfðu þegar smíðað frumgerð 1CV voiturette árið áður. Týpa A, sem komst á 32 km/klst, fékk árlega andlitslyftingu þar til hann fór úr framleiðslu árið 1903, en þá var hann búinn 5 hestafla vél í stað upprunalegu 1 hestafls vélarinnar.

Fiat (1899)
Fabbrica Italiana di Automobili Torino var stofnað árið 1899 og fyrsta verksmiðjan fyrirtækisins opnaði árið 1900; það ár voru aðeins 24 bílar framleiddir. Fyrsta gerð fyrirtækisins var 4HP sem upphaflega var búin 679cc „flat-twin“ vél; síðar fengu bílarnir 837cc vél. Fiat byrjaði með aðeins 35 starfsmenn; árið 1908 voru 2700 manns á launaskrá og gat framleitt 5000 bíla á hverju ári.

Opel (1899)
Adam Opel stofnaði fyrirtæki árið 1862 til að búa til saumavélar áður en hann fór yfir í reiðhjól árið 1886. Hann lést árið 1895 en ekkja hans og fimm synir héldu starfseminni áfram og kynntu sinn fyrsta bíl árið 1899. Vélin var 1545cc 3,5 hestöfl eins strokka vél og kaupendur gátu valið um tveggja eða fjögurra sæta útgáfu en bíllinn seldist ekki vel; aðeins fundust 11 kaupendur árið 1899 og 24 árið 1900. Opel varð hluti af General Motors árið 1931 sem seldi síðan fyrirtækið til PSA árið 2017 – og er núna hluti af Stellantis.

Buick (1899)
Elsti eftirlifandi bílaframleiðandi Bandaríkjanna, Buick var stofnaður árið 1899, sem er þegar hann framleiddi sinn fyrsta bíl – þó hann hafi ekki framleitt annan bíl fyrr en árið eftir, en sá þriðji kom árið 1903. Upphaflega nefndur „Buick Auto-Vim and Power Company“, fjöldaframleiðsla hófst ekki fyrr en 1904; ári síðar fékk fyrirtækið nafnið Buick Motor Company. Þessi fyrsti bíll var Model B (hér á myndinni) með 2605cc „flat-twin“ vél sem er gefin upp fyrir 16hö. Í lok ársins hafði Buick selt 37 bíla en árið 1908 var ársframleiðsla komin upp í 8800 bíla.

Oldsmobile (1901)
Ransom Eli Olds smíðaði röð tilraunabíla og frumgerðabíla seint á 19. öld, áður en hann setti fyrsta framleiðslubílinn sinn á markað árið 1901: Oldsmobile Curved-Dash Runabout sem svo hét, var með 1565cc eins strokks vél, tveggja gíra gírkassa og keðjudrif. Þrátt fyrir allt sem Ford gæti haft að segja um efnið var það Oldsmobile sem var fyrstur til að bjóða upp á fjöldaframleiddan bíl, en 425 Runabouts rúlluðu af framleiðslulínunum á fyrsta ári – tala sem fór upp í 2100 árið 1902.

Cadillac (1902)
Þegar Cadillac var stofnað árið 1902 af Henry Leland til að búa til bíla á viðráðanlegu verði fyrir fjöldann, var upphafsframboð hans Runabout, aftur á móti nefndur Model A, sem fékk andlitslyftingu árið 1904 og varð að Model B. Power (allt 10 hestöfl) kom frá 1609cc eins strokka vél sem er fest undir aftursætinu.

Ford (1903)
Fyrsta vara Ford Motor Company var Model A, sem fór í sölu í júlí 1903 og þegar framleiðslu lauk í október 1904 höfðu verið smíðuð glæsileg 670 eintök. Á myndinni er barnabarnabarn Henry Ford, Bill Ford Junior, með elsta eftirlifandi Model A í heimi, smíðaður árið 1903 – hann keypti bílinn fyrir 264.000 dollara árið 2012. Model A var með 1645cc „flat-twin“ vél sem var fest undir aftursætinu, tveggja- hraða gírkassi og keðjudrif.

Vauxhall (1903)
Vauxhall byrjaði að framleiða skipavélar árið 1857, þegar það hét Alex Wilson & Company; nafninu var skipt yfir í Vauxhall Iron Works árið 1897. Sex árum síðar var fyrsti bíllinn gerður; 5 hestafla eins strokka fjórhjól með stýrissveif og tveggja gíra gírkassa. Um 70 af þessum elstu farartækjum voru framleidd; Vauxhall á enn einn sem það kemur reglulega með í London-Brighton kappaksturinn í hverjum nóvember.

Rolls-Royce (1904)
Verkfræðingurinn Henry Royce smíðaði sinn fyrsta bíl árið 1904, aðeins mánuði áður en hann hitti fyrir tilviljun auðmanninn Charles Rolls. Sá síðarnefndi hafði séð til Royce og sagði við framleiðanda hans að hann myndi taka hvern bíl sem Royce gæti búið til svo framarlega sem nafn hans væri líka á honum. Í desember 1904 var fyrsti Rolls-Royce tilbúinn þó að Rolls-Royce Ltd yrði ekki stofnað fyrr en 1906.
Fyrsti bíllinn var búinn tveggja strokka 1809cc vél en í lok árs 1906 hafði Rolls-Royce þegar smíðað sinn fyrsta bíl með átta strokka vél.

Rover (1904)
Þegar Rover bjó til öryggisreiðhjólið sitt árið 1885 bjó það til nútíma sniðmátið fyrir hlaupahjól. Næst komu mótorhjól (árið 1902) en svo árið 1904 smíðaði Rover sinn fyrsta bíl, tveggja sæta Rover Eight. Í framleiðslu alveg fram til 1912 var Eight búinn 1327cc eins strokks vél sem var með þokkaleg 8 hestöfl við 900 snúninga á mínútu, en vélin náði mest að snúast við við öskrandi 1500 snúninga á mínútu.

Skoda (Laurin & Klement, 1905)
Skoda varð á endanum til upp úr fyrirtæki sem hét Laurin & Klement sem byrjaði á því að framleiða reiðhjól árið 1895, fór yfir í mótorhjólaframleiðslu árið 1899 og smíðaði síðan sinn fyrsta bíl árið 1905. Fyrsti bíllinn var Voiturette A (sést hér að ofan) sem var knúinn af 1005cc ( síðar 1100cc) V-twin vél sem var 7 hö. Aðeins 55 voru framleiddir áður en Voiturette B tók við árið 1906 með 9 hestafla 1399cc vél.

Lancia (1907)
Einn frumlegasti bílaframleiðandi sögunnar, en Lancia er rétt svo sýnilegur í dag. Fyrirtækið var stofnað til að smíða sport- og kappakstursbíla og Vincenzo Lancia stofnaði sitt eigið fyrirtæki í nóvember 1906. Fyrsti bíllinn hans var tilbúinn til reynslu í febrúar 1907 en áður en hann fór af verkstæðinu brann verksmiðjan og tók bílinn, teikningarnar og verkfæri Lancia einnig með. Sjö mánuðum síðar lét Lancia smíða nýjan bíl frá grunni; 100 eintök af gerð 51 voru gerð, hvert með 2544cc fjögurra strokka vél.

Audi (1910)
Fyrsta bílafyrirtæki August Horch (stofnað 1904) bar hans eigið nafn, en þegar hann lenti í deilum við stjórnarmenn stofnaði hann nýtt fyrirtæki árið 1910, sem hét Audi. Fyrsta gerð þess var gerð A, búin 2612cc fjögurra strokka vél. Aðeins 140 eintök voru smíðuð áður en gerð B kom árið 1911.

Alfa Romeo (1910)
„Anonima Lombarda Fabbrica Automobili“, sem var hleypt af stokkunum árið 1910, áttaði sig á því að það vantaði í raun og veru betra nafn; ALFA varð niðurstaðan. Eftir að Nicola Romeo tók við fyrirtækinu árið 1915 fékk það nafnið Alfa Romeo árið 1918 og fyrsti bíllinn var Torpedo 20-30. Hins vegar var fyrsti bíll ALFA 4,1 lítra 24HP, sem sést hér, sem var í framleiðslu til 1914.

Morgan (1910)
Harry (HFS) Morgan opnaði bílaverkstæði í Malvern til að selja og þjónusta bíla. Árið 1909 hafði hann smíðað sinn eigin bíl til einkanota; ári síðar setti hann þríhjólið sitt í framleiðslu. Fyrstu bílarnir voru einsæta bílar en þeir áttu aldrei eftir að verða mjög vinsælir á markaðnum, svo árið 1911 var þriggja hjólabíll Morgan fáanlegur með annað hvort tveimur sætum eða fjórum. Afl kom frá 961cc JAP V-twin vél.

Chevrolet (1913)
Þrátt fyrir að Louis Chevrolet hafi stofnað fyrirtæki sitt árið 1911 var fyrsti bíllinn hans ekki seldur fyrr en 1913. Chevrolet Type C (eða Classic Six) var kynntur á bílasýningunni í New York það ár og var nokkuð áhrifamikill með sex strokka vél og þriggja hraða gírkassa. En hann þótti dýr miðað við keppinauta, þess vegna kynnti Chevrolet fljótt fjögurra strokka gerð til að vera samkeppisfærari.

Dodge (1914)
John og Horace Dodge stofnuðu verslun árið 1901 til að framleiða reiðhjólaíhluti áður en þeir fóru yfir í bílaíhlutaframleiðslu árið 1903; mjög fljótt var nánast öll framleiðsla þeirra fyrir Ford. Þegar þeir sáu að Ford var að framleiða sífellt fleiri varahluti innanhúss ákváðu þeir að fara einir með eigin bíl sem kom árið 1914. Bíll Dodge var aðeins boðinn sem fimm sæta ferðabíll og var með 35 hestafla 3480cc fjögurra strokka vél og þriggja hraða gírkassi. Árið 1916 var Dodge fjórða mest selda bílategund Bandaríkjanna með yfir 70.000 framleidda á þessu eina ári.

Aston Martin (1915)
Fyrsti Aston Martin, sem hét Coal Scuttle, var smíðaður árið 1915. Í kjölfar Coal Scuttle og stríðsins mikla voru smíðaðir þrjár frumgerðir bílar til viðbótar þar á meðal einn sem heitir Bunny, en enginn þessara bíla er til í dag. Árið 1921 var Aston Martin tilbúið að byrja að selja bíla og fyrsta framleiðslugerð þess var með 1496cc fjögurra strokka vél. Aðeins 69 voru smíðaðir áður en fyrirtækið fór á hausinn – og ekki í síðasta sinn. Bíllinn á myndinni er elsti eftirlifandi Aston Martin, undirvagn númer 3, nú í eigu Aston Martin Heritage Trust.

Mitsubishi (1917)
Mitsubishi var stofnað sem skipafyrirtæki árið 1870 og smíðaði ekki sinn fyrsta bíl fyrr en árið 1917. Aðeins voru 22 eintök af þessum bíl smíðuð, hver knúinn af 2765cc fjögurra strokka vél. Mitsubishi Model A gat tekið sjö sæti og var byggður á Fiat Tipo 3 með 35 hestafla vél að framan sem send aflið til afturhjóla og gat komið bílnum nálagt 100 km/klst.

Bentley (1919)
Walter Owen (WO) Bentley og bróðir hans Horace seldu bíla fyrir fyrri heimsstyrjöldina, en árið 1919 settu þeir upp Bentley Motors til að búa til og selja sportbíla fyrir þá betur stæðu. Fyrsti bíll fyrirtækisins var tilbúinn til afhendingar árið 1921; árið 1930 hafði Bentley fimm sinnum unnið Le Mans 24 Hours. Fyrsta gerð Bentley var 3 lítra, 1622 þeirra voru framleidd á árunum 1921 til 1929, hver með 2996cc fjögurra strokka vél með fjórum ventlum á strokk.

Citroën (1919)
Alla fyrri heimsstyrjöldina var verksmiðjan hans André Citroen að útbúa vopnabúnað og þó hann hafi ekki smíðað sinn fyrsta bíl fyrr en 1919, hafði hann strax árið 1916 ákveðið að fara í bílaframleiðslu. Í mars 1919, aðeins fjórum mánuðum eftir að fyrri heimsstyrjöldinni lauk, sýndi Citroen gerð A, með 1327cc fjögurra strokka vél sem gaf hámarkshraða upp á 65 km/klst. Þegar framleiðslu lauk árið 1921 höfðu meira en 24.000 Type A-bíla verið smíðaðar.
Umræður um þessa grein