Fimmtudagur, 15. maí, 2025 @ 22:35
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Bæ bæ Kimi

Malín Brand Höf: Malín Brand
27/05/2022
Flokkar: Mótorsport
Lestími: 5 mín.
276 8
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Maðurinn sem hefur svo gott sem keppt í Formúlu 1 helming ævinnar keppir í síðasta skipti núna á sunnudaginn í Abu Dhabi. Kimi Räikkönen er ekki maður margra orða en það sem hann segir er oftar en ekki eitthvað sem hittir algjörlega í mark.

Hann er raunar einn af tiiltölulega fáum sem slá bæði í gegn með því sem þeir segja og því sem þeir segja ekki. Hann hefur ekki mikinn áhuga á að svara kjánalegum spurningum enda sleppir hann því stundum alveg. Jú, og svo hefur hann átt það til að pirrast lítið eitt í radíósamskiptum við liðið þegar hann er einbeittur í keppni.

Jæja, þetta er eitthvað sem erfitt er að lýsa og því fylgja hér nokkur myndbrot af þessum finnska ökumanni sem byrjaði að keppa í Formúlu 1 árið 2001, fyrir Sauber-Petronas og fékk fljótlega viðurnefnið „ísmaðurinn“ eða „The Iceman“ sögum þess hve svalur hann virtist og yfirvegaður.

Ekki snerta mig

Finnski blaðamaðurinn Heikki Kulta hefur tekið þau nokkur, eða kannski nokkur hundruð, viðtölin við Kimi síðustu tuttugu árin eða svo. Sumarið 2020 birti f1.com bráðskemmtilega grein þar sem Kulta segir frá kynnum þeirra Kimi.

„Það tók hann dálitla stund að átta sig á því að hann þyrfti ekki forðast mig,“ skrifar Kulta og heldur svo áfram:

„Það var árið 2002, þegar hann keppti fyrir McLaren, sem ég áttaði mig á að Raikkonen kærir sig ekki um að hafa fólk of nærri sér. Ég sat og drakk kaffi með Matti, pabba hans Kimi, í gestastofu McLaren í Mónakó. Við vorum að horfa á æfinguna þegar Kimi nálgaðist beygju á allt of mikilli ferð. Bíllinn hans snérist á brautinni, eftir að hafa dúndrað á brautarvegg og starfsfólk flýtti sér á staðinn til að hjálpa Kimi út úr bílnum.

„Nú verður vesen,“ sagði Matti þegar hann sá fólkið reyna að hjálpa syni hans. Raikkonen ýtti við þeim fyrstu sem komu að honum. „Kimi hefur alla tíð verið illa við að ókunnugir snerti hann. Og þetta er það sem gerist í hvert skipti.“

Þegar vængurinn flaug og Kimi sá stjörnur

Þó svo að það ætti að hafa spurst út að Kimi kærði sig ekki um snertingu ókunnugra gerðist þetta nú aftur og aftur. Blaðamaðurinn Heikki Kulta sefir svo frá:

„Um það bil tveimur árum seinna, í lokabaráttunni í Hockenheimkappakstrinum, missti hann afturvænginn á mikilli ferð og klessti á brautarvegginn. Kimi rak höfuðið í og eitt andartak sá hann stjörnur, en komst til meðvitundar þegar starfsmenn komu askvaðandi til að kanna ástandið á honnum og tryggja öryggi hans.

Kimi brást ókvæða við og harkalega, sem kom viðstöddum í opna skjöldu, en töldu margir viðbrögð Kimi stafa af gríðarlegum vonbrigðum sem hann léti í ljós með þessum furðulega hætti.  

Eftir atvikið virtist Kimi vera fyllilega meðvitaður um gjörðir sínar. „Jafnvel þótt ég hefði unnið keppnina hefði ég brugðist nákvæmlega eins við ef einhver ókunnugur færi að þukla svona á mér. Ég þoli svona lagað bara ekki,“ viðurkenndi hann.

Er hægt að vera of hreinskilinn?

Heikki Kulta segir svo skemmtilega frá að ég má til með að vitna aðeins meira í hann:

„Það eru nú engar ýkjur að segja að Raikkonen sé hreinskilnasti ökumaður sem nokkurn tíma hefur keppt í Formúlu 1. Hann forðast allt karp og málavafstur og á það til að svara spurningum höstuglega að mati sumra – og sé hann spurður spurningar sem honum þykir heimskuleg, þá fer það ekkert á milli mála hvað honum finnst.

Það var einmitt þess konar hreinskilni á ferðinni þegar fjölmiðlafulltrúi McLaren bað mig að taka viðtal við Kimi, eftir fyrstu prófanir hans á nýjum MP4-19 árið 2004. Viðtalið átti að birtast í Racing Line, sem er tímarit McLaren liðsins.

Bíllinn hafði verið í notkun á brautinni síðan í nóvember árið áður [2003] en Raikkonen ók bílnum ekkert fyrr en í janúar, að þriggja mánaða vetrarfríi loknu. Jæja, ég spurði hann hvernig honum þætti bíllinn svona í fyrsta kasti.  

„Þetta er algjört *** rusl,“ glopraði hann út úr sér á finnsku. Ég gat auðvitað ekki haft það eftir honum í tímaritinu, þannig að á ensku skrifaði ég að bíllinn hefði ekki verið nákvæmlega eins og Kimi hafði átt von á… En hvað sem því líður, þá var það nú sannleikanum samkvæmt.  MP4-19 var lagt eftir sex keppnir af sjö sem eftir voru á tímabilinu og hafði einungis nælt í átta stig þegar betrumbættur MP4-19B kom,“ skrifar hinn fantafíni blaðamaður Heikki Kulta um Kimi Räikkönen.

Bæ bæ Kimi

Það verður gaman að fylgjast með síðustu keppni Kimi Räikkönen á sunnudaginn og hann á örugglega eftir að skjóta upp kollinum einhvers staðar þar sem síst skyldi í framtíðinni.

Hér er kveðja til hans frá Sauber og hér er hlekkur á splunkunýja teiknimynd um Kimi sem Formula 1 og Kimi unnu í sameiningu og er býsna góð að mati þeirrar sem þetta skrifar.

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Eru fuglar líklegri til að drita á rafbíla?

Næsta grein

Mat Mats: Þeir fegurstu og ljótustu

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Ítalskur íhlutaframleiðandi bjargar Recaro Automotive

Ítalskur íhlutaframleiðandi bjargar Recaro Automotive

Höf: Jóhannes Reykdal
08/12/2024
0

Þýski bílstólaframleiðandinn fær fjárfestingu frá Proma Group, sem gerir framleiðslu kleift að hefjast að nýju Ítalski bílavarahlutaframleiðandinn Proma Group hefur...

Átján ára stúlka vann Porsche meistaratitil

Átján ára stúlka vann Porsche meistaratitil

Höf: Pétur R. Pétursson
23/09/2024
0

Isabell Rustad hefur átt nánast fullkomið tímabil í Porsche Sprint Challenge Scandinavia. Um helgina á lokakeppninni á Mantorp Park fékk...

Ford Mustang GTD verður frumsýndur í Evrópu á 24 stunda Le Mans

Ford Mustang GTD verður frumsýndur í Evrópu á 24 stunda Le Mans

Höf: Jóhannes Reykdal
27/05/2024
0

Ford hefur verið að undirbúa nýja Mustang GTD til að gera hann að fullkomnum bíl til að bera „hestanafnið“. Áætlað...

Audi Q8 e-tron breytt í öflugan rafdrifinn torfærubíl með nýrri Dakar útgáfu

Audi Q8 e-tron breytt í öflugan rafdrifinn torfærubíl með nýrri Dakar útgáfu

Höf: Jóhannes Reykdal
06/01/2024
0

Audi tók Q8 e-tron og breytti honum í alrafmagnaðan torfærubíl. Audi Q8 e-tron Dakar- útgáfan er sérgerð fyrir ævintýramenn sem...

Næsta grein
Mat Mats: Þeir fegurstu og ljótustu

Mat Mats: Þeir fegurstu og ljótustu

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Fiat 500 fær aftur bensínvél

15/05/2025
Bílaframleiðsla

Alrafmagnaður Isuzu D-MAX 4×4 á markaði Evrópu í haust

14/05/2025
Bílaframleiðsla

Volvo XC70 snýr aftur sem tengitvinnbíll með 199 km drægni á rafmagninu

13/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.