Það er alltaf gaman þegar fólk segir eitthvað gáfulegt, svo ekki sé talað um þegar það er bæði fyndið og gáfulegt. Þetta tvennt getur farið saman en hér eru dæmi um fleyg orð af vörum „bílakónga“ á borð við Henry Ford og Enzo Ferrari.
Það er samt ekki svo að allt það gáfulegasta hafi verið sagt í gamla daga! Þess vegna ætla ég að hefja þetta á einu sniðugu sem Elon Musk skrifaði fyrir ekki svo löngu (í fyrra) á Twitter:
„16 stunda vinnudagur, 7 daga vikunnar, 52 vikur ársins og enn talar fólk um að ég sé heppinn.“
_(8765031426)%20Large.jpeg)
Og annað „teslað“:
„Þegar Henry Ford fór að framleiða ódýra og trausta bíla sagði fólk: „Hvað, er hesturinn ekki nógu góður?“ Hann [Ford] lagði mikið undir og dæmið gekk upp.“
Það er best að reyna ekkert að útskýra þetta. Það er nú stóra spekin í spakmælum og fleygum orðum.
Karlarnir sem ekki voru á Twitter
Henry Ford (1863 – 1947)

Henry Ford sagði margt sniðugt og hér er eitt sem á sér dálitla sögu en best eru orðin ef skýringunni er sleppt. Þetta stendur þá eftir: „Viðskiptavinir geta keypt sér bíl í hvaða lit sem er, svo framarlega sem bíllinn er svartur.“

„Ég fann ekkert upp. Ég einfaldlega setti saman eitt og annað sem aðrir hafa hafa uppgötvað í gegnum tíðina.“

„Einföldustu hlutirnir eru bestir, hvort sem um bíla er að ræða, mataræði eða lífsspeki.“
Enzo Ferrari (1898 – 1988)

„Loftaflfræði er fyrir þá sem ekki kunna að smíða vélar,“ sagði Enzo Ferrari en hann var víst nokkuð skammsýnn stundum skilst manni.
Svo gat hann verið býsna fyndinn þegar var í stuði: „Mér er nokk sama hvort hurðabilið sé jafnt. Þegar gefið er í vil ég bara að bílstjórinn geri í buxurnar.“ Hvort sem þýðing undirritaðrar er skotheld eður ei þá ætti merkingin að komast til skila!
„Ég sel ekki bíla heldur vélar. Yfirbyggingin fylgir með því eitthvað þarf að halda vélinni á sínum stað.“

„Kappakstursbílar eru hvorki fallegir né ljótir. Þeir verða fallegir þegar þeir sigra.“
„Það sem er fyrir aftan þig skiptir ekki máli.“
Og eitt að lokum:
„Viðskiptavinurinn hefur ekki alltaf rétt fyrir sér.“
Ettore Bugatti (1881 – 1947)

„Ég bý til bíla til að komast áfram, ekki til að stoppa,“ á Ettore Bugatti að hafa sagt þegar viðskiptavinur kvartaði yfir bremsunum í Bugatti 35. Það var víst oft eitthvert vesen á bremsunum í þesssum bílum en þó er Bugatti 35 talinn best lukkaði sportbíll Bugatti. Alla vega á fyrri hluta síðustu aldar.

Þegar viðskiptavinur kvartaði yfir hversu erfiður bíllinn (Bugatti 55) væri í gang í morgunkuldanum mun Ettore Bugatti hafa svarað að bragði: „En maður minn! Ef þú hefur efni á Bugatti [Type] 55, þá ættirðu nú að hafa efni á upphituðum bílskúr!“
Ferdinand Porsche (1875 – 1951)

„Þetta byrjaði þegar ég var að leita að draumabílnum. Ég fann hann ekki og ákvað að smíða hann sjálfur.“

„Hinn fullkomni kappakstursbíll kemur fyrstur allra í mark, svo hrynur hann,“ eru orð sem höfð eru eftir Ferdinand Porsche.
Sir Henry Royce (1863 – 1933)

„Fólk man mun lengur eftir gæðunum en verðinu,“ sagði Sir Henry Royce um verðlagninguna á Rolls-Royce. Aðrar „útgáfur“ (hann var jú ekki á Twitter) eru á þessa leið: „Gæðin haldast en verðið er löngu gleymt.“ Það eru til ýmsar útfærslur af orðalagi en kjarni málsins er sá sami.

„Taktu það besta sem völ er á og gerðu það betra.“
Sir William Lyons (1901 – 1985)

„Það kostar ekkert meira að búa til eitthvað fallegt,“ sagði Sir William Lyons, stofnandi Jaguar.

„Bíllinn er það sköpunarverk mannsins sem kemst næst því að vera lifandi vera.“
Áhugavert? Hér eru fleiri greinar sem þú gætir viljað lesa:
Á blússandi ferð á rafbíl 1899
Stiklað á stóru eftir færibandi Ford
Ford var „með stærstu ljósaauglýsingu heims“
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein