Þriðjudagur, 19. ágúst, 2025 @ 0:33
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Fastur uppi í tré í 37 ár

Malín Brand Höf: Malín Brand
27/06/2022
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 8 mín.
274 11
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Köttur fastur uppi í tré? Sjaldgæft hér á landi en hefur þó gerst. En að bíll sé fastur uppi í tré er mun sjaldgæfara og þá ekki bara hér heldur í heiminum öllum. Þeir detta nefnilega fljótlega niður úr íslenskum hríslum. Nei, að öllu gamni slepptu þá var bíll í raun og veru fastur uppi í tré í 37 ár.

Eins og þekkt er þá geta ótrúlegustu hlutir átt sér stað í Bandaríkjunum. Þá á ég ekki endilega við hverjir geta orðið forsetar og þess háttar; það er önnur saga sem hefur fátt með bíla að gera. Fyrir utan að sagan sú er bara hrútleiðinleg!

Vindum okkur í bílana eins og okkar er siður hér á Bílabloggi.

Plymouth Fury III frá 1973 með voðalega fínan mótor (Police Interceptor, 440 V8) var einn daginn kominn upp í tré í bænum Abbeville í Lousiana. Þetta tré var reyndar við einbýlishús en þjóðvegur 82 liggur þar skammt frá og var almenna skýringin á þessum ósköpum sú að bíllinn hefði flogið af veginum og endað uppi í tré.

Þessi skýring þótti ekkert ótrúleg þarna árið 1983. Óvenjulegt atvik en ekki ómögulegt miðað við staðsetningu og allt það. En þó voru ýmsar sögur, sem gengu í þessum 10.000 manna bæ, um það hvernig þessi 9 ára gamli bíll hefði endað uppi í gömlu eikartré.

Ein sagan sagði að hópur ungra skáta hefði verið að leysa verkefni sem hefði tjah, farið dálítið úrskeiðis. Önnur gekk út á að eigandinn, sem var og er einmitt íbúi í húsinu, hefði ætlað að sýna lögreglustjóranum á staðnum hvar Davíð keypti ölið og komið bílnum þarna fyrir gagngert til að ögra stjóranum eftir eitthvert karp þeirra á milli.

Plymouth Fury III frá 1973. Ekki sami bíll en samt eins og trjábíllinn var einhvern tíma.

Einhvern veginn þannig voru tvær af þeim sögum sem gengu fyrst um sinn. En eftir því sem árin liðu varð bíllinn í trénu að kennileiti sem var ekkert undarlegra í augum bæjarbúa en jólaskraut sem aldrei var tekið niður. Eins og ein kona, þá íbúi í Abbeville, orðaði það árið 2012 þegar einhver gerði bílinn í eikinni að umfjöllunarefni:

„Jú, það er rétt. Þetta er alvöru bíll þarna uppi í trénu. Hann hefur verið þarna svo lengi sem ég man eftir. Alla vega lengur en fimmtán ár. Maðurinn minn [sem ólst upp í Abbeville] segir að annar bíll hafi verið uppi í þessu sama tré þegar hann var lítill strákur. En hvers vegna þau setja bílana upp í tréð, veit ég nú ekki. Kannski bara til þess að fólk hafi um eitthvað að tala?“

Blaðamaður fasteignablaðsins Lafayette Real Estate News sem fjallaði um þetta á sínum tíma skrifaði þá: „Það var freistandi að segja að svona lagað gæti nú bara gerst í Louisiana en ég er nokkuð viss um að víðar eru bílar uppi í trjám. Ef þú vilt sjá þennan bíl uppi í trénu þá er hann við þjóðveg 82, rétt norður af Abbeville.“

Eins og ekkert væri eðlilegra.

Það sem fer upp kemur (stundum) niður aftur

Bíllinn var tekinn „tekinn niður“ úr trénu fyrir rúmum þremur árum, eða þann 13. febrúar 2019. Af því tilefni var rætt við eiginkonu mannsins sem átti bílinn. Sagði Debi Barron Steen eftirfarandi í viðtali við fréttastofu WWAY:

„Charley hafði nokkrar áhyggjur af trénu því greinin sem bíllinn hvíldi á sýndi merki um þreytu,“ sagði konan. Já, það er kannski ekki undarlegt þar sem á greininni „hvíldi“ tæplega tveggja tonna ökutæki.

Frúin hélt frásögninni áfram: „Bíllinn var því fjarlægður og á næstunni kemur sérfræðingur sem mun annast tréð. Já, svona er þetta bara. 37 ára sögu bílsins í trénu er lokið. En allt gaman tekur enda um síðir, ekki satt?“

Áhugavert viðhorf en eiginmaðurinn sagði þó í öðru viðtali að hann hefði nú fyrst og fremst viljað fá bílinn niður úr trénu til að kanna ástandið á honum. Sem sagt bílnum – ekki trénu. Hann nefndi það seinna að einhver myndi kanna hvernig ástatt væri fyrir trénu.

Það er vandaverk að koma niður úr tré.

Blessaðri eikinni sem hafði þá borið þessa tveggja tonna byrði í heil 37 ár! En sannleikurinn um það hvers vegna Plymouth Fury III frá 1973 endaði uppi í tré þegar undirrituð var smábarn (árið 1983) átti enn eftir að koma fram. Og kannski er hann ekki enn kominn fram. Bíllinn flaug í það minnsta ekki upp í tré, eins og margir íbúar Abbville höfðu haldið í einhverja áratugi.

Charley Steen leysir frá skjóðunni

Einmitt, ég hélt sjálf að þetta væri leikarinn Charlie Sheen sem ætti þarna hlut að máli og var snögg að afgreiða söguna (áður en ég hóf alvöru „grams“) sem þvætting. En nei, aldeilis er þetta annar Kalli. Allt annar Kalli.

Ekki þessi náungi sem sagt. Þetta er Charlie Sheen en eigandi bílsins heitir Charley Steen. Ljósmynd/Wikipedia

Þegar bíllinn var kominn til jarðar ákvað eigandinn, Charley Steen, að segja söguna af því hvernig ökutækið „lenti“ uppi í tré árið 1983.

Kominn niður úr trénu. Trénu, sem varð samstundis tveimur tonnum léttara.

Steen er frá Abbeville og hefur búið í þessu sama húsi í 40 ár. Sem segir okkur að fjölskyldan hafi verið tiltölulega nýflutt í húsið þegar bíllinn fór þangað sem hann fór. Áhugaverð leið til að kynna sig í nýju hverfi en jæja, hvað um það!

„Þetta var sérstakt og afskaplega skemmtilegt tímabil í lífi mínu,“ sagði hann í viðtali þar sem hann blés á 30 ára gamlar sögusagnir.

„Ég var ekki að ögra lögreglunni eða neitt í þá veru. Ég kannaðist ágætlega við lögreglustjórann og var allt gott á milli okkar. Þennan bíl keypti ég á milli jóla og nýárs 1982 af góðum vini mínum, Daryl Robo sem rak Bílasölu Robos. Bílinn notuðum við vinirnir til að rúnta um bæinn og leika okkur. Við notuðum hann ekki í einhver skammarstrik eða neitt svoleiðis,“ sagði Steen en þeir voru víst ekki þeir þægustu, piltarnir í vinahópnum.

Skrautlegur en þó ekki nógu gamall til að geta talist svakalega gamall. Hvað þá til að geta talist eiga erindi upp í tré. Þar eiga bílar varla heima.

Kona Steens sagði t.d. að þeir hefðu málað bílinn rauðan, bláan, gulan og grænan eins og sést á gömlu myndunum í skjáskotinu af myndaalbúminu.

Úr myndaalbúmi Steens. Skjáskot: klfy.com

Í færslu á Facebook frá júlí 2017 þar sem bíllinn var til umræðu eftir að ákveðið var að fjarlægja hann úr eikinni (tveimur árum áður en það var gert) kom fram að félagarnir hefðu verið alræmdir í bænum. Þeir hafi átt það til að klæða sig upp sem trúðar og þannig óku þeir um bæinn með hávaða og látum. Það hafi ekki farið framhjá mörgum þegar piltarnir voru í stuði.

Dag nokkurn í ársbyrjun 1983, skömmu áður en Steen fór í frí til frænda síns við Lake Tahoe, ræddi hann við vin sinn og kvaðst viss um að á meðan hann yrði í burtu myndu mestu sprellikarlarnir í vinahópnum taka bílinn til að hrekkja hann. Lykillinn hafði brotnað í svissinum og þess vegna var auðvelt að taka bílinn.

Steen horfir á bílinn sem hafði færst upp á við á tæpum fjórum áratugum. En ástandið á bílnum fór niður á við. Skjáskot:klfy/com

„Þá kom vinur minn með þessa líka frábæru hugmynd um að koma bílnum bara fyrir uppi í tré. Þá gæti enginn notað bílinn á meðan. Og það var einmitt það sem við gerðum,“ sagði Steen en hann lýsti því ekki nákvæmlega hvernig þeir fóru að þessu. Þó gat hann þess að hann hefði fest bílinn með keðju „til að hann færi ekki á flakk og framhaldið þekkjum við,“ sagði hann.

Sé þetta raunverulega skýringin þá var þetta einkabrandari sem entist býsna lengi.

Fleiri furðusögur úr hinum stóra heimi: 

Gleymdi hvar hann lagði bílnum: Svo liðu 20 ár

Ók aftur á bak í 12 ár og fékk í bakið

Umhverfis jörðina 50 sinnum: Sama vél og sami gírkassi

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Breyttist næstum í leiðilegan bílasafnara

Næsta grein

Meistaraverkin verða til á þessum stað

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr rafknúinn Nissan Micra

Nýr rafknúinn Nissan Micra

Höf: Jóhannes Reykdal
18/08/2025
0

Nissan mun miða „glæsilegri“ rafknúinn Micra að kvenkyns kaupendum PARÍS — Nissan gaf teyminu sem var að hanna nýja rafknúna...

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

Höf: Jóhannes Reykdal
05/08/2025
0

Skuggmynd minnir okkur á að Skoda stefnir að því að sigra markaðinn fyrir rafknúna stationbíla Skoda hefur verið að framleiða...

Honda Civic hefur fengið nýtt útlit

Honda Civic hefur fengið nýtt útlit

Höf: Jóhannes Reykdal
04/08/2025
0

Með nýrri uppfærslu á Honda Civic er kynnt nýtt útlit fyrir 11. kynslóð gerðarinnar Nýi Prelude fra Honda kemur fram...

Honda N-ONE e – Lítill rafbíll með mikinn persónuleika

Honda N-ONE e – Lítill rafbíll með mikinn persónuleika

Höf: Jóhannes Reykdal
02/08/2025
0

Það er stundum gaman að fylgjast með hvernig „smábílamarkaðurinn“ í Japan þróast.   Peter Johnson hjá electrek-vefnum var að fjalla um...

Næsta grein
Meistaraverkin verða til á þessum stað

Meistaraverkin verða til á þessum stað

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

Volkswagen ID.Buzz GTX – fortíðin mætir nútímanum

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr rafknúinn Nissan Micra

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

05/08/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.