Ekki ætlarðu að stoppa bílinn þarna?

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Áætlað er að rúmur milljarður fólksbíla sé á ferð eftir vegum veraldar daglega og ætti því ekki að koma sérstaklega á óvart að klaufaleg atvik komi upp í öllu kraðakinu. Eins og til dæmis að bílar festist. Á ótrúlegustu stöðum!

Sem betur fer eru jarðarbúar oft duglegir að taka myndir. Mistök annarra er myndefni sem nýtur mikilla vinsælda og því furðulegra, því betra. Segja sumir.

En hvernig?

Lítum á myndir af bílum sem búið er að festa á virkilega undarlegum stöðum.

Stigamaður á refilstigum

Hvar skyldi maður nú eiga að leggja?

Það vantar eitt og annað hér en af bílastæðum virðist nóg. Því spyr maður sig: Hvernig gerðist þetta? Palli var einn í heiminum og hann kom sér í klandur. En þetta á sér vonandi einhverja góða skýringu.

GPS-ofurtrú?

Iss, þetta er bara smá drulllupollur!

Bíljaki

Rangt endamark

Er Pagani Huayra ekki fínn á möl líka?

Nei, en þá kemur pabbi gamli á Hondu CR-V og bjagrar mörgu..  

Þetta hlýtur bara að geta allt – fyrir þennan pening sko!

Útsala, segir í búðarglugganum. Verðhrun jafnvel?

Svo er líka hægt að fara bara með strætó

Porsche kemst hingað og þangað. En ekki héðan. Ekki hjálparlaust.  

Við Vötnin miklu (Great Lakes) getur ýmislegt gerst þegar hann blæs.

 Fyrst í spa og svo á verkstæði

Nenntu ekki að bíða

Ætli hann hafi verið að hlusta á Muddy Waters?

Bugatti Veyron baðferðin fræga

Flest höfum við séð myndband þar sem þessi milljón dollara Bugatti flýgur út í stöðuvatn í Texas. Á þessum ljósmyndum sést eigandinn, Andy Lee House, en hann mun vera einn af þeim fyrstu sem eignaðist Bugatti Veyron í Bandaríkjunum.

En hvað með þessa baðferð?

Sagt er að House hafi verið að teygja sig í farsímann sinn og að það hafi nú ekki tekist betur en þetta.

Hvernig sem hann fór að þessu, blessaður karlanginn, þá var þetta alveg ferlegt.  

Efnið er héðan og þaðan. Aðallega þaðan en líka frá Reddit, Herald Sun, Auto Evolution og Hotwheel.

Annað sem þessu tengist::

Hefði átt að færa bílinn

Bíllinn sagði mér að gera þetta! GPS mistök

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Svipaðar greinar