Þrír nýir rafbílar frá BYD frumsýndir um helgina!

142
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

VATT FRUMSÝNIR ÞRJÁ NÝJA 100% RAFMAGNAÐA BYD BÍLA HELGINA 4. OG 5. MAÍ FRÁ KL. 12-16

Byd fjölskyldan stækkar, frumsýning á þremur nýjum og spennandi BYD rafmagnsbílum  um helgina, BYD SEAL, BYD SEAL U og BYD DOLPHIN. Allir hjartanlega velkomnir á þessa flottu bílasýningu í Vatt,  Skeifuna 17.

Það verður nóg um að vera á sýningunni alla helgina! Pylsuvagninn verður á svæðinu, þannig að það fer enginn fari svangur frá okkur.  Stilling verður með topptjald til sýnis, þeir bjóða upp á frábærar vörur.

Candy floss og andlitsmálning verður í boði fyrir alla sem vilja, börn eða fullorðna á laugardaginn. Á sunnudaginn verða Blöðrudýr í boði fyrir alla sem vilja.

Allir sem reynsluaka á sýningunni fara í lukkupott, í honum eru veglegir vinningar. Tveir heppnir verða dregnir út úr lukkupottinum eftir sýninguna, þeir munu vinna sér inn glæsilegan vinning hver: gisting fyrir tvo á Hótel Rangá með þriggja rétta kvöldverði ásamt morgunverði. Hlökkum til að sjá þig!

Svipaðar greinar