Polestar 2 getur fengið 68 hestöfl í viðbót í þráðlausri uppfærslu

139
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Polestar 2 getur fengið 68 hestöfl í viðbót í þráðlausri uppfærslu

Polestar hefur tilkynnt að það hafi gefið út nýja afkastahugbúnaðaruppfærslu fyrir „Long range Dual Motor“ Polestar 2, sem bætir við 68 hestöflum og gefur þá samtals 476 hö.

Uppfærslan bætir einnig við 20,3 Nm til viðbótar af togi, til að gefa honum samtals 680 Nm.

Þar sem uppfærslan byggist á hugbúnaði er hægt að hlaða niður afköstum beint á Polestar 2 án þess að þurfa að heimsækja þjónustuverkstæðið.

Uppfærslan kostar sem svarar 168.750 krónum samkvæmt fréttum á vefsíðum.

Afkastauppfærslan gerir Polestar 2 hraðari í 60 mílur á klst (96,5 km/klst), á aðeins 4,2 sekúndum. Polestar segir að aukið afl og tog finnist aðallega við hraða á milli 70 og 128 km/klst.

Með þessari uppfærslu tekur hröðun úr 80 í 125 km/klst aðeins 2,2 sekúndur – hálfri sekúndu hraðar en venjulegur tveggja mótora Polestar 2.

(frétt á vefsíðum TorqueReport og fleiri vefsíðum)

Svipaðar greinar