Nýr uppfærður 2023 Peugeot 508 kemur með fersku útliti og endurbættri tækni
Til að koma honum í samræmi við nýjustu gerðir fyrirtækisins hefur Peugeot gefið 508 ferskt útlit og nýtt upplýsinga- og afþreyingarkerfi fyrir árið 2023
Með nýrri hönnunarstefnu, uppfærðu lógói og góðum rafvæðingaráformum, er Peugeot að ganga í gegnum verulega endurbætur upp á síðkastið.
Á þessu ári hafa 508 stóri hlaðbakurinn og stationgerð hans fengið uppfærslur til að halda þeim samkeppnishæfum þar til hugsanlegar rafknúnir arftakar koma inn á völlinn á seinni hluta áratugarins.

Útlitsbreytingarnar eru mjög þróaðar, með framenda sem sækir innblástur frá nýja 408.
Nýja merki Peugeot er að framan og fyrir miðju í nýju grilli sem fellur val að yfirbyggingu og framljósum.
Ljósin er af „matrix“ gerð LED-ljósa, með þremur ljósastikum sem ná niður inn í stuðarann.

Nýjar 18 tommu álfelgur hafa líka verið settar á og afturljósin hafa verið endurgerð með hönnun eins og „kló“.
Minni lagfæringar – þar á meðal nýtt Peugeot-letur að aftan, sem kemur í stað fyrra ljónamerkis – lyfta ytri hönnun, en uppfærð útgáfa af 508-merkinu er kunnugleg.
Viðskiptavinir geta valið úr sjö mismunandi áferðum á lakki að utan á uppfærða bílnum – þar á meðal þrír nýir litir – og Peugeot hefur uppfært upplýsinga- og afþreyinguna að innan. Það er enn 10 tommu skjár í mælaborðinu, en hann keyrir nú nýjasta „i-Connect Advanced“-hugbúnað fyrirtækisins.
Viðmótið er sérhannað með búnaði og flýtileiðum og inniheldur TomTom tengt leiðsögukerfi og „Ok Peugeot“ raddaðstoð.
Uppsetningin er studd af þráðlausum uppfærslum til að bæta virkni.

Almennt séð er hönnun farþegarýmis óbreytt frá fyrri 508, með setti af hnöppum í „píanó-stíl“ undir skjánum.
Miðjustokkurinn hefur verið uppfærður með minni útgáfu af vali á gírskiptingu og „i-Cockpit“ skipulag Peugeot er enn til staðar.
Það er lítið stýri fyrir neðan 12 tommu stafrænan mælaborðsklasa, sem býður upp á nýja stillanlega skjái fyrir leiðsögu, miðla og orkuflæði aflrásar í tengitvinngerðum.

508 býður einnig upp á AGR-vottað framsæti, sem hægt er að fá með rafminni, sætahita og loftnuddkerfi.
Nýtt tauáklæði og Alcantara áklæði eru staðalbúnaður sem hluti af uppfærslunum, með innréttingum úr nappaleðri í boði sem valkostur.
Einnig er hægt að setja upp öflugara 10 hátalara Focal hljóðkerfi.

Þegar kemur að hagkvæmni, þá samsvara nýi 508 og 508 SW stationbíllinn við forvera sína með farangursrými upp á 487 og 530 lítra í sömu röð.
Ef aftursætin eru felld niður í 508 SW eykur þetta plássið upp í 1.780 lítra.

Peugeot hefur einfaldað módellínuna fyrir andlitslyfta 508, sem kemur á markað í Allure, GT eða Peugeot Sport Engineered búnaðarstigi.
Eins og áður er öflugari PSE-gerð með 355 hestafla tengitvinndrifrás sem byggð er í kringum 1,6 lítra fjögurra strokka bensínvél með forþjöppu.
Þetta sameinast rafmagni í gírkassanum og einum rafmótor á afturás til að veita 355 hestöfl og fjórhjóladrif, með rafeiningunni knúinn af 12,4kWh rafhlöðupakka.
Með því að nota 7,4kW hleðslutæki er hægt að fylla á rafhlöðuna á einni klukkustund og 40 mínútum.
Fyrir Allure og GT útgáfur af 508 samanstanda vélarvalkostir af bensíni, dísil og tengitvinneiningum.
Bensínaflið kemur í formi 1,2 lítra eininga en dísilvélin er 1,5 lítra fjögurra strokka mótor. Báðir skila 129 hö.
Samhliða 222 hestafla 1,6 lítra tengitvinnbúnaðar bílsins, verður nýr 508 seldur með minna öflugu 178 hestafla afbrigði af þessari aflrás í fyrsta skipti, sem lækkar grunngerðina fyrir rafknúnar útgáfur.
Allar vélar eru búnar átta gíra sjálfskiptingu sem staðalbúnaður.
Til að breyta akstursfílingi 508 á ferðinni er hægt að velja úrval af akstursstillingum frá Eco til Sport, en valfrjálsa aðlögunardempara er hægt að skipta á milli Comfort, Normal og Sport stillingar.

Samhliða auknum krafti fær PSE lægri aksturshæð með breiðari sporvídd (24 mm að framan og 12 mm að aftan, í sömu röð) fyrir bætta meðhöndlun í akstri, ásamt uppfærðum bremsum og 20 tommu álfelgum, með Michelin Pilot Sport 4S dekkjum.
Til að auka öryggi er fjöldi aðstoðarkerfa fyrir ökumann fáanlegur með upfærðum 508, þar á meðal blindsvæðaeftirlit, nætursjón, bílastæðamyndavélar og aðlagandi hraðastilli með stöðvunaraðgerð.
Verð fyrir nýja 508 hefur ekki enn verið gefið upp af Peugeot, en búist er við lítilli hækkun á grunnverði þegar hann fer í sölu síðar á þessu ári.
(byggt á frétt frá Auto Express – Myndr: Peugeot)



