Nýr sjö sæta Volkswagen ID.Buzz sést í prófunum
Gerðin með lengra hjólhaf mun halda sömu áberandi hönnun og venjulegur ID.Buzz
Frá því að Volkswagen frumsýndi ID.Buzz hefur verið töluvert talað um hvernig lengri sjö til átta sæta gerð myndi koma út.
Núna var Auto Express að birta myndir af nýjum sjö sæta ID.Buzz í vetrarprófunum, svo það er greinilega farið að styttast í þannig útgáfu af bílnum.

Þetta er fyrsta sýn okkar á nýjan Volkswagen ID.Buzz með löngu hjólhafi. Hann sést hér vera enn í þróun, og hannaður til að vera enn hagnýtari útgáfa af rafknúnum fjölnotabíl með sjö sætum í stað venjulegra fimm.
Auka plássið mun gera ID.Buzz enn meiri keppinaut við Citroen e-SpaceTourer, Peugeot e-Traveller og Opel/Vauxhall Vivaro Life Electric, segir Auto Express.

Þessi gerð hefur sést áður á kynningu á sjö sæta ID.Buzz í fjárfestakynningu árið 2022 sem leiddi í ljós innra skipulag bílsins.
Staðlað snið væri tvö sæti að framan, þrjú í miðröð og tvö að aftan, en hægt verður að færa sætin til og jafnvel fjarlægja þau til að hámarka hleðslurýmið – rétt eins og með nýja VW Multivan.

Njósnamyndirnar sem birtust á vef Auto Express hafa náð ID.Buzz í prófunarskilyrðum í vetrarfærð með nokkuð léttum felulitum, sem bendir til þess að full birting sé yfirvofandi. Ytri hönnunin er nokkurn veginn eins og á staðalgerð ID.Buzz, þar sem auka lengdin kemur fram í hjólhafinu.
ID.Buzz var hleypt af stokkunum með upphaflegu „1st Edition“ útfærslustigi (sem hefur nú farið úr sölu) og Auto Express gerir ráð fyrir að lengri gerðin fái sömu meðhöndlun, með Life og Style innréttingum sem koma síðar. Þá er búist líka við að sjá sama 10 tommu Discover Pro upplýsinga- og afþreyingarkerfi og staðlaða útgáfan. Búnaðarforskriftir munu líkja eftir minni gerðinni og aflrásin ætti að vera sú sama líka.

Þrátt fyrir aukið pláss fyrir stærri rafhlöðupakka er líklegt að það megi sjá afkastagetu upp á 77kWh, sem sendir 201 hestafl og 310Nm af tog á afturhjólin.
Með aukinn massa mun ID.Buzz LWB líklega vera undir 415 km hámarksdrægi venjulegu gerðarinnar.
(frétt á vef Auto Express)



