Nýr Polestar 4 sást í léttum felulitum

138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Nýr Polestar 4 sást í léttum felulitum

Fjórða sérsniðna Polestar gerðin verður meðalstór sportjepplingur, í stærð fyrir neðan Polestar 3 sem er í efsta sæti.

Njósnaljósmyndarar Auto Express náðu mynd af nýjum Polestar 4 prófunum í akstri, sem bendir til þess að full afhjúpun gæti orðið á þessu ári.

Þessi 4-bíll mun vera lykilþáttur í því að knýja áfram vöxt undirvörumerkis Volvo í alhliða rafmagni í 290.000 bíla sölu á heimsvísu árið 2025.

Polestar 4 mun koma snyrtilega inn sem fjórði bíll fyrirtækisins, sem situr á milli Polestar 2 og Polestar 3 – sem var kynntur á síðasta ári sem stór rafmagnssportjeppi sem keppir við BMW iX og Audi Q8 e-tron.

Polestar 4 verður meðalstór sportjepplingur sem keppir við bíla eins og væntanlega Porsche Macan EV, Tesla Model Y og Mercedes EQC.

Þessar nýjustu njósnamyndir gefa okkur bestu sýn til þessa á útliti Polestar 4 hingað til á. Eins og við var að búast mun hann hafa fullt af útlitseinkennum sem sést hafa á öðrum Polestar-bílum þar sem fyrirtækið lítur út fyrir að vera að skapa auðþekkjanlegt hönnunarútlit á öllu sínu framboði.

Polestar 4 (að vísu enn í felulitum) – en gefur góða hugmynd um útlitið að framan

Heildarprófíllinn er mun sléttari en Polestar 3 og forstjóri Polestar, Thomas Ingenlath, hefur áður tjáð sig um hönnunina og sagt að: „Þessi bíll er aðeins minni, en við þurfum ekki að gefa mikið eftir í innra rými.

En þessi bíll er örlítið þéttari, aðeins meiri áhersla á á coupe gerð þaklínunnar, og færir í raun glæsileika vörumerkisins inn í þann flokk verðlega séð.

„Loftaflsfræði mun gegna miklu stærra hlutverki í  hönnuninni sem við erum að vinna með núna, sagði Ingenlath, „en almennt held ég að rafmagnsöldin muni færa hönnun sem ber mun meiri virðingu fyrir loftaflfræði.”

Samverkunin af því að sitja í mjög sportlegu farþegarými en miklu ofar frá jörðu,  færir þér tilfinningu um að þú hafir betri yfirsýn.

Ég held að þessi hugmynd verði mjög áhugaverð fyrir framtíðarsportjeppa“.

Framendinn á prófunarbílnum er enn með felulitum en við getum séð svipaða uppsetningu og aðrar Polestar gerðir án hefðbundins grills og lítið neðra grill sem gefur kælingu.

Framljósaklasarnir líta út fyrir að vera klofnir og til hliðar sjáum við útvíkkaða hjólaskálar yfir Polestar 1 felgurnar til að gefa sportlega stöðu.

Polestar 4 (í felulitun) – hér sést vel að þessi væntanlegi sportjeppi er með coupé-lögun á yfirbyggingu.

Hurðarhandföng sem falla slétt að, sem ættu að hjálpa til við að draga úr loftmótstöðu og að aftan er hallandi þaklína sem gefur 4-bílnum lögun coupe-sportjeppa.

Eins og Polestar 2 og 3, ætti 4-bíllinn að fá ljósastiku að aftan í fullri breidd.

Ingenlath sagði aftur árið 2021 að verðpunktur upp á 45.000 evrur (liðlega 6,8 milljónir ISK) væri hægt að ná fyrir Polestar 4, sem myndi meira en líklega þýða upphafsverð upp á rúmlega 40.000 pund í Bretlandi.

Þetta verð myndi koma honum fyrir rétt fyrir ofan Polestar 2 fólksbílinn, sem nú er verðlagður frá 39.900 pundum en getum við búist við að verðmiðinn muni hækka eitthvað frá því verði.

Í kynningu fyrir fjárfestum í kjölfar tilkynningar Polestar um að 4-bíllinn yrði fyrsti bíllinn byggður á grunni sem kallast PMA, frekar en SPA2 grunninum, sem er undirstaða Polestar 3 og væntanlegs Volvo EX90.,

Grunnurinn er hannaður af móðurfyrirtækinu Geely, og Auto Express segir að þessi grunnur hafi þróast yfir í það sem við þekkjum nú sem SEA, og héldi í þætti PMA grunnsins þegar kemur að ökutækinu sjálfu en fól í sér meiri hugbúnað og snjöll forrit.

Ingenlath viðurkenndi áður að nýi Geely SEA grunnurinn – sérsmíðaður, mjög hannaður sem eininga-grunnur fyrir rafbíla á fjöldamarkaði og mikið magn – er aðalmálið fyrir Polestar.

„Notkun á allri bandbreidd tækninnar er fegurðin við að vera í þessum hópi og Volvo, Polestar, Geely, okkur er nú öllum frjálst að líta í kringum okkur og sjá hvað er í boði.

Um möguleika vörumerkisins á að nota nýja SEA grunninn sagði Ingenlath: „Þetta er mögulegt og það mun gera okkur kleift að búa til bíla sem henta mismunandi stigum í framboði úrvalsbíla.

„En eitt er ljóst – frammistöðuþátturinn í því er mikilvægur fyrir okkur.

Við erum með okkar eigin aflrás af bestu gerð sem við útfærum á mismunandi grunni.

Við höfum okkar hugmyndir um það hversu miklu afli grunnurinn á að skila á veginum“, útskýrði hann.

Efri þolmörk SEA grunnsins þýðir að hann er sá sem Polestar gæti notað og fullnægt þörf sinni fyrir mikil afköst.

Það er 800v rafknúinn grunnur sem ræður við litla og meðalstóra bíla, með rafmótorkerfi sem eru metin á allt að 637 hö.

Við vitum ekki stærð rafhlöðunnar sem 4 mun nota en Polestar 3 í samanburði kemur með 107kWh rafhlöðu með allt að 510 hö.

Efri mörk hjólhafs 3.300 mm leyfa rafhlöðu allt að 110kWh að afkastagetu og hámarksdrægi upp á 435 mílur.

(frétt og myndir á vef Auto Express)

Svipaðar greinar