Nýr Mercedes EQA fólksbíll sást í fyrsta skipti
EQA mun fá fólksbíls-útgáfu, sem situr á sama grunni og alrafmagnaði Mercedes sportjeppinn
Vefur Auto Express var að sýna okkur um nýja, rafknúna gerð Mercedes EQA fólksbíls við prófanir og á þótt bíllinn sé enn á fyrstu stigum, sýnir þessi frumgerð bílsins fullt af upplýsingum um næstu grunngerð í EQ línu vörumerkisins.
Hvað varðar rafvædda framtíð sína hefur Mercedes þegar sýnt mesta af spilunum sínum með því að lýsa því yfir að fyrirtækið muni setja á markað þrjá nýja rafbíla fyrir árið 2025 í formi MB.EA, AMG.EA og VAN.EA. Mercedes sagði einnig árið 2021 að það muni hafa hreinan rafknúinn valkost fyrir hverja gerð sem það mun smíða.

EQ línan samanstendur eins og er af EQA, EQB, EQC, EQE sportjepplingnum og EQE fólksbíls-afbrigði hans og EQS og GLS jafnhliða EQS jeppanum og einnig EQV sendibílnum.
Grunngerð EQA var hleypt af stokkunum árið 2021 á lagfærðri útgáfu af MFA2 grunninum sem deilt er með GLA jeppanum með brunavél.
Hins vegar, þó að þessi hreini rafknúni fólsbíll muni nota sama EQA nafnið, verða undirstöðurnar alveg nýjar.
Fyrr á árinu 2022 sagði Ola Kallenius, forstjóri Mercedes: „ásýnd Mercedes vörumerkisins í framtíðinni verður önnur en í dag.“
Þetta var með vísan til nýs MMA grunns sem Mercedes ætlar að frumsýna árið 2024 – þegar líklegt er að það verði kynning á EQA fólksbílnum.
MMA-grunnurinn mun geta staðið undir hreinum rafbílum og brunavélum, sem gæti gert ráð fyrir annarri kynslóð A-Class.

Holger Enzmann, verkefnastjóri Mercedes fyrir EQE og EQS EVA2 grunninn, sagði við Auto Express „við höfum talað um A-Class og við erum að vinna með þann bíl”.
Hann mun ekki vera á EVA2 þar sem sá grunnur er fyrir stærri farartæki. Þetta farartæki er næstum örugglega EQA fólksbíll (saloon) sem fjallað er um hér að ofan, en eins og við munum sjá með væntanlegum CLE (sem mun koma í stað tveggja dyra útgáfu af C-Class og E-Class), eru Mercedes ekki hræddir við að hagræða framboðinu.
Með þetta í huga gæti EQA-fólksbíllinn einnig komið sem rafknúinn valkostur við C-Class.
Hvað prófunarbílinn sjálfan varðar, þá er hann enn mikið klæddur felulitum og hann virðist vera með „falsgrill“ á framendanum.
Þaklínan lítur vissulega meira „rennileg“ út en á A-Class fólksbílnum og meira í takt við prófíl CLA. Það virðist líka vera brot í yfirbyggingunni, sem flæðir frá toppi framhjólaskálarinnar niður að afturhjólinu.
Mercedes hefur haldið því fram að nýja MB.OS upplýsinga- og afþreyingarstýrikerfið muni koma út á tegundum frá 2024, þannig að við munum líklega sjá þessa tækni í EQA-fólksbílnum.
(frétt á vef Auto Express)



