Sunnudagur, 29. júní, 2025 @ 3:39
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Nýr Hyundai Bayon 2021 mættur

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
03/03/2021
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 6 mín.
269 17
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Nýr Hyundai Bayon 2021 mættur

  • Lítill Hyundai Bayon „sportjeppi“ án fjórhjóladrifs frumsýndur og býður upp á nóg af hagkvæmni, skörpu útliti, háþróaðri tækni og er með milda blendingsdrifrás

Sportjeppar vinna stöðugt á í  sölu og þess vegna er Hyundai að styrkja framboðið sitt með nýjum Bayon, litlum „crossover“, sem er áskorandi Renault Captur, Ford Puma og Peugeot 2008.

Í raun sýna þessir keppinautar hversu fjölmennur þessi geiri markaðarins er þegar, en Hyundai Bayon notar nóg af nútímatækni, með sterka tengimöguleika, mildar-tvinnvélar og verndandi öryggistækni til að halda bílnum samkeppnishæfum. Honum er „pakkað“ inn í skarpt útlit sem tekur hönnunarmál Hyundai á enn nýjan stall.

En við erum ekki að tala um „jeppa“ í þeim skilningi hér, bara að því marki að útlit og hönnun eru með jeppayfirbragði, en aukin veghæð og mörg atriði styðja „jeppatilfinninguna“ þótt ekkert sé fjórhjóladrifið.

Ljósin undirstrika hönnunina

Líkt og á stærri Tucson sportjeppa vörumerkisins er lýsing lykillinn að útlitinu hér, með grönn dagljós fyrir ofan stærri, hallandi aðaleiningarnar. Skörp brot á hliðum bílsins minna líka á stærri bróður hans, en örvarlaga afturljósin – tengd með rönd í fullri breidd – vísa til i20 smábílsins.

Aðeins 4,180 mm að lengd og 1,775 mm á breidd eru mál Bayon ekki stór, með minna fótspor en helstu keppinautar þess sem nefndir eru hér að ofan og situr fyrir neðan eigin Kona sportjeppa fyrirtækisins þegar kemur að stærð.

Bayon er því nær „súpermini“ í stærð þar sem hann er sömu breidd þó hann sé 140 mm lengri en i20 bíllinn frá kóreska vörumerkinu. Þeir segjast hafa hámarkað umbúðir á nýja krossover-bílnum og losað um 411 lítra af farangursrými og nóg af fótaplássi að innan, með 2.580 mm hjólhaf. Plássið eykst í 1.205 lítra með því að leggja aftursætin niður.

Verandi 1.490 mm á hæð ætti bíllinn að bjóða upp á góða yfirsýn, en Hyundai heldur því fram að með allt að 183 mm veghæð frá jörðu þegar bíllinn er búinn 17 tommu álfelgum (16 tommu álfelgur eða 15 tommu stálfelgur munu einnig verið fáanlegur eftir búnaðarstigi)-  eða eins og Hyundai segir: Alvöru sportjeppi.

„Með skörpu útliti og samþættingu lykilhönnunarþátta sportjeppa frá Hyundai, styrkir Bayon hönnunarstefnu sportjeppa Hyundai,“ sagði sstjórnandi hönnunar hjá Hyundai, Luc Donckerwolke.

Nýr Hyundai Bayon: tækni og tenging

Bayon erfir tæknina frá i20-bílnum, með tvær mismunandi uppsetningar upplýsinga- og margmiðlunarskjá. Sá fyrri er átta tommu snertiskjár sem er með Android Auto og þráðlausan Apple CarPlay (sá fyrsti í þessum stærðarflokki, samkvæmt Hyundai), sem notar snjallsímann þinn til að fá leiðsögnina. Hinn kosturinn er 10,25 tommu snertiskjákerfi með innbyggðu leiðsögukerfi, með svipaða tækjatengingu.

10,25 tommu stafrænt mælaborð er til staðar, en uppfært Bose hljómkerfi og þráðlaus hleðsla verður einnig á boðstólum, allt eftir stigi búnaðar.

Allar gerðir fá þrjú USB tengi – tvö að framan og eitt að aftan, þannig að farþegar geta haldið tækjum sínum hlöðnum óháð tækinu sem notað er í tengingarskyni.

Hyundai bætir tengibúnaðinum með nýjustu þjónustu sinni af Bluelink. Þetta þýðir að Bayon eigendur geta búið til sína eigin notendaprófíla, auk þess að samstilla Google eða Apple dagatal símans við bílinn – ef dagbókarfærsla hefur heimilisfang tengt er hægt að flytja þessar upplýsingar inn í gagnaflutning bílsins.

Einnig er boðið upp á tengda leið, sem notar skýjatengda leiðsögn til að fá nánari leiðbeiningar, en upplýsingar um bílastæði munu veita þér verð og framboð á bílastæðum í nágrenninu, þar með talið bílastæði á götum.

Nýr Hyundai Bayon: öryggi

Tækni Bayon nær til þess verndarstigs sem í boði er. Þessi sportjeppi verður líklega notaður af fjölskyldum og því eru til nóg af SmartSense virku öryggiskerfum Hyundai til að vernda farþega. Fullar tæknilýsingar hafa ekki enn verið staðfestar, en þegar kemur að öryggiskerfum segir Hyundai að „mörg þeirra séu þegar innifalin í staðalbúnaðinum“.

Þetta felur í sér aðstoð við akstur í akreinum, hálfsjálfstæð akreinaraðstoð, uppgötvun til að forðast árekstur við gangandi og hjólandi vegfarenda auk sjálfstæðrar neyðarhemlunar, háuljósaaðstoðar, viðvörunar ökumanns, blindblettaviðvörunar og viðvörunar um þverumferð að aftan.

Einnig er viðvörun farþega í aftursæti sem greinir hreyfingu í aftursætum og lætur bílstjórann vita áður en hann yfirgefur bílinn, en Bayon mun einnig vara þig við að bílar fari á undan þér í biðröð ef þú tekur ekki eftir því .

Nýr Hyundai Bayon: vélar, afköst og CO2

Það kemur ekki á óvart að Bayon deilir miklu af mótorlínu sinni með i20 supermini vörumerkisins, með 1,0 lítra þriggja strokka túrbóvél sem er styrkt með 48 volta mildblendingstækni.

Hins vegar, til viðbótar við 99 hestafla aflrás sem er fáanleg í i20 línunni, er Bayon einnig með 118 hestafla afbrigði. Bíllinn verður boðinn með sex gíra iMT greindri handskiptingu Hyundai og sjö gíra tvískiptri sjálfskiptingu.

Fyrri uppsetningin fjarlægir beina tengingu milli fótstigs kúplingar og kúplingsdisksins sem situr milli vélarinnar og gírkassans og kemur í staðinn fyrir rafræna skynjara og virkjun til að tengja og aftengja kúplinguna.

Reynsla þeirra hjá Auto Express af þessu kerfi í i20 er jákvæð, þar sem tæknin bregst við eins og venjuleg handskipting, en kippir vélinni út á snjallan og kveikir á henni þegar þú snertir bremsuna eða inngjöfina.

Það eru þrjár mismunandi akstursstillingar í boði – Eco, Normal og Sport – þar sem sú síðarnefnda er með samsvarandi aðgerð fyrir iMT gírkassann.

Báðar vélarnar bjóða upp á sama tog, eða 172 Nm. 99 hestafla 1.0 T-GDi gerðin kemur bílnum frá 0-100 km/klst á 10,7 sekúndum með sex gíra iMT gírkassanum, en sjö gíra DCT-skiptingin tekur sekúndu lengri tíma til að ná þessu.

118 hestafla gerðin er þrjá tíundu úr sekúndu lengur en öflugu systkinin að ná 0-100 km/klst sinnum, bæði í handskiptri og sjálfskiptri stillingu.

Enn liggja ekki fyrir hvenær þessi nýi knái bíll frá Hyundai muni koma á markað í Evrópu og á til hvaða landa, en við göngum út frá því að það verði ekki innan langs tíma.

(byggt á vefsíðu Hyundai og frétt á Auto Express – myndi Hyundai)

Fyrri grein

2021 Jeep Wrangler og Renegade Islander koma með vortilfinningu

Næsta grein

Bílarnir í lífi Bandaríkjaforseta

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Höf: Jóhannes Reykdal
28/06/2025
0

Breytingin í jeppaheiminum er mikil með tilkomu rafbílanna og Peter Johnson hjá electrek-vefnum í Bandaríkjunum var að birta grein um...

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Höf: Jóhannes Reykdal
22/06/2025
0

Land Rover Defender Trophy Edition mun líklega finna heimili á bílastæðinu við knattspyrnuvöllinn, en hann gæti líka gert það í...

Næsta grein
Bílarnir í lífi Bandaríkjaforseta

Bílarnir í lífi Bandaríkjaforseta

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.