Nútímalegur rafmagns-smábíll á um 912.000 krónur

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Nútímalegur rafmagns-smábíll á um 912.000 krónur

Bílarisinn Geely, í gegnum dótturfyrirtæki sitt Geometry í Kína, kemur með rafmagns smábíl sem er tæplega þriggja metra langur, 41 hestafl og kostar aðeins 6.000 evrur, eða sem samvarar um 912.000 íslenskum krónum á markaði í Kína .

Kynnum Geely Panda mini

Geely hefur kynnt nýjan Geely Panda lítinn rafbíl sem mun keppa við bíla á heimamarkaði sem bera nöfn eins og Wuling Mini EV, Chery QQ Ice Cream, Changan Lumin Corn og BAW Yunbao.

Þetta er mjög ódýr bíll, jafnvel þegar horft er til verðs á kínverskum markaði

Geely Panda mini hét upphaflega Geometry M2. Geometry er annað Geely Group vörumerki sem framleiðir rafknúin farartæki á viðráðanlegu verði.

Hins vegar ákvað fyrirtækið að flytja bílinn yfir á Geely vörumerkið og endurnefna hann.

Geely segir að hönnun Panda mini hafi verið innblásin af panda bangsanum.

Ljósin eru augun og hjólin eru klærnar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Geely gefur út bíl sem dregur útlit sitt frá pöndum.

Frá 2009 til 2016 seldi fyrirtækið Geely GLeagle Panda.

Geely Panda mini er afturhjóladrifinn bíll. Mótorinn er á afturöxlinum. Rafhlöðupakkinn er staðsettur í miðjunni neðst á bílnum. Hleðslutengin er að framan.

Geely er að selja tvö afbrigði af Panda mini. Grunnbíllinn er með 27 hestafla rafmótor. með 85 Nm togi og 9,61 kWh rafhlöðu.

Hámarkshraði er 100 km/klst og drægni er 120 km samkvæmt CLTC-ferlinu.

Toppútgáfan er búin 41 hestafla rafmótor. með 110 Nm togi og rafhlöðugetu upp á 17,03 kWh.

Hámarkshraðinn er sá sami og drægnin er 200 kílómetrar samkvæmtCLTC.

Bíllinn er með 9,2″ mælaborðsskjá og 8″ miðjuskjá. Það er Bluetooth fyrir símatengingar, kallkerfisaðgerðir og miðlun áfangastaðaupplýsinga.

Í gegnum app geturðu fjarlæst Panda, kveikt á loftkælingunni, opnað skottið, og ýmislegt svoleiðis.

Það er enginn bíllykill, þú notar símann þinn og Bluetooth til að opna. Þetta virkar sjálfkrafa þegar þú hefur sett það upp.

Stærðir ökutækis eru 3065 x 1522 x 1600 mm með 2015 mm hjólhaf.

Þyngd hans er 715 kg í yngri útgáfunni.

„Gírskiptingin“ og hnappar til að opna hliðarrúðurnar eru á litlum palli á milli sætanna.

Panda hefur tvær akstursstillingar, Sport og Normal, og er með þremur endurhleðslu þrepum til að endurheimta orku.

Bíllinn er 3.065 mm á lengd, 1.522 mm á breidd og 1.600 mm á hæð. Hjólhafið er 2.015 mm  og eiginþyngd hans er 797 kg.

Hann er með 30 kW / 41 hestafla rafmótor og hámarkshraði er takmarkaður við 100 km/klst.

Og verðið: þau eru á bilinu sem svarar 835.000 til rétt liðlega einnar milljón ISK í Kína.

(DigitNews, ArenaEV, Auto Motor og Sport)

Svipaðar greinar