Laugardagur, 28. júní, 2025 @ 8:06
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Munro Mk1 er rafknúinn keppinautur við Ineos Grenadier með 375 hestöfl

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
12/12/2022
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 4 mín.
274 12
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Munro Mk1 er rafknúinn keppinautur við Ineos Grenadier með 375 hestöfl

Sprotaffyrirtækið er fyrsta fyrirtækið til að setja upp bílaframleiðsluaðstöðu í Skotlandi í meira en 40 ár

Skoska sprotafyrirtækið Munro mun takast á við væntanlegan Ineos Grenadier með harðgerðum jeppa sem fer hvert sem er – munurinn er að þessi er aðeins rafbíll.

Við fjölluðum um það að þessi rafjeppi væri á leiðinni hér á vefnum í september, en núna er sem sagt búið að frumsýna gripinn.

Munro Mk1, sem var nýlega afhjúpaður í Edinborg og nefndur eftir heiðurstitilnum sem gefinn er hvaða skosku fjalli sem er yfir 3000 fet að hæð (914 metrar), mun Munro Mk1 koma á næsta ári í fimm dyra útgáfu, með verð frá 59.995 pundum (um 10,4 milljónir ISK) (atvinnunotendur geta slegið virðisaukaskatt af þeirri tölu) .

Afhendingar til frumkvöðla eiga að hefjast árið 2023 og ná til allra viðskiptavina árið 2024.

Með köntuðu útliti sýnir MK1 sig sem meira í stíl herbíla en nýr Defender, markvisst laus við skraut og óþarfa dót.

Það er áberandi að yfirmaður hönnunar Munro, Ross Compton, vann einnig að svipaðri nytjahönnun fyrir bandaríska fyrirtækið Bollinger Motors – samkeppnisaðila rafknúinna, kassalaga torfærubíla.

Hefðbundið hús-á-grind smíði felur í sér val um gúmmí eða gegnheilar festingar, en yfirbyggingin sjálf inniheldur hagnýta eiginleika eins og ytri skápa fyrir búnað.

Þó að upphafslotan verði handsmíðuð ætlar Munro að opna verksmiðju með afkastagetu til að framleiða allt að 2500 bíla á ári, sem gerir það að fyrsta framleiðanda til að framleiða bíla í magni í Skotlandi síðan Peugeot-Talbot verksmiðjan í Linwood lokaði í 1981.

Munro Mk1 kemur á næsta ári í fimm dyra útgáfu – sem er ekki svo mjög frabrugðin gamla góða Land Rover í útliti – og ekki heldur væntanlegum Grenadier.

Fyrir utan nýja aflrásina eru margar forskriftir Munro eins og hefðbundinn torfærubíll. Hann situr á undirvagni með stigagrind og notar hefðbundna uppbyggingu öxla á báðum endum, með varanlegu fjórhjóladrifi, hefðbundnu miðlægu mismunadrifi og valfrjálsum driflæsingum að framan og aftan.

Afl kemur frá einum mótor, sem sendir drif í hvert hjól með vélrænum hætti í gegnum tveggja hraða millikassa, sem gefur þannig lágt svið drifhlutfalls.

Sem slíkur tekur hann nokkurn veginn þveröfuga nálgun við væntanlegan rafknúna Mercedes-Benz EQG með einstökum hjólamótorum sínum með samþættri tveggja gíra gírskiptingu.

Munro mun bjóða upp á bæði 295bhp og 375bhp mótorvalkosti, auk þess að bjóða upp á 61kWh og 81kWh rafhlöður, sem dreift er í þrjá aðskildar pakka, einn á milli grindarinnar og tveir staðsettir þar fyrir ofan.

Öflugri mótorinn verður aðeins fáanlegur með stærri rafhlöðunni.

Í sínum hagkvæmasta búningi stefnir Munro á 305 km drægni samkvæmt WLTP-staðli. Mk1 mun styðja AC hleðslu við 7kW og 22kW auk DC hraðhleðslu.

Öflugri mótorinn mun gefa 0-100 km/klst tíma upp á 4,9 sek. Hámarkshraði er takmarkaður við 128 km/klst.

Mk1 situr á 3300 mm hjólhafi, en mjög lítið yfirhang þýðir að hann er aðeins 4590 mm langur.

Bíllinn er 170 mm styttri en Land Rover Defender 110 og 500 mm styttri en nýi Defender 130.

Mk1 státar líka af mjög áhrifamiklum tölum varðandi torfærugetu, þar sem Munro er sagður vera með 480 mm veghæð frá jörðu – miklu meira en annað hvort loftfjöðraður Defender eða Grenadier. 84° aðkomuhorn, 51° brottfararhorn og 31,6° hallahorn, ásamt því að vaðdýptin er 800 mm.

Fullyrt er að eiginþyngd bílsins sé um 2500 kg, sem er létt miðað við staðla.

Mk1 er einnig með 1.000 kg farmgetu – sem gerir það kleift að líta á hann sem atvinnubíl af skattalegum ástæðum – og krossviðarfóðrað hleðslurými sem getur hýst Evrópubretti.

Hann getur líka dregið hemlaðan eftirvagn allt að 3500 kg.

Þó að hann búist við því að Mk1 muni höfða til sumra „lífsstílkaupenda“, sagði Munro að hann væri hannaður fyrir vinnu og nefndi byggingar-, námu- og landbúnaðargeirann sem líklega viðskiptavini.

Farþegarýmið er með harðgerðri byggingu og rofabúnaði sem hannaður er til að stjórna með hanska.

Hann er einnig með tvöfalda þráðlausa símahleðslupúða og tvær 240V innstungur sem geta knúið tæki, þar á meðal örbylgjuofna og katla.

Tvöfaldur DIN mælaborðsskjárinn er samhæfður við bæði Android Auto og Apple CarPlay.

(fréttir á vefsíðum Autocar og Auto Express)

Fyrri grein

Volvo EX30 borgarbíll kemur á markað á næsta ári sem grunngerð

Næsta grein

Apple frestar sjálfstýrða bílnum sínum

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Höf: Jóhannes Reykdal
22/06/2025
0

Land Rover Defender Trophy Edition mun líklega finna heimili á bílastæðinu við knattspyrnuvöllinn, en hann gæti líka gert það í...

Nissan Leaf árgerð 2026 kemur með allt að 485 km drægni

Nissan Leaf árgerð 2026 kemur með allt að 485 km drægni

Höf: Jóhannes Reykdal
21/06/2025
0

Nissan Leaf árgerð 2026 markar miklar breytingar fyrir rafbílinn frá Nissan, sem kalla má brautryðjanda rafbílanna. Þriðja kynslóð Leaf, sem...

Næsta grein
Apple frestar sjálfstýrða bílnum sínum

Apple frestar sjálfstýrða bílnum sínum

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025
Bílaframleiðsla

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

23/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.