Morgan hættir með stálgrind sem notuð hefur verið frá 1936
Núverandi og nýjar gerðir verða með CX kynslóð álundirvagns
HFS Morgan, samnefndur eigandi breska sportbílaframleiðandans, byrjaði sína framleiðslu árið 1908 með því að smíða þriggja hjóla bíla sem knúnir voru tveggja strokka V-mótorhjólamótorum.
Hann smíðaði fyrsta bílinn á fjórum hjólum árið 1936 á stálgrind og kallaði hann 4-4 vegna þess að hann var með fjögurra strokka vél og fjögur hjól. Þessi grunnuppbygging undirvagnsins er enn í notkun í dag, en ekki mikið lengur.

Bílaframleiðandinn tilkynnti að frá og með árinu 2020 muni þeir hætta með stálgrindina sem er í núverandi 4/4, Plus 4 og V6 Roadster.

Ný kynslóð CX undivagnsins, sem kemur í staðinn, mun verða úr styrktu áli sem var frumsýnd á Morgan Plus Six á bílasýningunni í Genf á þessu ári.
Önnur tilraun Morgan tengd áli
CX arkitektúrinn er önnur leið Morgan tengd áli, bílafyrirtækið notaði styrktan og hnoðaðan álundirvagn fyrir Morgan Aero 8 og Plus 8 við síðustu aldamót.

Ástæðurnar fyrir því að fara aftur í léttan málm eru þær sömu núna og þær voru árið 2001, sagði Steve Morris, forstjóri Morgan, „Við gerum okkur grein fyrir þörf fyrir bíl sem fellur að vaxandi þörfum viðskiptavina okkar, sem og framtíðarkröfur laga.“

Undirvagn sem vegur aðeins 97 kg
Glænýr undirvagn sem er þróaður innan fyrirtækisins og vegur aðeins 214 pund táknar einnig gríðarlega fjárfestingu fyrir bílaframleiðandann sem smíðaði 850 bíla árið 2018, svo búist er við að sjá framboð Morgan stækka með nýjum gerðum og nýjum vélum.

Morgan hefur þegar sagt að bílarnir í framtíðinni muni bjóða upp á vélar minni en BMW 3,0 lítra sex strokka línuvélina í Plus Six, og handskipta gírkassa.

Talið er að vísbending Morris þýði komu 2,0 lítra fjögurra strokka BMW undir langt vélarhús Morgan og sex gíra handskiptan gírkassa.
Hátíðarútgáfa væntanleg
Maður lætur 83 ára fjölskyldumeðlim ekki hætta störfum án tilefnis og því ættum við að búast við að minnsta kosti einni hátíðargerð á gömlu stálgrindinni árið 2020. Næsta ár mun „skapa tækifæri fyrir okkur til að halda upp á mikilvægi fráfarandi hefðbundinnar stálgrindar og framlag hennar til merkisins“, sagði Morris og að þeim „ hlakki til að halda upp á það með viðeigandi hætti“.



