MG mun setja tvo rafbíla á markað í Evrópu á næsta ári

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

MG mun setja tvo rafbíla á markað í Evrópu á næsta ári

Gamla góða bílamerkið MG, sem einu sinni var frægt merk fyrri breska sportbíla, er nú komið í eigu kínverskra aðila. Ekki hafði mikið heyrst til þeirra fyrr en þeir gerðu „innrás“ á Evrópumarkað með litla rafbílnum ZS, sem var kynntur hér á landi hjá BL í júní á þessu ári.

Síðar tilkynnti MG um komu tengitvinnbílsins HS í september síðastliðnum, en sá bíll er væntanlegur á Evrópumarkað á fyrsta ársfjórðungi 2021.

MG Motor mun setja tvo nýja rafknúna bíla á markað í Evrópu þar á meðal „flaggskip“ sportjeppa á næsta ári þar sem kínverska vörumerkið notar rafvæðingu til að ýta bílunum inn á fleiri markaði.

Árangur ZS litla rafbílsins hefur orðið til þess að sala bíla frá MG í Evrópu jókst um 112 prósent í 21.672 eintök fyrstu 10 mánuðina, samkvæmt upplýsingum frá JATO Dynamics, þrátt fyrir að vörumerkið seljist á örfáum mörkuðum, þar á meðal í Bretlandi og Noregi ásamt Íslandi.

MG Europe bætti Hollandi og Frakklandi við á þessu ári og mun hefja sölu í Þýskalandi, á Ítalíu, Spáni og Portúgal frá því snemma á næsta ári ásamt öðrum mörkuðum, staðfesti evrópski forstjórinn, Matt Lei, í kynningu á netinu 7. desember.

MG, sem er í eigu SAIC í Kína, hefur nýlega hafið sölu á MG5 rafknúnum sendibíl og er nú að hefja sölu á EHS tengitvinnsportjeppa sem mun byrja frá 34.000 evrum (um 5,4 milljónum ISK).

Á næsta ári mun vörumerkið kynna nýjan rafknúinn sportjeppa auk annars rafbíls, sagði Lei. „Eftir að hafa hleypt af stokkunum ZS EV og ESH tengitvinnbílnum erum við að byggja vandlega upp framboð okkar í Evrópu,“ sagði hann.

MG sýndi bílana tvo undir yfirbreiðslu í kynningu 7. desember.

Flaggskip sportjeppans  „sýnir hvað vörumerkið er fært um að gera, ekki aðeins hvað varðar tækni og afköst, heldur einnig hönnun,” sagði Lei.

Búist er við að bíllinn verði MG-útgáfa af Marvel X meðalstórum sportjeppa frá systurmerki MG í Kína, Roewe.

Talið er að flaggskip MG verði svipað Marvel-sportjeppanum frá systurfyrirtækinu Roewe í Kína.

Marvel X er fáanlegur með fjórhjóladrifi sem er með tveimur mótorum til að gefa honum hröðun frá 0 til 100 km/klst á 4,8 sekúndum, sagði Roewe á vefsíðu sinni. Bíillinn er með 52 kílóvattstunda rafhlöðu og drægi um 370 km samkvæmt NEDC prófunarkerfinu, þó að evrópskar gerðir gætu verið með stærri rafhlöðu. Gerðin með drifi á afturhjólum er lengra aksturssvið, eða um 403 km.

Hinn rafbíllinn er minni og lægri og leit út eins og hærri gerð stationbíls undir ábreiðunni.

Lei gaf til kynna að það væri enginn keppinautur eins og er. „Sá neðri er einstakur í sínum flokki og sýnir að vellíðan í notkun, skilvirkni og hreyfanleiki án losunar fara vel saman,“ sagði hann. „Við munum vera virk í rafbílum í stærðarflokkum sem keppinautar hafa ekki einu sinni kannað.“

MG er valið útflutningsmerki SAIC en Roewe er flaggskip vörumerki þess fyrir Kína. ZS EV er eini rafknúni bíllinn sem MG selur í Kína.

(Automotive News Europe)

Svipaðar greinar