Jeep Wrangler Rubicon verður 20 ára

140
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Jeep Wrangler Rubicon verður 20 ára

Jeep fagnar 20 ára afmæli hins þekkta Jeep Wrangler Rubicon

Jeep heldur Wrangler Rubicon veislu nú þegar þetta tákn torfærubíla er á 20. framleiðsluári sínu.

Vegna hátíðarinnar kemur útgáfa á 2023 Jeep Wrangler Rubicon 4Xe og Jeep Wrangler Rubicon 392 „20 ára afmælisútgáfa“, ásamt glitrandi valfrjálsum pakka sem Jeep kallar „Level II Upfit“.

Útgáfan verður takmörkuð við 150 bíla og verður á ríflegu yfirverði umfram venjulegar afmælisgerðir en lofar á móti að skila hæfasta Jeep Wrangler frá MOPAR. Hann verður á 37 tommu dekkjum og með mikið uppfærðri fjöðrun frá American Expedition Vehicles.

Þegar farið er aftur til frumgerðarinnar um aldamótin síðustu, var Wrangler Rubicon að öllum líkindum fyrsti framleiðslujeppinn til að státa af þeirri getu sem áhugamenn þráðu og sem aðdáendur Wrangler sneru sér til eftirmarkaðarins til að ná.

Fyrir 2002 voru til prentuð tímarit, bæklingar og efni tileinkuð því að breyta Wrangler í torfærutröll með eftirmarkaðsíhlutum og uppfærslum.

Mörgum klukkustundum sólarhringsins var vel varið í að skoða Mickey Thompson felgur, krómaðar framgrindur, Hella ljós og fjöðrunaríhluti til að útbúa hinn fullkomna jeppa.

En svo birtist Wrangler Rubicon, svonefndur eftir Rubicon slóðinni í Sierra Nevada fjöllunum í Bandaríkjunum – frekar en hið fræga rómverska fljót.

Nafnið bar með sér sömu tilfinningu að fara yfir „þröskuld“ sem ekki var aftur snúið, nema Wrangler Rubicon hafði getu til að fara yfir þann þröskuld og tilbaka beint frá verksmiðjunni.

Hér er stutt yfirlit yfir framvindu Rubicon, sem leiðir til 20 ára afmælisútgáfunnar:

Það er ekki mikið meira sem við getum minnst á varðandi fyrstu kynslóð Jeep Wrangler Rubicon en það sem Angelina Jolie gerði, sem ók þessum töfrandi Wrangler Rubicon í hinni oft illkvittnu Laura Croft: Tomb Raider framhaldskvikmynd frá 2003.

Þessi Jeep Wrangler Rubicon brenndi torfærubílinn inn í huga minn sem ímynd torfærugetu Jeepsins.

En Jeep gefur smá útskýringu á uppruna Rubicon og fyrrum stjórnandi Jim Morrison útskýrir að:

Fyrir tuttugu árum kom saman lítill hópur áhugasamra jeppaverkfræðinga, þekktir undir nafninu „Lunatic Fringe“, með þrótt og einurð og sín eigin kreditkort. Það var teiknað, hannað og þróað. Úr varð hæfasti Wrangler hingað til – Jeep Wrangler Rubicon – og þar var aldeilis komið til móts við ansi margar væntingar – vegna þess að þeir vissu að það var það sem viðskiptavinir Jeep vildu.

Í því skyni kom upprunalegi Wrangler Rubicon með læsanlegu mismunadrifi að framan og aftan, nautsterku millifærsluhylki með 4:1 lágdrægni og Dana 44 ása.

Hann kom einnig með 31 tommu torfæruhjólbarða sem staðalbúnað.

Andlitslyfting upprunalega Rubicon kom árið 2007, eftir að Jeep Wrangler fékk auka hurðapar.

En í þágu sanngirni var tveggja dyra gerðin enn valkostur og Wrangler Rubicon JK kom einnig með uppfærslum á fjöðrun, þar á meðal rafrænt aftengjanlega sveiflustöng að framan og aðeins stærri dekk en áður – nú  32 tommur.

Næsti stóri áfangi fyrir Wrangler Rubicon kom með JK kynslóðini árið 2013, þegar Rubicon varð 10 ára.

Þessi fyrri Wrangler afmælisútgáfa kom með sterkari grjótgrindum en fyrri Rubicon gerðir og endurhannaða stálstuðara að framan og aftan.

Bíllinn var einnig með aðeins meiri fjöðrunarlyftu frá verksmiðjunni sem bætti við hálfri tommu af veghæð.

Á þessum tíma var Wrangler Rubicon orðinn rótgróinn í ímynd sinni sem fjögurra dyra jeppi.

Þessi Wrangler Rubicon fékk einnig stærri 33 tommu dekk og bætt skriðhlutfall fyrir beinskiptingu sína – fyrir þá sem eru hrifnir af handskiptingunni.

Wrangler Rubicon, sem kom út fyrir komandi afmælisútgáfu, olli miklum breytingum á jeppanum í formi rafvæðingar.

Wrangler Rubicon var nú brunavélarknúinn 4X4 í tengitvinnbíl með rafhlöðu og rafmótor sem náði 33 km hreinni rafmagnsdrægni.

Auðvitað vildi Jeep líka gefa aðdáendum bensínknúinn valkost, svo hann bauð upp á Rubicon 392 knúinn V8.

Aðrar athyglisverðar uppfærslur innihéldu möguleika á stærri 35 tommu dekkjum til að passa við stærri afltölur hinnar öflugu V8-vélar.

Allir þessir Wrangler Rubicon-jeppar leiddu til sköpunar nýjustu gerðarinnar.

Skelltu ef til vill mynd af nýjasta Jeep Wrangler Rubicon á skjáborðið á tölvunni, Jeppinn sem lítur út alltaf eins þrátt fyrir 20 ára aldur:

En fyrst, setjum söguna í samhengi og berum saman forskriftir fyrir nýjasta Jeep Wrangler Rubicon og eitthvað af því sem 20 ára afmælisútgáfurnar munu koma með.

20 ára afmæli Wrangler Rubicon 2023 verður með nýju sjö raufa grilli, felgum sem hæfa, 83 stykkja verkfærasett, þrefalda grindarvörn, stálstuðara og hálftommu upphækkun.

Hann mun einnig koma með 20 ára afmælismerki á afturenda og á gírstönginni.

Rubicon 4Xe 20th Anniversary mun koma með 33 tommu BF Goodrich dekk og hálf tommu fjöðrun sem gefur honum 11,2 tommu veghæð og 32 tommu getu varðandi vaðdýpt.

Rubicon 392 20th Anniversary kemur með 35 tommu dekkjum og loftpressu um borð til að blása lofti í þessi stóru dekk upp eða niður.

Stærri dekkin og hálf tommu lyftan gefa þessum Rubicon 28 cm í veghæð og 87,6 cm vaðdýpt.

Valfrjálsi pakkinn frá „American Expedition Vehicles“ tekur Wrangler Rubicon 20 ára afmælisútgáfuna miklu lengra með fyrstu 37 tommu dekkjunum frá BF Goodrich, Warn-spili, 17 tommu AEV-felgum og í rauninni alla undirvagnsvörn sem hægt er að hugsa sér og uppfærslu á fjöðrun frá AEV og Bilstein höggdeyfa.

Breytingarnar gefa þessari takmörkuðu útgáfu Rubicon 36 cm veghæð og mun láta jeppann vaða í gegnum 94,2 cm af vatni.

Rúmfræðin fyrir Level II Rubicon-jeppann er 50 gráðu aðkomuhorn, 33 gráðu brot og 43 gráðu brottfararhorn.

Það verða aðeins 150 eintök af þessum gerðum framleiddar, og þær munu kosta 91.568 $ fyrir Wrangler Rubicon 4Xe 2023, eða 111.030 $ fyrir Rubicon 392. Hægt er að byrja panta í þessum mánuði.

(frétt á vef Jalopnik – myndir Jeep)

Svipaðar greinar