Hyundai með fulla beygju á öllum hjólum

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Hyundai með fulla beygju á öllum hjólum

Hyundai Ioniq 5 með „e-corner“ getur snúið hjólunum  90 gráður
Frumgerðin sem kynnt var á CES getur líka snúist í 360 gráður, ekið á ská og snýst eins og lyftari

Hyundai Mobis, varahluta- og deild sjálfvirks aksturs hjá Hyundai, kynnti frekar magnaða hjólastýringu sem sett var á frumgerð Ioniq 5 á tæknisýningunni 2023 Consumer Electronics Show (CES) í Las Vegas á dögunum.

Kallaður e-Corner, er búnaður sem inniheldur rafmótor, rafmagnsdempara og hemlar með fjartengingu og er með stýri með fjartengingu. Þetta gerir hugmyndina að mögnuðum eiginleika sem hægt yrði að nýta í úrval rafbíla án þess að sóa nýtingu á plássi inni í bílnum.

Hugmyndin var upphaflega kynnt árið 2018, en búnaðinum var komið fyrir í eitt stykki Ioniq 5 EV, og það er sannarlega áhrifamikið hverju Hyundai náði fram með frumgerðinni.

Kyninningamyndband sem sýnir þetta betur

Eins og sjá má í myndbandinur hér að ofan getur bíllinn snúið hjólunum í 90 gráður í sömu átt, sem gerir bílnum kleift að komast inn og út úr samhliða bílastæði mjög auðveldlega.

Skýringarmyndband frá Hyundai Mobis

En það er ekki allt, þar sem e-Corner kerfið getur í rauninni gert allar hreyfingar sem hægt er að hugsa sér.

Bíllinn er sýndur beygja öllum hjólunum í u.þ.b. 45 gráðu horni, sem fær hann til að snúast 360 gráður sem þýðir að hann beygir hratt og óaðfinnanlega „á staðnum“.

Þar að auki getur bíllinn ekið á ská, rétt eins og GMC Hummer EV. Að auki er hægt að láta hjólin snúast í 90 gráður og aka honum eins og gaffallyftara.

Hyundai Mobis hefur ekki gefið út neinar aðrar upplýsingar um e-Corner tækni sína, en það er ljóst að hún hefur mikla möguleika til að einfalda allt samsetningarferli rafbíla, auk þess að bjóða ökumönnum upp á aukna akstursgetu.

Hugmyndi Hyundai ber líka með sér nútíma endurtúlkun á tækni sem sást fyrst fyrir löngu síðan. Það var í París árið 1927 á nýjum framhjóladrifnum bíl sem verið var að kynna. Það var líka til amerísk uppfinning sem nefnist The Park-Car, sem var kynnt á þriðja áratugnum og fól í sér að bæta við fimmta hjólinu að aftan sem myndi lækka til jarðar til að auðvelda lagningu í stæði.

(frétt á vef insideevs og fleiri vefsíðum).

Þú getur horft á báðar þessar gömlu fréttamyndir hér að neðan:

Fréttamyndin frá París 1927:

„Park-Car“-búnaðurinn frá því um 1930

Svipaðar greinar