Dacia endurræsir Sandero og Logan á nýjum grunni

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Dacia endurræsir Sandero og Logan á nýjum grunni

Nýja kynslóðin í gerðum Dacia, frá vinstri: Sandero Stepway, Logan, Sandero.

PARÍS – Dacia, lággjaldavörumerki Renault Group, er að setja á markað nýjar útgáfur af söluhæstu minni bílunum sínum, að þvía ð fram kemur í frétt hjá Automotive News Europe í dag.

Sandero, Sandero Stepway og Logan munu færast yfir á nýrri grunn frá Renault-Nissan samvinnunni, CMF-B grunninn, frá fyrri BO-grunni frá Nissan.

Renault kynnti á dögunum fyrstu tvo bíla sína á CMF-B grunninum, fimmtu kynslóð Clio og aðra kynslóð Captur, litla sportjeppans.

Dacia sendi frá sér myndir af þriðju kynslóðinni af Sandero og Sandero Stepway á mánudag.

Stepway er sportjeppaafbrigði Sandero-bílnum, með þakbogum, meiri veghæð frá jörðu og svörtum hjólbogaköntum úr gúmmí og öðrum útlitsatriðum. Logan, sem ekki hefur verið seldur í flestum löndum Evrópu síðan 2012, er minni gerð fólksbíls.

Renault sagði að nýju gerðirnar yrðu opinberaðar að fullu 29. september. Ekkert verð eða upphafsdagsetning framleiðslu voru tilkynnt. Núverandi Sandero byrjar á 8.290 evrum í Frakklandi, þúsundum minna en keppinautar hans í smábílaflokknum.

Tákn um nýtt upphaf

Nýju Sandero og Logan gerðirnar tákna eitthvað nýtt upphaf fyrir Dacia. Nýr forstjóri Renault Group, Luca de Meo, tilkynnti í síðustu viku áform um að endurskipuleggja samstæðuna í kringum vörumerki frekar en svæði. Denis le Vot, framkvæmdastjóri svæða, sölu og markaðssetningar, mun bera ábyrgð á Dacia samkvæmt áætluninni.

Renault Group tók árið 1999 fulla stjórn á Dacia í Rúmeníu, sem hafði smíðað Renaults með leyfi síðan seint á sjöunda áratugnum. Árið 2004 undir stjórn þáverandi forstjóra Louis Schweizer var Dacia Logan hleypt af stokkunum á um 6.000 evrur í Rúmeníu.

Sandero Stepway, hægri og grunngerð Sandero eru með mismunandi útlit á framenda.

Metsala árið 2019

Síðan þá hefur Dacia verið fyrirtæki með lykilhagnaði fyrir Renault Group með því að nota formúlu um láglaunaframleiðslu í Rúmeníu og Marokkó og tækni sem hefur sannað sig frá Renault-Nissan samstarfinu. Dacia tilkynnti um besta söluárið sitt árið 2019, með 736.000 ökutæki seld á heimsvísu. Evrópa var með 581.000 af þessum seldu bílum.

Dacia gerðir eru einnig seldar á nýmarkaði og þróunarmörkuðum undir merkjum Renault og Nissan.

Stjórnendur Dacia segja að Sandero sé mest selda gerðin í almennri bílasölu í Evrópu, því ólíkt flestum keppinautum sínum selji Dacia ekki til leigu- eða flotafyrirtækja.

Sandero og Sandero Stepway voru saman í sjötta sæti í smábílaflokknum á fyrri helmingi ársins 2020, samkvæmt tölum frá JATO Dynamics, með 67.737 sölur, sem er 45 prósenta samdráttur frá árinu 2019. Renault Clio leiddi þann hluta, með 118.972 sölur .

Sandero skipaði fjórða sætið í heild sinni árið 2019, með 225.258 sölur, sem er 4,7 prósent aukning miðað við árið 2018. Það var aðeins 2.000 eintökum á eftir Ford Fiesta í þriðja sæti, samkvæmt JATO.

Aðrar komandi Dacia gerðir eru Spring, rafknúinn smábíll sem smíða á í Kína, og ný kynslóð af Dokker, litla sendibílnum, sem er smíðaður í bæði verslunar- og farþegaútgáfu.

Svipaðar greinar