Aftur til framtíðar – Porsche
Það var augljóst að eitthvað varð að gerast. Árið 1948 kom fyrsti bíll Porsche – gerð 356 – fram á sjónarsviðið. Fyrir 75 árum síðan.
Og nú þegar, þegar liðlega fjórar vikur eru komnar af afmælisárinu, fáum við að sjá hvernig þeir hjá Porsche halda upp á afmælið, skrifar Jon Winding-Sørensen hjá BilNorge.
Það er ekkert grín að fylgjast með tegundanúmerum Porsche. Rökrétt? Ekki alltaf. Oft ekki alveg augljós útkoma, of mörg „göt“.
Hversu margir hafa ekki spáð í 357 til dæmis.
Það hefði verið rökrétt að vera með vöru strax á eftir þessum fyrsta bíl, en nei.Hann er ekki til.
360 er til dæmis Cisitalia Grand Prix bíllinn frá 1949 – en það eru enginn sem heitir 357 – fyrr en núna.
Tæplega hálfu ári fyrir raunverulegan afmælisdag, 8. júní 1948.

Meðvindur
Nýi bíllinn heitir auðvitað Vision 357 sem segir kannski til um hvað hann snýst í raun og veru.
Rétt blanda af því sem allt er byggt á og því sem Porsche er í dag.

„Og Porsche hefur verið að sigla í meðbyr“, segir Jon Winding-Sørensen.
„310.000 bílar er 2,6 prósenta aukning miðað við árið 2021.
Og eftir að þeir fóru á markað með 12,5 prósent hlutafjár síðasta haust hefur verðmæti fyrirtækisins hækkað um meira en 25%“.
Hlutur Volkswagen í fyrirtækinu hefur lækkað um 8 prósent á sama tímabili – það bendir til þess að Porsche geti staðið á eigin fótum.

Og þar á bæ hafa menn litið til baka og og rifjað upp hvað gerðist fyrir 75 árum.
Nútíma klassík
Ekki láta blekkjast, þetta er ekki 356 klón. En margt af því gamla er enn til staðar. Hlutföllin og stýrishús er mjög tengt gamla tímanum, langt og lágt að framan og hallandi að aftan sem stoppar þó fyrr en búist var við.
Aftarlega að neðan má sjá þröng op sem benda til klassískrar loftkælingar.
Það er fullt af „retró“ smáatriðum, en á sama tíma kemur það með fullt af nútíma brellum (ljós sem skína í gegnum gagnsæa hluti yfirbyggingar, eða innfellda hurðarhúna til dæmis).
„Við höfum ekki reynt að búa til nýjan 356“, segir Michael Maier, yfirhönnuður.
„Á hinn bóginn höfum við reynt að ímynda okkur bíl sem Ferry Porsche – en hann var mjög virkur á tímum 356 – myndi smíða núna“.
„Og auðvitað skoðuðum við bíl sem myndi aðeins notar rafmagn, en öllum fannst brunavélin flottust“, bætir hann við.

Byggður á Porsche 718
Ef yfirbyggingunni er flett af finnurðu þar Porsche 718 Cayman GT4.
Með 493 hö úr sprækri fjögurra lítra flatri sexu sem notar gervieldsneyti í miðjunni.
Að innan lítur líka út fyrir að þeir hafi hugsað bílinn sem 356.
Bíllinn er greinilega þröngur og það er langt í framrúðu – sem þegar allt kemur til alls er ekki lengur tvískipt, núna er árið 2023.
Auðvitað er líka hægt að kvarta yfir þakinu – fyrsti Porsche var opinn „roadster“.
En þar sem enn eru nokkrir mánuðir í afmælið sjálft, þá er kannski von á annarri afmælisgjöf eftir allt saman?

(frétt á vef BilNorge – myndir frá Porsche)



