Var Chevelle táknmynd hins akandi Kana?
Hann var kynntur í septembermánuði árið 1963; nánar tiltekið þann 26. september. Sé horft á heildarmyndina þá var hann skammlífur. Chevelle kom hins vegar, sá og sigraði frá 1964 til 1977 og var sá bíll sem GM seldi í flestum útfærslum. Allt frá tveggja dyra sporturum og upp í fjögurra dyra skutbíla.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Chevelle var boðinn með allt frá 120 hestafla 6 strokka vélum og upp í 300 hestafla V8 vélar. Dýrari týpurnar voru kallaðar Malibu og þær kraftmestu fengu SS merkið á grillið.
GM staðsetti bílinn á milli Chevy Nova II og Impala bílsins en að auki átti þessi bíll að keppa við Ford Fairlane sem var söluhár hjá Ford. Bíllinn var byggður á grunni Pontiac Tempest, Buick Skylark og Oldsmobile Cutlass.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Það má eiginlega segja að þarna hafi „muscle-bíla“ tímabilið hafist. Með því að setja merki GM, Super Sport (SS) á bílinn og tjúna vélina upp í 350 hestöfl kviknaði ansi mikill áhugi á bílnum. Hins vegar voru bara 200 eintök af Chevelle SS framleiddi á árinu 1965. Bíllinn var hinn venjulegasti í útliti hvað amerískann bíl varðar.
Aðeins hálfu öðru ári eftir útkomu bílsins var hönnun hans tekin í gegn og hann kom með nýju lúkki. Aftur var svo útliti breytt árið 1973 þegar bíllinn kom í fastback útgáfu sem við þekkjum helst frá Novunni.
Upp úr 1978 var Chevelle-inn sleginn af hjá GM en þeir héldu framleiðslu Malibu áfram. Chevrolet Malibu er ennþá framleiddur og ber eitt lífseigasta nafn GM.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Sá bíll sem við sýnum hér er reyndar kannski af aðeins öðrum meiði. Þetta er svokallaður resto-mod bíll sem er í bland gerður upp með nýjum og gömlum hlutum. Þessi er byggður á grunni Chevelle árgerð 1966.
Þessi glæsilegi Chevelle var lífgaður við og endursmíði lauk árið 2021. Í honum er BluePrint LS3 Crate vél sem gefur 548 hestöfl og torkar 687 Nm. Bíllinn er beinskiptur og með BluePrint skiptingu sem hengd er við Crate vélina. 9 tommu afturöxull með 3,5 hlutföllum, vökvastýri, aflbremsur, ný fjöðrun, uppgerð innrétting og sæti, blátannarbúnaður og 18 og 20 tommu felgur (framan/aftan).
Verð bílsins er 155.900 dollarar eða um 20 milljónir króna. Hægt er að gera tilboð í græjuna hér.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Myndir: RK motors.



