Sunnudagur, 29. júní, 2025 @ 4:30
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Þegar þeir gömlu hrökkva í gang er sumarið komið

Malín Brand Höf: Malín Brand
21/04/2022
Flokkar: Fornbílar
Lestími: 5 mín.
281 6
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Að taka sumarbílinn út og aka fyrsta rúntinn er sérstök seremónía. Því fylgir alltaf spenna enda eru sumarbílar flestra fornbílar og þeir gjarnan hafðir í geymslu yfir veturinn. Þess vegna er spennan nokkur þegar aldraðir herramenn eru gangsettir.

Liggur stundum við að maður tárist þegar þeir gömlu hrökkva í gang, rétt eins og þegar nýfætt barn grætur við komuna í heiminn. Það er mögnuð stund og nagandi óttinn víkur fyrir fölskvalausri gleði.

Dálítið ýkt dæmi en þó ekki endilega svo galið.

Ekki amalegur félagsskapur! Mynd/Unsplash.com

Vinkona mín fór með mér að ná í BMW-inn í vetrargeymsluna sumardaginn fyrsta  2020. Ég ar auðvitað alveg í skýjunum að hitta þann gamla og svo þegar rafgeymirinn var tengdur og bíllinn rauk í gang (eins og vanalega) mun ég víst hafa brosað allan hringinn. Það sagði vinkona mín mér og ég brosti reyndar allan daginn. Þetta er nefnilega alltaf svo frábært. „Þú bara ljómar,“ hafði hún á orði.

Hvað þarf að hafa í huga?

Ef það eru einhverjir sem ekki hafa mikla reynslu af öldruðum sparibílum þá eru hér nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga þegar bíllinn er tekinn í gagnið og sóttur í skúrinn/geymsluhúsnæðið.

Þeir sem eru jafnvel eldri en elstu fornbílar vita þetta auðvitað allt og geta þeir bara skoðað myndirnar eða bætt góðum punktum við í athugasemdum á Facebooksíðunni okkar.

Rafleiðslur og almenn athugun

Gott er að horfa vel og vandlega á allt sem undir vélarhlífinni er og kanna hvort einhverjar leiðslur eru nokkuð farnar í sundur eða nokkuð kvikt hafi gert sér bústað á „góðum“ stað. Það er betra að komast að því áður en haldið er af stað.

Þær eiga lítið erindi í bíltúr og vissara er að skoða allt vel ef eitthvað gefur vísbendingu um nagdýraheimsóknir í bílinn. Mynd/Unsplash.com

Olían

Sumir eru á því að það breyti engu hvort skipt hafi verið um olíu eða ekki áður en bíllinn fór í geymslu; alltaf skuli skipta áður en farið er af stað eftir vetrargeymslu.

Nú er ég ekki sérfræðingur í þessu nákvæmlega en þetta hlýtur að eiga sérstaklega við í þeim tilvikum þar sem bíllinn hefur verið voðalega lengi í geymslu. Þ.e. lengur en bara yfir vetrarmánuðina október til apríl.

Til lengri tíma litið er ekki mikill kostnaður í því að skipta um olíu og síu áður en ekið er út í sumarið. Mynd/Unsplash.com

En þetta er í það minnsta ráðlegging frá ekki ómerkara apparati en sjálfu Audi-bákninu og er minnst á að brúsi af olíu og filter sé nú ekki sérlega dýrt í heildarsamhenginu og það er vissulega rétt.

Rétt er að kanna stöðu annarra vökva í leiðinni; hvort eitthvað hafi lekið af bílnum og bæta á eftir þörfum.

Loftþrýstingur

Á hálfu ári eða svo er næsta víst að loftþrýstingurinn í dekkjunum hefur minnkað eitthvað og því gott að freta aðeins í dekkin þannig að þrýstingur verði réttur.

Þetta er auðvitað ýkt dæmi en það er mikilvægt að kanna hvort sprungur eða eitthvað óheppilegt sé sýnilegt á dekkjunum eftir veturinn. Mynd/Unsplash.com

Svo er það bara þessi gamla góða regla: Að horfa vandlega á dekkin til að sjá hvort einhverjar sprungur séu farnar að myndast eða gúlpar o.s.frv.

Eftir að rafgeymirinn hefur verið tengdur og bílnúmerin sett á sinn stað (hafi þau verið tekin af út af tryggingafélögum sem stundum skilja ekki eðli fornbíla) þá er tímabært að setja í gang, leyfa bílnum aðeins að hitna og hlusta vel á nývaknaðan öldunginn.

Fallegur er hann þessi og „vel hirtur“! Mynd/Unsplash.com

Gangi allt „smurt“ og ekkert óvenjulegt sem eyru og augu nema þá ætti fátt ef nokkuð að vera því til fyrirstöðu að hreinlega setja á sig hvítu leðurhanskana og pípuhattinn og aka af stað á gömlu drossíunni.

Þá er sumarið komið.

Tengdar greinar: 

„1955. Árið, sem bílar voru bílar“

Hagnýt ráð í bílaviðgerðum

Að standast bifreiðaskoðun 101

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Hversu óheppinn… eða heppinn?

Næsta grein

Eini bíllinn sem Marilyn Monroe átti með réttu

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

1971 Buick Riviera Boat Tail

1971 Buick Riviera Boat Tail

Höf: Pétur R. Pétursson
25/02/2025
0

1971 Buick Riviera Boat Tail er einstök og táknræn bandarísk bílahönnun sem kom fram á sjöunda áratugnum. Bíllinn var framleiddur...

1987 Ford Sierra RS500 Cosworth

1987 Ford Sierra RS500 Cosworth

Höf: Pétur R. Pétursson
01/02/2025
0

150.0000 pund er verðið sem eigandinn vill fá fyrir gripinn 27.000 mílur - aðeins þrír eigendur frá upphafi Númer 39...

Næsta grein
Eini bíllinn sem Marilyn Monroe átti með réttu

Eini bíllinn sem Marilyn Monroe átti með réttu

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.