Laugardagur, 28. júní, 2025 @ 23:45
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Kannastu við hinn síkáta Fiat Jolly?

Malín Brand Höf: Malín Brand
11/02/2022
Flokkar: Fornbílar
Lestími: 4 mín.
281 3
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Þeir voru nokkrir, hönnuðirnir á sjötta áratug síðustu aldar sem ætluðu sér að slá í gegn hjá ríka og fína fólkinu; með flippuðum „baðstrandarbílum“. Eftirspurn var eftir léttum og nettum bílum, einkum á meðal þeirra efnameiri sem nutu lífsins við strendur Miðjarðarhafsins.  

Ef til vill er þýðing undirritaðrar á enska heitinu „beach buggy“ ekki að allra skapi, þ.e. „baðstrandarbíll“ en látum það liggja á milli hluta. Í það minnsta þar til Árnastofnun færir Bílablogg undir smásjána og nafni síðunnar breytt í „Bifreiðavefleiðari“. Þetta var nú útúrdúr og almennur fíflagangur. Baðstrandarbíll eða strandsnattari – skiptir ekki máli.

Almennilegur sandkornaþjappari

Margar voru hugmyndir hönnuða um slík farartæki  en fáar urðu að raunverulegum og áþreifanlegum sandkornaþjöppurum. Einn hönnuður, hinn rammítalski Giacinto Ghia, sló þó rækilega í gegn með baðstrandarútgáfum nokkurra gerða Fiat, einkum Fiat 500 og 600.

Sagan segir að maður að nafni Giovanni Agnelli, ástríðufullur sjóari og vonarstjarna ítalskra iðnjöfra þess tíma, hafi sem aðstoðarforstjóri Fiat, komið því í kring að hugmyndir Ghia urðu að bílum. Af teikniborðinu yfir á ströndina; og það á fjórum hjólum!

Góður í snekkjuskúrinn

Tilgangurinn með strandsnattaranum var auðvitað í grunninn að auðvelda sjóhundinum og aðstoðarforstjóra Fiat ferðalagið frá tveggja mastra skútunni á næstu knæpu. Eins og skrifað hefur verið um, til dæmis hér, er beinlínis kjánalegt að sigla um heimsins höf en vera svo „strand“ í hverri höfn; bíllaus og bjánalegur.

Jú, mikil ósköp! Þörf var á smellnum smábíl sem hæglega mætti koma fyrir í skútum og snekkjum. Bíl sem auðvelt væri að skottast á „beint úr bát“ án þess að sjó- og vegfarandi tapaði myndugleika sínum. Sjálfsvirðingin mátti ekki falla milli skips og bryggju og þar kom Carozzera Ghia til sögunnar; fyrirtæki fyrrnefnds Giacinto Ghia. Ghia hafði m.a. unnið með framleiðendum á borð við Ferrari, Ford og Volkswagen.  

Burt með óþarft dót

Á ströndinni ætti ekki að flækja hlutina. Fyrsti strandbíllinn var gerður „úr“ Fiat 500 ´57; Dyr, þak og rúður (fyrir utan framrúðuna) fengu að flakka og í stað bólstraðra sæta voru sætin úr basti (tágasæti). Bastið er nefnilega ekki eins viðkvæmt og tauáklæði fyrir salti og bleytu. Hugsunin var að sjálfsögðu sú að bíleigendur gætu farið beint upp úr sjónum og upp í bíl – beint á barinn! Eða eitthvað í þá veru. Við hér á Íslandi erum ekki endilega svo vel að okkur þegar kemur að hegðun á baðströndum.

Í heimalandinu, Ítalíu, varð strandsnattarinn þekktur undir nafninu „La Spiaggina“ („Strendillinn“ leyfir blaðamaður sér að spinna) en út í hinum stóra heimi festist nafnið Jolly við hann.

Vinsæll á meðal stjórstjarna

Gleðigjafinn Jolly kostaði tvisvar sinnum prísinn á grunnbílnum sem ól hann. Þrátt fyrir að innihalda mun færri hluti en sá upprunalegi. Vel þekktir einstaklingar voru á meðal þeirra sem fyrstir eignuðust Jolly og má þar m.a. nefna skipakónginn Íslandstengda, Aristotle Onassis (sem sagt er að hafi átti þrjá svona bíla, takk fyrir!), leikarann Yul Brynner (sem hafði snattarann með í snekkju sinni og notaði sem golfbíl), kábbojann John Wayne og forseta Bandaríkjanna; Lyndon B. Johnson.

Fáir gleðigjafar framleiddir

Sagt var að hver og einn Jolly væri alveg spes. Engir tveir væru nákvæmlega eins. Eflaust er það rétt því hver bíll var sniðinn eftir óskum kaupandans. En þeir voru sannarlega ekki fjöldaframleiddir, Jolly-arnir, og talið er að innan við hundrað slíkir fyrirfinnist í heiminum í dag. Þar hefur saltið og gluggaleysið örugglega eitthvað að segja en hvað veit maður!

Árið 1958 fékk Ghia 200 stykki af Fiat 600 sem urðu að Jolly útfærslum. Þess má geta að 32 þeirra voru brúkaðir sem leigubílar á eyjunni Catalina við Los Angeles á árunum 1958-1962.

Vart þarf að geta þess hversu eftirsótt þau eru, þessi fáu eintök sem eftir eru af Fiat Jolly. Safnarar eru margir hverjir reiðubúnir að greiða fúlgur fjár fyrir slíkan strandsnattara og má til dæmis nefna að árið 2015 greiddi bílasafnari nokkur í Arizona rúmlega 170.000 dollara fyrir 1960 árgerðina af Fiat Jolly 600. Það eru rúmlega 20 milljónir íslenskra króna! Annar seldist hjá Sotheby´s á 106.000 dollara í maí síðastliðnum.

Meðfylgjandsi myndband ætti að segja allt sem segja þarf um hinn síkáta Fiat Jolly:

Fyrri grein

8. nóvember ´56: Hrapalleg mistök fá nafn

Næsta grein

14 milljónir fyrir bíl einræðisherrans Ceausescu

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

1971 Buick Riviera Boat Tail

1971 Buick Riviera Boat Tail

Höf: Pétur R. Pétursson
25/02/2025
0

1971 Buick Riviera Boat Tail er einstök og táknræn bandarísk bílahönnun sem kom fram á sjöunda áratugnum. Bíllinn var framleiddur...

1987 Ford Sierra RS500 Cosworth

1987 Ford Sierra RS500 Cosworth

Höf: Pétur R. Pétursson
01/02/2025
0

150.0000 pund er verðið sem eigandinn vill fá fyrir gripinn 27.000 mílur - aðeins þrír eigendur frá upphafi Númer 39...

Næsta grein
14 milljónir fyrir bíl einræðisherrans Ceausescu

14 milljónir fyrir bíl einræðisherrans Ceausescu

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.