Mánudagur, 19. maí, 2025 @ 22:09
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Aldinn höfðingi skipar heiðurssess á Ystafelli

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
15/03/2022
Flokkar: Fornbílar
Lestími: 5 mín.
292 3
0
141
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Á dögunum var lokið við að gera upp eina af elstu bifreiðum landsins, sem er í ökufæru ástandi, Ford Model T vörubíl af árgerð 1916, og í framhaldi var hann fluttur norður á Samgönguminjasafnið á Ystafelli þar sem hann mun sóma sér vel á meðal annarra kjörgripa úr bílasögu landsins.

Myndir Guðlaug Ágústa Halldórsdóttir og Halldór Andri Halldórsson.Ford T-módelið tilbúið til flutnings úr Fossvoginum norður að Ystafelli.

Saga bílsins

Páll Stefánsson kaupmaður og verkstæðiseigandi í Reykjavík kaupir bílinn af Boga Þórðarsyni á Lágafelli ca 1923-4. Páll þessi Stefánsson stofnaði fyrirtæki sitt árið 1908, sem síðar varð P. Stefánsson hf. Fyrirtækið var rekið um árabil að Hverfisgötu 103, og var með umboð fyrir ýmis vörumerki, þar á meðal GoodYear-hjólbarða og bíla auk þess að reka þar bílaverkstæði. Heildverslunin Hekla keypti síðan P. Stefánsson árið 1952 og sameinaði rekstur fyrirtækjanna á Hverfisgötunni.

(mynd Samgöngusafnið)Hér er Ford T Módel kominn norður að Ystafelli og verið að setja hann inn.
(mynd Samgöngusafnið)Hér er hann kominn inn í hlýjuna á Ystafelli og mun gleðja gesti þar í framtíðinni.
Samgöngusafnið að Ystafellli birti á sinni síðu þessa mynd af bílnum, sem er til hægri á myndinni, sem er sögð ver frá því um það bil 1934.

Verkstæðisbíllinn Bogi

Númerið á bílnum hjá Boga var KS-1 fyrir Kjósarsýslu en sýslurnar sameinast fljótlega í Gullbringu og Kjósarsýslu með stafina GK.

Að sögn Bjarna gamla Bjarnasonar sótti hann bílinn á þar sem hann stóð á Lágafelli í Mosfellssveit

Bíllinn var í niðurníðslu við fjóshauginn, Bjarni gangsetti bílinn og keyrði hann til Reykjavíkur.

Bíllinn var gerður upp á verkstæði Páls Stefánssonar, það var settur í hann nýr mótor með vélarnúmeri frá 1926. Kristinn vagnasmiður byggir yfir hann vörubílshús og pallur er settur á bílinn.

Bíllinn er skráður 21.6.1928 á númerið RE-509. Bíllinn gekk undir nafninu Bogi á verkstæðinu. Páll Stefánsson notar bílinn sem verkstæðis og snattbíl til ársins 1942.  Þann15. júní1930 er bíllinn skráður sem vörubíll.

1942 kaupir Páll Stefánsson nýjan Ford 1942 vörubíl og fer númerið af T fordinum á 42 Fordinn.

Nýir eigendur

Árið 1946 fær bíllinn nýtt númer R-4162 þegar Lárus  Lárusson á Hálogalandi kaupir T-Fordinn.

Notkun á bílnum var síðan hætt árið notkun 1954 vegna dekkjaleysis

Árið 1959 kaupir Halldór Jóhann Guðmundsson bankastarfsmaður og einn af stofnendum Fornbílaklúbbsins T-Fordinn af Lárusi, en þá stóð bíllinn í hlöðu sem átti að rífa við Hálogaland. Krakkar búnir að leika sér í bílnum og brjóta allar rúður.

Halldór tók bílinn í sundur, fór með hlutina úr honum í sandblástur hjá Saxa. Setti undirvagninn saman og málaði. Smíðaði á hann opið fólksbílsboddý. Hann fékk 2 dekk upp í Hvalfirði undan handvagni og pantaði frá Bretlandi 2 dekk og 5 slöngur. Hafði hann samband við Þóri Jónsson hjá Sveini Egilssyni og var hann hjálplegur viða að finna varahluti erlendis t.d. dekkin og slöngurnar.

Lánaður á sýningar

Bíllinn var lánaður Félagi Íslenskra bifreiðaeigenda á sýningar á 17. júní 1967 og og árið 1969, en þá var bíllinn hafður í gangi á sýningum, þar sem hann var í góðu lagi til aksturs.

Ný endurgerð

Í kringum 2000 var bíllinn sandblásinn aftur hjá Sigga í Bílasetrinu.

Um haustið 2015 hófst vinna við að endursmíða húsið sem Kristinn vagnasmiður byggði á bílinn. Það er gert af Birgi Árnasyni trésmið frá Vestmannaeyjum.

Eldri saga

Áður RE 230 13.6.1923 Eig. Víglundur Pálsson og Magnús Skúlason vélarnúmer 481106 árg. mars 1921.

Tilkynnt 28.4.1925 að bíllinn sé eign Boga Þórðarsonar frá 1924.

Tilkynnt 24.6.1926 að bíllinn hafi verið seldur Páli Stefánssyni.

Áður KS1 þegar Bogi Þórðarson á bílinn.

Bjarni gamli Bjarnason sagði Halldóri að bíllinn væri 1916 árgerð, áður var haldið að hann væri jafnvel 1919.

Fluttur á Samgönguminjasafnið að Ystafelli.

Halldór Jóhann Guðmundsson, fyrrum bankastafsmaður og einn af stofnendum Fornbílaklúbbsins, féll frá fyrr á þessu ári, en hann hafði haft bílinn í skúrnum heima hjá sér í Fossvoginum um árabil og unnið við að fullgera bílinn.

Eftir að hann féll frá tóku synir Halldórs, þeir Guðmundur Ólafur Halldórsson, Þórarinn St Halldórsson og Gísli Ágúst Halldórssonað sér að klára það litla sem eftir stóð og gera bílinn tilbúinn til varðveislu í framtíðinni.

Þegar því verki lauk á dögunum ákvað fjölskylda Halldórs Jóhanns, þau Lára Margrét Gísladóttir eiginkona Halldórs og börnin, þau Guðmundur Ólafur, Guðlaug Ágústa, Þórarinn St, Halldór Andri og Gísli, að bíllinn fengi framtíðaraðsetur á Samgöngusafninu að Ystafelli og þangað er hann nú kominn og mun gleðja gesti þar.

Sjá frétt frá Samgöngusafninu:

Fyrri grein

Man einhver eftir Fordson?

Næsta grein

Grillin eru að breytast

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

1971 Buick Riviera Boat Tail

1971 Buick Riviera Boat Tail

Höf: Pétur R. Pétursson
25/02/2025
0

1971 Buick Riviera Boat Tail er einstök og táknræn bandarísk bílahönnun sem kom fram á sjöunda áratugnum. Bíllinn var framleiddur...

1987 Ford Sierra RS500 Cosworth

1987 Ford Sierra RS500 Cosworth

Höf: Pétur R. Pétursson
01/02/2025
0

150.0000 pund er verðið sem eigandinn vill fá fyrir gripinn 27.000 mílur - aðeins þrír eigendur frá upphafi Númer 39...

Næsta grein
Er bóklega bílprófið alltof létt?

Er bóklega bílprófið alltof létt?

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

BYD Sealion 7 – fágaður lúxus og kraftmikið tæknibúnt

19/05/2025
Bílaheimurinn

Þjónustudagur Toyota

16/05/2025
Bílasýningar

Vígalegur 35″ Defender og fjallahjólhýsi á vorsýningu Land Rover á laugardag

16/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.