Þriðjudagur, 19. ágúst, 2025 @ 15:52
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

1969 Chevrolet Nova SS

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
10/12/2021
Flokkar: Fornbílar
Lestími: 7 mín.
286 9
0
141
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Chevrolet Nova SS

Chevrolet Nova var vinsæll bíll á sjöunda og áttunda áratugnum. Líkt og margir amerískir bílar var hann hannaður og settur í framleiðslu án mikils tilkostnaðar og í talsvert miklum flýti. Bíllinn kom á markað 1962 og var þá kallaður Chevy II. Dýrasta gerðin fékk nafnið Chevrolet Nova.

Novan kom í kjölfarið á misheppnuðum Corvair, bíl sem var með vélina aftur í og var til sífelldra vandræða.

Sá var settur á markað til höfuðs VW Bjöllu (sem er næsta óskiljanlegt) og gríðarvinsælum Ford Falcon.

Chevy II

Chevy II eða Nova 400 var boðinn í tveggja og fjögurra dyra útgáfum með skotti og sem skutbíll, tveggja dyra kúpubakur og blæjari. Chevy II kom upphaflega með fjögurra strokka 120 hestafla vél á meðan Novan fékk 3.2 lítra sex sílindra línuvél.

SS merki um afl

Það var síðan um 1963 sem Chevrolet kynnti SS pakkann Nova í blæjuútgáfunni og kúpubaknum. Þá kynnti Chevrolet V8, 4.6 lítra vél sem gaf um 195 hestöfl og síðar vél sem gaf 220 hestöfl.

Chevrolet kynnti á sama tíma nýja vél sem kölluð var „Turbo-Thrift”, sex strokka vél sem gaf 155 hestöfl (hún var ekki einu sinni tengd túrbínu).

Þrátt fyrir alla kostina tók salan dýfu hjá GM á Chevrolet. Minni sala kom þó aðallega til vegna samkeppni við hinn meðalstóra Chevelle.

Aftur dró úr sölu Novunnar vegna samkeppni við bíla innan GM. Þeir töpuðu semsagt fyrir sjálfum sér í samkeppninni. 1965 komu þeir með nýjar V8 vélar sem voru 250 og 300 hestafla, 5.4 lítra buddur.

Vandræðagripurinn Corvair fékk dramatíska uppfærslu og  sama ár hélt Chevy II áfram að tapa fyrir Ford Falcon.

Það er síðan ekki fyrr en 1968 að Novan kemur með því lagi sem kallað hefur verið fastback. Bíllinn var boðinn í tveggja og fjögurra dyra útgáfum, kúpan og blæjan fengu að fjúka. Nú hét bíllinn Nova í öllum gerðum og fór að gera það gott.

Allt frá sleða upp í kagga

Vélarúrval Novunnar varð nokkuð fjölbreytt við þessar breytingar. 90 hestafla, fjögurra strokka, 2.5 lítra vél var sú minnsta. Tvær línusexur, 230 kúbik og 250 kúbik voru í boði. Tvær nýjar V8 vélar voru einnig í boði, 200 hestafla 307 kúbika, 5 lítra og 295 hestfla 350 kúbika, 5.7 lítra.

1968 Nova SS fékk síðan 295 hestafla 350 kúbika vélina sem gerði bílinn að alvöru kagga.

Novan átti miklum vinsældum að fagna fram eftir áttunda áratugnum en fór síðan að dala eins og margir amerískir bílar þess tíma.

Olíukreppan í algleymingi og salan dróst saman. Það var síðan 1974 sem GM hættir með Nova SS og meira að segja síðasta framleiðsluárið var settur í hann mótor sem gaf einungis um 100 hestöfl.

Þó var hægt að fá bílinn sérpantaðan með V8 vél síðasta framleiðsluárið.

Snubbóttur endir

Ég man eftir að faðir minn ætlaði að festa kaup á Novu árið 1977. Þá hét bíllinn Chevrolet Concourse og þótti afar flottur. Hjá Sambandinu var hann seldur í tveggja og fjögurra dyra útfærslum – með 6 eða 8 strokka vélum.

Councoursinn sem var í raun bara Nova hélt velli til ársins 1978 og var þá bíllinn, eins og flestir þekkja hann, dottinn uppfyrir.

GM hætti með hann og ætlaði að sigra heiminn með framleiðslu framhjóladrifinna bíla og kölluðu þá Chevrolet Citation.

Það magnaða er að GM samdi síðan við Toyota um framleiðslu Corolla undir nafninu Nova árið 1985. Þannig var nú það.

Bíllinn á myndunum hér er til sölu hjá RK motors og kostar 179.900 dollara sem er ásett verð. Það er um 23.6 millur.

6.2 lítra LS3/480, sérsmíðuð vél, 495 hestöfl

GM rafkerfi, tölvubúnaður og bensíndæla

Tannstangarstýri með hjálparafli (aflstýri).

6-gíra beinskipting með vökvakúplingu

Ford 9-tommu afturöxull með posi-traction mismunadrifi

Nýtísku loftkæling

Detroit Speed power rack-and-pinion steering

Wilwood 4-wheel power disc bremsur

Detroit Speed hydroformed fjöðrun að framan

Detroit Speed QUADRALink fjöðrun að aftan

Sérsmíðuð leðurinnrétting

Nýtísku hljómtæki með blátannarbúnaði

Garnet Red með svörtum víniltopp

18-tommu American Racing Rally felgur

Fyrri grein

Hátt mega sáttir sitja í Bayon

Næsta grein

BMW M 1000 RR frá Lego

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Algjör veisla fyrir rúntara

Höf: Pétur R. Pétursson
12/07/2025
0

Við tókum Guðfinn Eiríksson, stjórnarmann í Bílaklúbbnum Krúser, tali eftir þáttöku hans á Västerås Summermeet sem fram fór fyrir skömmu...

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Höf: Pétur R. Pétursson
29/06/2025
0

Þessi Nova hefur farið í gegnum algera „Frame Off“ endurbyggingu þar sem engu hefur verið til sparað. Bíllinn er sprautaður...

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

Næsta grein
BMW M 1000 RR frá Lego

BMW M 1000 RR frá Lego

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

Volkswagen ID.Buzz GTX – fortíðin mætir nútímanum

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr rafknúinn Nissan Micra

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

05/08/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.