Föstudagur, 27. júní, 2025 @ 4:29
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Hvernig bíll værir þú?

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
22/01/2023
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 6 mín.
272 14
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Hvernig bíll værir þú?

Ég var að reynsluaka bíl um daginn og datt þá allt í einu í hug að líkja honum við manneskju. Mér datt í hug nunna. Þetta var semsagt nokkuð einfaldur bíll, með gott orðspor, vinsæll án þess að að bera það utan á sér, klikkar lítið ef hann fær gott viðhald, frekar döll og með lítil karaktereinkenni. Jú, þetta var nefnilega Toyota.

Þessi CHR er ekkert eins og nunna – en það er eitthvað við Toyota sem minnir á þær.

Hefur þú einhverntímann pælt í því hvernig bíll þú værir? Fyrsta sem mér datt í hug er að ég væri Honda Civic. Sportlegur, snöggur og endingargóður. Það eru til Honda Civic sem eru orðnir eldgamlir en ennþá þrælsprækir.

Þá datt mér í hug að taka nokkra nafntogaða einstaklinga og líkja þeim við bíltegundir.

Ekki að hann hafi komið fyrst upp í hugann en Kristján Jóhannsson stórsöngvari er glæsilegur náungi með toppsöngrödd. Hann leynir á sér, hnyttinn og gerir grín að sjálfum sér en með alvöru undirtóni. Það sem meira er að hann ber sorgir sínar ekki á torg og giggin hans eru rándýr. Þetta á allt við um Landrover Discovery finnst mér. Já, hann Kristján Jóhannsson er soldið svona eins og Discovery held ég.

Discovery er myndarlegur bíll og vinsæll að auki. Hann getur hins vegar verið skeinuhættur og dýr í rekstri ef þannig liggur við.

Egill Ólafsson sé ég bara fyrir mér í hjörð Toyota Corolla bíla þar sem hann rekur þær á hús með orðunum – „Ég vil þín njóta, Toyota”. Svo er spurning hvaða Toyota bíl Ólafur Darri velur sér. Land Cruiser kæmi ekki á óvart, Black edition kannski?

Ný rödd sama boddý. Hér er kominn sjálfur Ólafur Darri í líki  Land Cruiser, Black edition.
Sjáið þið Egil Ólafs fyrir ykkur í miðjum hópnum og kallar „Ég vil þín njóta Toyota”.

Svo er það herra Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti lýðveldisins. Röddin, fasið og hártoppurinn minnir helst á gullitaðan Volvo 262 árgerð 1978.

Hér beinlínis stendur „Herra Ólafur Ragnar Grímsson”. Maður heyrir meira að segja röddina í þeim gamla þegar maður lítur á bílinn.

Þeir hefðu örugglega skemmt sér vel saman hann og David Bowie en hann á svartan svoleiðis.

Hvaða bíl finnst ykkur Katrín Jakbos forstætisráðherra líkjast? Fyrst dettur manni í hug Toyota Yaris en hún klikkar aldrei, hægt að aka henni endalaust og meira segja án mikils viðhalds. Furðuleg ending á svona litlu verkfæri. Helsta einkenni er þó hátt endursöluverð en það endurspeglar mjög vel gengi Katrínar í kosningum undanfarin kjörtímabíl – alltaf dettur stelpan inná þing.

Katrín er oft sportleg í útliti. Hún líka er ótrúlega þrautseig og heppin í stjórnmálum.

Ekki dettur mér í hug að líkja honum Sigmundi Davíð við nokkurn þýskan bíl, þaðan af ekki ítalskan og alls ekki sovéskan – nema þá kannski helst Volga.

Volgan var gríðarlega sterkbyggður bíll, oftast mjög dökkar að lit og hægt að bjóða þeim allan andskotann án þess að þær svo mikið sem bognuðu. Hins vegar þurfti hún talsvert viðhald og eigandinn sá hana kannski ekki í nokkrar vikur á meðan hún var í onduleringu (yfirhalningu) á verkstæði.

Volgan er kannski ekki mikið á götunum hér á landi – en örugglega slatti af henni austur í Rússlandi – þar er hún nefnilega metin að verðleikum.

Traustur, endingargóður, grófur, vinalegur en þarf sitt viðhald. Hér er sennilega kominn formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Hvaða bíll skyldi Dagur B. Eggertsson vera? Alveg pottþétt bensínbíll, bensínhákur, eyðsluseggur.

Glæsilegur bíll, mikil þægindi, lofar hins vegar meiru en hann getur staðið við. Hrikalega eyðslufrekur. Þessi bíll er Dagur B. Eggertsson.

Gæti verið Ford Expedition með V8 sem notaður væri í leiguakstur. Gæti aldrei borgað sig

Maður hefur heyrt marga tala um að Mick Jagger sé þessi náungi sem er fallega ljótur. Alveg ótrúlegt úthaldið sem þessi foli hefur. Ef hann væri bíll myndi ég ætla að hann væri framleiddur í breskri bílaverksmiðju en búið væri að taka hann í gegn mörgum sinnum á líftímanum.

Mér dettur þá helst í hug Rolls Royce, breytist lítið en reynir að halda í við tískuna.

Ferskara lúkk en sama byggingarlag.

Um daginn kom fram í fréttum að Geir Haarde hefði alls ekki átt að taka skellinn fyrir hrunið og lenda í Landsdómi. Hvað um það.

Ef þið horfið í andlitið á Geir sjáið þið pottþétt grillið á japanskri bíltegund. Já, einmitt – Toyota Avensis, fyrstu kynslóðar. Ekki satt?

Geir Haarde, sami munnsvipur!

Að lokum skulum við kíkja á verkalýðsforingjann hana Sólveigu Önnu Jónsdóttir.

Hún er hörð stelpan. Vílar ekki fyrir sér verkföll og blammeringar. En hvaða bíl skyldi hún líkjast? Fiat Multipla? Ótrúlega sérstakt yfirbragð en gott með gott inn- og útstig.

Laglegur bíll ef þannig er horft á hann.

Látum þetta gott heita í bili. Kannski einn í viðbót. Bjarni Benediktsson hugsar vel um sig og sína og passar að farið sé eftir lögum og reglu.

Hann þótti liðtækur í boltanum í gamla daga en þá sögðu menn að hann valtaði auðveldlega yfir andstæðinginn með smá tækli. Bjarni líkist því kannski frekar vinnuvél en bifreið. Kannski líkist Bjarni helst valtara.

Þetta tæki er af Caterpillar gerð og endist líklega um aldur og ævi fái það rétt viðhald.
Fyrri grein

Nýr Mercedes EQA fólksbíll í vetrarprófunum

Næsta grein

Bílasýningin í München 2023 staðfest með áherslu á akstur í þéttbýli

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
25/06/2025
0

Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins...

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Höf: Jóhannes Reykdal
22/06/2025
0

Land Rover Defender Trophy Edition mun líklega finna heimili á bílastæðinu við knattspyrnuvöllinn, en hann gæti líka gert það í...

Næsta grein
Bílasýningin í München 2023 staðfest með áherslu á akstur í þéttbýli

Bílasýningin í München 2023 staðfest með áherslu á akstur í þéttbýli

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025
Bílaframleiðsla

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

23/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.