Hleðslustríð á Twitter: Tesla vs. Mach-e

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Maður nokkur í Hollandi var kampakátur þegar hann gat hlaðið Mustang Mach-e rafbílinn sinn í hraðhleðslustöð Tesla í dag. Hann setti mynd af bílnum á hleðslustöðinni inn á Twitter og skrifaði: „Þetta virkar! Er að hlaða Ford Mach-e á hraðhleðslustöð Tesla í Naarden.“… og drullan sem hann hefur fengið yfir sig frá Tesla eigendum í kjölfarið!

Maður minn! Fólkið segir honum að láta hleðslustöðvarnar „þeirra“ í friði og að hann sé „fyrir öllum“, „taki allt of mikið pláss“ og „blokkeri göturnar“ og ég veit ekki hvað og hvað.

„Þetta er ekki sniðugt. Við fjárfestum í þessu, ekki þú!“ skrifar einn ofurréttlátur.

En bíðum nú hæg?

Fólk er fljótt að trompast og skrifa ljótt á netið. Rafbílarígurinn, þ.e. „minn er betri en þinn“ minnir stundum á ofsatrú þar sem fólk lætur hluti út úr sér án þess að hugsa. Það er blindað af sannfæringu sem byggð er á tilfinningum en ekki endilega staðreyndum.

Rétt eins og félagi minn hann Helgi skrifaði um í þessari grein hér um „sanntrúaða bílafólkið“:

„Við erum ekki að tala um almenna bíladellu hér, alls ekki. Við erum að tala um eitthvað sem nálgast trúarbrögð. Í sumum tilfellum gæti maður ímyndað sér að fólkið sem er verst haldið af þessum kvilla sé að ræða baráttu hins góða við hið illa þegar það predikar yfir þér um átrúnaðinn sinn. Stundum myndast einskonar trúarsöfnuðir þegar „trúbræðurnir“ koma saman. „Fagnaðarerindinu“ er dreift út um allt og alltaf og hæðst að og gert lítið úr öllum þeim sem hafa ekki sömu trú.“

„Mér verður óglatt af að sjá þetta,“ skrifar einn við færslu mannsins. Færslu sem átti að vera saklaus „jibbí“færsla en varð að styrjaldarfærslu.

Ef við lítum á hvaða breyting varð á hraðhleðslustöðvum Tesla í Hollandi í dag, 1. nóvember þá kemur eftirfarandi í ljós: Tilraunaverkefni hófst í dag á vegum Tesla, sem gerir þeim sem eiga aðrar gerðir rafbíla mögulegt að hlaða bílana sína á hraðhleðslustöðvum Tesla.  

Bingó!

Ef þetta er ekki enn ein áminningin um það að hugsa áður en skrifað er á samfélagsmiðla þá veit ég ekki hvað.

Svipaðar greinar