Bílaland hefur starfsemi á nýju sölusvæði við Hestháls

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Bílaland hefur starfsemi á nýju sölusvæði við Hestháls

Bílaland, sölufyrirtæki BL með notaða bíla, flutti um helgina starfsstöð sína á nýja lóð við Hestháls 15 í Reykjavík og tekur söluskrifstofan til starfa þar í nýju húsnæði í dag.

Lóðin er í heild um 23 þúsund fermetrar að stærð og er hún sérhönnuð með fleiri en eitt bílasölufyrirtæki með umfangsmikla starfsemi í huga.

Skipulag lóðarinnar var hannað af arkitektum Arkís, þar sem boðið er upp á rúmgott og malbikað útisvæði fyrir alls um 800 bíla í stæði, sérhannaða lýsingu til að sýna og skoða bíla, vöktun öryggisfyrirtækja og fleira.

Á athafnalóð Bílalands við Hestháls 15, skammt austan Jaguar Land Rover, eru nú liðlega um tvö hundruð notaðir bílar til sölu.

Svipaðar greinar