Mercedes-Benz á Íslandi frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan GLC laugardaginn 30. maí í sýningarsal Mercedes-Benz að Krókhálsi 11 og hjá Öskju í Reykjanesbæ að Njarðarbraut 11.
Bíllinn skilar allt að 715 kílómetra drægni samkvæmt WLTP og nýtir nýtt 800 volta hleðslukerfi sem styttir hleðslutíma verulega. Þá býður GLC einnig upp á allt að 2.400 kg dráttargetu.
„Nýr GLC segir mjög mikið um hvert Mercedes-Benz er að stefna í dag. Bíllinn sameinar langa drægni, nýja tækni og þau þægindi sem fólk vill hafa í daglegu lífi, bæði á einfaldan og mjög yfirvegaðan hátt,“
segir Ágúst Hallvarðsson, Sölustjóri Mercedes-Benz á Íslandi.

GLC kemur með nýja MB.OS stýrikerfinu frá Mercedes-Benz þar sem gervigreind er nýtt til að gera aksturinn snjallari og persónulegri. Með Digital Extras appinu tengist ökumaðurinn bílnum í gegnum snjallsíma og getur meðal annars fylgst með hleðslu, forstillt hitastig og nálgast upplýsingar um bílinn í rauntíma.
Meðal staðalbúnaðar eru meðal annars:
MBUX snjallkerfi með raddstýringu
360° myndavél
Íslenskt leiðsögukerfi
Glerþak með SKY CONTROL
Rafdrifnar sætastillingar með minni
Háþróuð aksturs- og öryggiskerfi
Nýr GLC verður frumsýndur á Íslandi laugardaginn 30. maí frá kl. 12–16 í sýningarsal Mercedes-Benz að Krókhálsi 11 og hjá Öskju í Reykjanesbæ að Njarðarbraut 11. Gestum gefst þar tækifæri til að skoða bílinn í fyrsta sinn og kynna sér helstu tæknilausnir og búnað.
Mercedes-Benz fagnar jafnframt 140 árum af nýsköpun á árinu og markar nýr GLC mikilvægt skref í áframhaldandi þróun vörumerkisins.
Forsala á nýjum Mercedes-Benz GLC er hafin hjá Öskju og verð byrjar frá 12.390.000 kr.
(fréttatilkynning frá Öskju)




