Nýr væntanlegur Leapmotor B03 verður rúmgóður keppinautur bíla eins og Renault 5

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Kínverski ódýri smábíllinn mun leggja áherslu á rými og tækni þegar hann kemur á markað snemma árs 2027.

Ein nýjasta viðbótin á íslenska rafbílamarkaðnum er Leapmotor hjá Ísband í Mosfellsbænum og samvæmt vefsíðu AutoExpress á Englandi er næsti alveg nýi Leapmotor sem kemur til Evrópu er B03, rafknúinn smábíll, sem sést hér á myndinni að ofan.

Hann mun keppa við Renault 5 og væntanlegan ID. Polo frá Volkswagen, en hugmyndafræðilega líkist útlit B03-bílsins Honda Jazz. Hann er tiltölulega hár (1560 mm á hæð) og hefur langt, 2.605 mm hjólhaf, sem ásamt háum aftursætum ætti að skapa mikið fótarými.

Þetta er Leapmotor B03X – lítill sportjeppi sem er væntanlegur á markað næsta haust. (mynd: Leapmotor)

B03 er örlítið styttri og lægri útgáfa af B03X, smásportjeppa Leapmotor sem áætlað er að komi á markað haustið 2026. Hann missir plasthlífar X sportjeppans og er á minni felgum í Kína (16 tommu hönnun samanborið við 18 tommu álfelgur X í Evrópu), en hönnunin og uppbyggingin upp að afturbitanum virðist vera eins.

Nýr Leapmotor B03 – séð að aftan

Leapmotor hefur enn ekki staðfest stærð litíum-járnfosfat rafhlöðunnar í B03-seríunni, en í Kína er hægt að velja á milli 94 og 121 hestafla mótora. Búist er við að smábílar VW-samsteypunnar – ID. Polo og Cupra Raval – verði með meiri kraft: Raval er markaðssettur sem sportlegur hatchback, með afl frá um 120 hestöflum upp í 222 hestöfl.

Tianshu Xin, forstjóri Leapmotor International, sagði við Auto Express að búast mætti við að nýi hlaðbakurinn, sem kínverska tækniráðuneytið hefur lekið myndum af, komi á bílasýninguna í Brussel í janúar á næsta ári. „Við höfum annan mögulegan bíl í B-flokknum,“ sagði hann. „Gerðarheitið sem við erum að hugsa um er B03. Þetta er ekki sportjeppi svo þetta er ekki X, þetta verður hlaðbakur (hatchback).“

Xin útilokaði að B03 fengi drægnilengjandi blendingadrif frá Leapmotor: þetta er frátekið fyrir stærri bíla í C-flokki og eldri, eins og B05 hatchback (keppinautur VW Golf) og B10 sportjeppann. Báðir eru fáanlegir sem eingöngu rafbílar, án þess að nota brunahreyfil til að auka drægni þeirra.

B03 er 4,2 metra langur – nær ID.3 frá VW en ID. Polo – sem ætti að gefa honum forskot hvað varðar rými. Tækni sem nefnd er í kínverska lekanum felur í sér umhverfismyndavélar og LiDAR skynjara til að knýja aðstoðarkerfi ökumanns. Búist er við að B03 komi á Bretland vorið 2027.

(Frétt á vef AutoExpress og fleiri vefsíðum)

Svipaðar greinar