Er nýr bíll ef til vill versta fjárfesting sem þú getur farið í?

222
DEILINGAR
2k
SMELLIR

Við segjum þetta stundum í hálfkæringi: „Ég fjárfesti í nýjum bíl.“ En ef maður stoppar aðeins og horfir á tölurnar, þá er þetta eiginlega rangt orðalag. Bíll er sjaldnast fjárfesting. Hann er þjónusta sem þú kaupir, þægindi sem þú greiðir fyrir og stundum einfaldlega nauðsyn. En fjárfesting? Yfirleitt aldrei.

Rúmlega tveggja ára ID.5 GTX

Ég rakst nýlega á dæmi sem setur þetta í skýrt samhengi. Volkswagen ID.5 GTX, keyptur nýr í desember 2023 á um 8,3 milljónir króna. Staðgreitt, engir vextir, engin fjármögnun.

Bíllinn var vel með farinn, ekkert óeðlilegt slit og aksturinn rúmlega 38 þúsund kílómetrar á 26 mánuðum — sem er nokkuð eðlileg notkun á fjölskyldubíl.

Brimborg er með nýjan Polestar á tilboði núna: Nýr Polestar 2 LRDM Pilot lite er á 7.660.000 kr. og verður að teljast bara nokkuð gott verð. VW ID.4 er á um 8.370.000 kr. – sama verð og fyrir tveimur árum. Gallinn er bara sá að gamli bíllinn (26 mánaða) hefur lækkað um næstum 50% á meðan.

Langar í nýjan bíl

Svo kom þessi klassíska hugmynd sem margir kannast við: kannski tími til að skipta? Manni er drekkt í auglýsingum, að maður verði að eiga þennan bílinn eða hinn.

Eigandi fór í bílapælingar, skoðaði nýja bíla, rafbíla, stærri bíla, minni bíla. En þegar uppítökuverðin fóru að berast varð myndin skýr. Eitt umboð vildi borga 4,25 milljónir fyrir bílinn, annað fór upp í 4,7 milljónir. Það var besta boðið.

Sársaukafullt uppítökuverð

Þarna hafði bíllinn í raun lækkað um 3,6 milljónir eða allt að 4 milljónum á rétt rúmum tveimur árum. Það jafngildir um 138 þúsund krónum á mánuði ef miðað er við betra boðið.

Og þá erum við bara að tala um verðfallið sjálft. Ekki tryggingar, ekki dekk, ekki þjónustu, ekki rafmagn og alls ekki vaxtatap af peningunum sem bundnir voru í bílnum.

Ísband er með toppverð á nýjum og vel búnum Leapmotor C10 en hann er á 5.990.000 kr.

Margir myndu þá eflaust segja:  „Já en verð á bílum hefur hækkað svo mikið.“ Það er vissulega rétt að bílar á Íslandi hafa tekið töluverðum verðbreytingum síðustu ár.

Hagstofa Íslands sýnir reglulega sveiflur í verði bifreiða, og breytingar á sköttum og styrkjum hafa haft bein áhrif á markaðinn. Þeir sem vilja kafa dýpra geta skoðað verðlagsupplýsingar Hagstofunnar hér: https://www.hagstofa.is/talnaefni/efnahagur/verdlag/

Svo hafa ný gjöld eins og kílómetragjald bæst við myndina, sem breytir rekstrarumhverfi bíla almennt: https://island.is/kilometragjald

En það sem fólk gleymir oft er að hækkun á nýjum bíl þýðir ekki að þinn bíll haldist betur í verði. Markaðurinn hugsar ekki þannig. Hann horfir á framboð, eftirspurn, ábyrgð, tækniþróun og einfaldlega hvað fólk er tilbúið að borga í dag — ekki hvað þú borgaðir í gær.

Dýr lán

Ef þessi ID.5 hefði verið keyptur á láni væri dæmið enn grimmara. Með hefðbundnu bílláni hefði vaxtakostnaður líklega bætt 1–2 milljónum við reikninginn yfir lánstímann. Þá væri raunverulegur mánaðarlegur kostnaður fyrstu árin líklega nær 180–200 þúsund krónum. Og þá er bíllinn enn að lækka í verði á meðan þú borgar vextina.

Þetta er ástæðan fyrir því að nýr bíll á láni er yfirleitt dýrasta leiðin til að hafa bíl. Það er ekki skoðun — það er einföld stærðfræði.

En samt kaupum við nýja bíla. Af hverju? Vegna þess að bíll er ekki bara excel-skjal. Hann er tími, frelsi, þægindi og stundum öryggi. Hann gerir daglegt líf einfaldara. Og það er alveg lögmætt að borga fyrir það.

Það sem hins vegar er oft minna skynsamlegt er að skipta reglulega um nýjan bíl og taka fyrsta verðfallið aftur og aftur. Sá sem kaupir tveggja til fjögurra ára gamlan bíl fær oft nánast sama notagildi á miklu hagstæðari kostnaði. Verðfallið er hægara, áhættan minni og peningurinn vinnur betur.

Það er bara svo gaman að eignast nýjan bíl

Kannski er þess vegna klókasta kosturinn í stöðunni ekki að sleppa bílnum heldur að hugsa aðeins öðruvísi um hann. Að líta á hann sem þjónustu fremur en eign. Að kaupa hann aðeins eldri. Halda honum aðeins lengur. Og hætta að tala um bíl sem fjárfestingu — því hann er það nánast aldrei.

Bíll hækkar sjaldan í verði.

En frelsið sem hann gefur getur samt verið þess virði.

Spurningin er bara hvort það sé þess virði fyrir þig?

Svipaðar greinar