Polestar er að gera stórar endurbætur á flaggskipsjeppa sínum fyrir árið 2026. Uppfærður Polestar 3 fær hraðari hleðslu, meira afl og mikla aukningu í tölvugetu.

Stærsta uppfærslan er nýtt 800 volta rafkerfi sem gerir Polestar 3 kleift að hlaða allt að 350 kW. Það þýðir að 10–80% hleðsla tekur nú aðeins 22 mínútur – meira en 25% hraðar en áður. Nýja kerfið bætir einnig skilvirkni um allt að 6% miðað við WLTP-prófunina.
Tveir nýir rafhlöðuvalkostir frá CATL verða fáanlegir: 92 kWh pakki fyrir Single mótor útgáfu með afturdrifi og 106 kWh pakki fyrir Dual mótor og Performance gerðir. Ásamt hraðari hleðslu og aukinni skilvirkni gera þessar uppfærslur Polestar 3 enn ferðavænni.
Allar útgáfur af 2026 Polestar 3 fá nýjan innanhúss-þróaðan, samstilltan afturmótor með föstum seglum ásamt sjáflstæðum frammótor. Performance-gerðin skilar nú allt að 500 kW (671 hestafli).
Til að hámarka skilvirkni er hægt að aftengja frammótorinn ef hans er ekki þörf, á meðan uppsetning afturmótorsins skerpir meðhöndlun. Polestar uppfærði einnig veltistöngina og stýrishugbúnaðinn.
Polestar 3 fær einnig næstu kynslóðar kjarnatölvu. Gömlu Xavier einingunni hefur verið skipt út fyrir NVIDIA DRIVE AGX Orin örgjörva, sem eykur vinnslugetu úr 30 TOPS í 254 TOPS – meira en áttföld aukning. Þetta stökk veitir hraðari og snjallari stjórnun öryggiskerfa, afköst rafhlöðunnar og skynjaragagna.
Það sem aðgreinir Polestar á markaðnum er að þessi vélbúnaðaruppfærsla einnig boðin sem ókeypis uppfærsla fyrir alla núverandi Polestar 3 eigendur frá og með byrjun árs 2026.
Fyrir árið 2026 hefur línan verið einfölduð í þrjár útfærslur: Rear motor, Dual motor og Performance. Performance gerðin kemur með staðlaðri dýnamískri loftfjöðrun og áberandi gylltum öryggisbeltum, en Dual mótor og afturmótors útgáfurnar fá líka sínar útfærslur.

Polestar hefur einnig hagrætt valkostum sínum með nýjum pakkauppsetningum, þar á meðal kælingu og hita í aftursætum, hjólum og rúðuþurrkum, auk Prime pakka sem sameinar Pilot, Plus og Climate. Frábært Bowers & Wilkins hljóðkerfi með dýnamískri hljóðdeyfingu er fáanlegt sem sjálfstæður valkostur eða sem hluti af Plus pakkanum.
Hönnunarbreytingar fela í sér nýjan Storm lit og uppfærða hurðargrafík. Að innan verður staðalbúnaður Polestar 3 með sjálfbæru Bio-Attributed MicroTech áklæði og álklæðningum úr endurunnu hráefni.
Samkvæmt upplýsingum frá Gísla Jóni Bjarnasyni, sölustjóra Volvo hjá Brimborg mun nýi Polestar 3 koma til Íslands á næsta ári – á svipuðum tíma og á aðra markaði innan Evrópu.
Byggt á grein á Torque report