Fimmtudagur, 8. maí, 2025 @ 22:06
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

YES OF CORSA

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
08/02/2024
Flokkar: Bílasýningar, Fréttatilkynning
Lestími: 8 mín.
280 9
0
138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Brimborg frumsýnir nýjan Opel Corsa Electric 8.–17. febrúar.

Eru það stór tíðindi? YES OF CORSA

Nýr Opel Corsa Electric verður frumsýndur hjá Brimborg, Reykjavík dagana 8.–17. febrúar. Opel Corsa Electric sameinar framúrskarandi hönnun, einstaka tækni, rafmagnaða orku og akstursupplifun sem kallar fram ljómandi bros. Þessi nýja útgáfa af bílnum hefur vakið mikla athygli erlendis og þegar unnið Autonis hönnunarverðlaunin frá Auto Motor und Sport fyrir bestu nýju hönnunina í sínum stærðarflokki.

  • Djarfur og stílhreinn: Meðal annars glæsilegur Opel Vizor framendi og nýtt útlit að aftan.
  • Notendavænn og tæknilegur: Nýtt upplýsinga- og afþreyingarkerfi með allt að 10” litasnertiskjá.
  • Öruggari akstur: Ný IntelliLux® Matrix LED aðalljós og fjölbreytt ökumannsaðstoð.
  • Nýr rafmótor og aukin drægni: 115 kW/156 hestöfl og nú með allt að 405 kílómetra drægni skv. WLTP.

Það má með sanni segja að ný hönnun Opel Corsa Electric gleðji augað. Þar á meðal er hinn nýi einkennandi Opel Vizor framendi með nýja Opel merkinu fyrir miðju, en það var uppfært á síðasta ári til að endurspegla betur stefnu bílamerkisins í átt að rafvæddri framtíð. Ný tækni gerir aksturinn bæði afslappaðri og skemmtilegri, m.a. með nýju upplýsinga- og afþreyingarkerfi með allt að 10” litasnertiskjá. Þessi nýjasta útgáfa af metsölubílnum Corsa státar af hátækni undir vélarhlífinni og kemur nú með aflmeiri rafhlöðu sem gefur allt að 405 kílómetra drægni samkvæmt WLTP staðli.

Djarfur og stílhreinn með Opel Vizor framenda

Þýsk nákvæmni niður í minnstu smáatriði og fullkomin hlutföll, skila djörfu og stílhreinu útliti í nýjum Opel Corsa Electric. Hönnuðir Opel  hafa endurskapað Corsa  í nútímalegri og flottari mynd. Opel Vizor framendinn, með hinu einkennandi nýja Opel merki  ásamt svörtu „skyggni“ sem prýðir framhlið Corsa og sameinar grillið, LED framljósin og Opel merkið hnökralaust í eina heild.

Hliðarnar á  Corsa heilla einnig með einkennandi línum og persónuleika. Gluggapósturinn að aftan gerir það að verkum að svart þakið, sem er fáanlegt í GS útgáfu, virðist fljóta fyrir ofan ökutækið.

Nýr grafíkgrár litur er nú einnig fáanlegur í fyrsta skipti og gefur bílnum spennandi og nútímalegt yfirbragð.

Notendavænn og tæknilegur

Þökk sé fjölmörgum nýjum eiginleikum státar Corsa Electric af mínímalísku og notendavænu innra rými. Nýtt áklæði og nýtt stýri leggja sitt m.a. sitt að mörkum en hápunkturinn er hið nýja upplýsinga- og afþreyingarkerfi með allt að 10“ skjá.

Skjáirnir eru skýrari og auðveldara er að nálgast allar mikilvægustu upplýsingarnar.

Snjallsímar geta nú einnig tengst afþreyingarkerfi ökutækisins þráðlaust með Apple CarPlay og Android Auto.

Öruggari akstur með ökumannsaðstoð

Opel Corsa Electric er fáanlegur með IntelliLux® Matrix LED framljósum af bestu gerð og sjálfvirka háuljósaaðstoð sem lækkar ljósin ef bíll nálgast og eykur þannig öryggi við aksturinn.

Háþróuð ökumannsaðstoð Opel Corsa Electric gerir aksturinn öruggari, auðveldari og skemmtilegri.

Veglínuskynjun lætur þig vita ef þú ferð yfir veglínu, hraðastillir með hraðatakmarkara heldur þér á réttum hraða, umferðaskiltaaðstoð sem les umferðarskilti og sýnir upplýsingar í mælaborði um hraðatakmarkanir.

Opel Corsa er einnig búinn snjallöryggishemlun sem gerir ökumanni viðvart ef árekstur er líklegur og virkjar hemlun ef ekkert er aðhafst. Blindpunktsaðvörun lætur vita með blikkandi ljósi í ytri speglum þegar ökutæki eru innan blindpunktasvæðis þíns og eykur öryggi.

Nýr rafmótor: Aukin drægni og öflugri rafhlaða

Nýr Corsa Electric tekur útblásturslaus ferðalög án málamiðlana nú upp á næsta þrep með meira afli og aukinni drægni. Corsa Electric er fáanlegur með tveimur rafhlöðustærðum.

Annars vegar 50 kWh drifrafhlöðu með öflugum rafmótor sem skilar 100 kW/136 hestöflum og drægni allt að 361 kílómetra og hins vegar 51 kWh drifrafhlöðu með nýjum  rafmótor sem skilar 115 kW /156 hestöflum og allt að 405 kílómetra drægni samkvæmt WLTP staðlinum.

Opel Corsa Electric býður upp á framúrskarandi drægni, öfluga hraðhleðslu, enga losun við akstur, einstaka hröðun sem einkennir rafbíla og akstursupplifun sem kallar fram ljómandi bros.

Rafhlaðan í Corsa Electric er snögg að hlaða og í hraðhleðslu nær rafhlaðan allt að 80% hleðslu frá aðeins 27 mínútum (frá 20-80% prósent).

Fjarstýrð forhitun eykur þægindin og tryggir heitan bíl þegar hentar

Opel Corsa Electric er með forhitun ýmist í appi eða í skjá sem tryggir ávallt heitan bíl og losar notandann við að skafa á köldum vetrardögum. Hægt er að tímastilla forhitun á einfaldan og þægilegan hátt.

Fjarstýrð virkni gerir einnig kleift að fjarstýra forhitun í MyOpel® appinu úr síma.

Einnig er einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyOpel® appinu ásamt því að vera með yfirsýn um bílinn þ.á.m. stöðu á drægni, hleðslustöðu, þjónustuyfirlit og panta tíma á þjónustuverkstæði.

YES OF CORSA!

Léttleiki og skemmtileg framsetning í markaðssetningu á nýrri uppfærslu Opel Corsa Electric, með slagorðinu YES OF CORSA, hefur víða vakið athygli í auglýsingaheiminum víða erlendis.

Herferðin er alþjóðleg og er spurningum um bílinn varpað fram og ætíð svarað á ensku með slagorðinu YES OF CORSA og með því lögð áhersla á þá stefnu bílamerkisins að vera frammúrskarandi á sviði rafvæðingar.

Ýmiskonar skemmtilegar uppákomur hafa skapast í kringum herferðina og má nefna sem dæmi brúðkaup í Þýskalandi þar sem brúðhjónin strengdu heitin með slagorðinu YES OF CORSA.

Hægt að skoða bíla á lager í Vefsýningarsal Brimborgar

Í Vefsýningarsal Brimborgar er að finna Opel Corsa Electric rafbíla sem eru komnir til landsins og geta kaupendur skoðað glæsilega, nýjan Opel Corsa Electric þar og valið draumabílinn.

Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Einnig stendur til boða að fá Opel Corsa Electric í langtímaleigu þar sem nánast allt er innifalið nema rafmagn. Upplýsingar um  langtímaleiguverð í Vefsýningarsal Brimborgar. Smelltu hér til að skoða Opel Corsa Electric.

Þýsk gæði Opel staðfest með 7 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu

Þýsk gæði Opel bíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda.

Sérkjör í hraðhleðslu til viðskiptavina

Opel á Íslandi og Brimborg bjóða viðskiptavinum sínum sérlega hagstæð kjör á hleðslustöðvum og uppsetningu þeirra ásamt sérkjörum í hraðhleðsluneti Brimborgar Bílorku. Söluráðgjafar Opel veita allar upplýsingar um kjör til viðskiptavina.

Nýr Opel Corsa Electric verður frumsýndur 8.-17. febrúar í Brimborg Reykjavík. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða á staðnum og eins verður í boði ráðgjöf varðandi hleðslu rafbíla og uppsetningu hleðslustöðva.

Fyrri grein

Nýr Ford Puma lofar góðu!

Næsta grein

Ný kynslóð Honda CR-V

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Volkswagen vakti mikla athygli í Kína

Volkswagen vakti mikla athygli í Kína

Höf: Jóhannes Reykdal
02/05/2025
0

Volkswagen leggur mikið kapp á að vera áberandi fyrir kínverska bílakaupendur. Á bílasýningunni í Sjanghæ sýndi framleiðandinn þrjá nýja hugmyndabíla....

Bílasýningin í Sjanghæ opnar með tolla Trumps og öryggi í aðalhlutverki

Bílasýningin í Sjanghæ opnar með tolla Trumps og öryggi í aðalhlutverki

Höf: Jóhannes Reykdal
23/04/2025
0

SHANGHAI - Reuters News - Helstu árlegar bílasýningar Kína eru orðnar sýningargluggi fyrir uppgang sífellt ódýrari rafbíla sem afkasta betur...

Polestar tekur þátt í HönnunarMars

Polestar tekur þátt í HönnunarMars

Höf: Jóhannes Reykdal
09/04/2025
0

Það verður mikið um að vera á HönnunarMars hjá Polestar. Á HönnunarMars sameinast ólíkar greinar hönnunar og arkitektúrs í kraftmikilli...

Atvinnubílavika ÍSBAND 7.-11. apríl

Atvinnubílavika ÍSBAND 7.-11. apríl

Höf: Jóhannes Reykdal
07/04/2025
0

Ert þú í kraftmiklum rekstri? Atvinnubílavika ÍSBAND er í fullum gangi. ÍSBAND umboðsaðili Fiat og RAM á Íslandi efnir til...

Næsta grein
Ný kynslóð Honda CR-V

Ný kynslóð Honda CR-V

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýr Jeep Compass stækkar og bætir við valkostum í drifrásum

07/05/2025
Álit

Peugeot E-5008 GT – sjö sæta bíll með nægu plássi!

07/05/2025
Bílaframleiðsla

Volkswagen vakti mikla athygli í Kína

02/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.