VW ID3 selst nánast eins vel og Golf

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

VW ID3 selst nánast eins vel og Golf

ID3 rafbíllinn frá Volkswagen mun líklega ná söluaukningu eftir að vörumerkið hóf að taka við pöntunum á nýrri grunngerð bílsins.

Hingað til hefur VW einbeitt sér að hærri endanum á markaðnum með ID3 Pro sem byrjar á 34.995 evrum (um 5,45 milljónum ISK) og getur ekið allt að 426 km á einni hleðslu vegna stóru rafhlöðunnar sem er í bílnum.

Nú geta evrópskir viðskiptavinir pantað grunngerð rafbílsins sem kallast ID3 Pure á verði um 30.000 evrur (um 4,6 milljónum ISK).

Gert er ráð fyrir að ID3 Pure sé með 330 km akstursvið á rafhlöðunni samkvæmt WLTP prófunarferlinu.

ID3 er fyrsta gerðin úr ID-fjölskyldu rafbíla VW sem aðeins notar rafhlöður.

ID3 lauk árinu 2020 með mikilli sölu eftir að frumsýningu hans var seinkað vegna galla í hugbúnaði. VW hóf afhendingu ID3 í Evrópu í september en án lykilaðgerða eins og App Connect. Vandamálin voru lagfærð í desember.

ID3 var nálægt því að ná VW Golf í desember. Golf var söluhæsti bíll Evrópu í mánuðinum með 29.949 selda bíla, en næsti keppinautur hans var ID3 og seldist hann í 26.987 eintökum, samkvæmt söluskýrslu Automotive News Europe og JATO Dynamics í desember.

Söluhæstu 10 gerðirnar í Evrópu í Desember 2020

Sótt á markaðinn ofan frá

Jafnvel þó bílaframleiðendur eins og Tesla og VW hafi auglýst fjöldamarkaðsbíla sína með lágu verði, komu þeir samt með dýrari útgáfur á markaðinn í byrjun.

Í nóvember gaf Herbert Diess, forstjóri VW Group, vísbendingu um hvers vegna sú var raunin.

Fyrirtæki hans treysti á að bílar fari frá toppi með líkön eins og Porsche Taycan og Audi e-tron til að ná markmiðum sínum um losun koltvísýrings í flotasölu í Evrópu. Að fara af stað með rafknúin ökutæki í flokki smábíla og minni bíla til að draga úr losun koltvísýrings væri óarðbær, sagði Diess.

VW sagðist hafa fengið 68.800 pantanir á ID3 í fyrra, þar af hafa 56.500 einingar verið afhentar viðskiptavinum frá því í september hófst.

Þetta setti ID3 framar Audi e-tron með 47.300 eintök afhent og VW e-Golf með 41.300, sem gerir ID3 að söluhæsta rafbíl hópsins árið 2020.

ID3 er aðeins upphafið að sókn rafknúinna ökutækja frá VW. Söluaðilar í Þýskalandi og Hollandi hafa þegar fengið fyrstu bílana af ID4 crossover. Alldrifsútgáfa, sem kallast ID4 GTX, á að fara í sölu eftir nokkra mánuði, áður en ID5 crossover með coupé-útliti kemur fyrir árslok.

(Automotive News Europe)

Svipaðar greinar