VW dregur úr fjárfestingum og styttir framleiðslutímann á nýja Golf

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

VW dregur úr fjárfestingum og styttir framleiðslutímann á nýja Golf

Nýr grunnur bíla hjá Volkswagen, MQB-grunnplatan, hjálpaði bifreiðaframleiðandanum að halda niðri framleiðslukostnaði og stytta verulega framleiðslutímann á nýja Golf sem frumsýndur var í vikunni og sem mun koma á markað í Evrópu í desember.

Þessi nýi grunnur, sem mun renna stoðum undir 50 milljónir ökutækja frá vörumerkjum VW Group í nýju, annarri kynslóðinni, hjálpaði bifreiðaframleiðandanum að halda niðri kostnaði, sagði framleiðslustjóri VW vörumerkisins, Andreas Tostmann í viðtali við Automotive News Europe.

Nýr grunnur hjálpaði Volkswagen að halda niðri framleiðslukostnaði og stytta verulega framleiðslutímann á nýja Golf sen frumsýndur var í vikunni og sem mun koma á markað í Evrópu í desember.

„Með enn meiri stöðlun í vélbúnaði og ferlum tókst okkur að draga úr fjárfestingum um meira en helming á móti því sem var fyrir“, sagði Tostmann við fréttamenn. „Okkar stefna er að skila sér,“ sagði hann.

Með núverandi Golf var skipt yfir frá fyrri PQ35 palli sem aðeins var grunnur undir minni bíla.

Þar sem nýi bíllinn notaði sömu tæki og tól að hluta sagði Tostmann að VW þyrfti aðeins að skipta um 20 prósent af búnaðinum sem þarf til að smíða yfirbygginguna, að mestu tæki til að gera hönnunarsértæka hluta eins og hliðar yfirbyggingarinnar.

Framleiddur í Wolfsburg

Framleiðsla verður einnig að mestu núna í Wolfsburg í Þýskalandi, sem hefur framleiðslugetuá um 450.000 einingar í öllum gerðum Golf.

Stjórnendur höfðu ákveðið í ágúst í fyrra að flytja framleiðslu úr tveimur öðrum VW-verksmiðjum, í Zwickau í Þýskalandi og Puebla í Mexíkó með lokum á framleiðslu sjöundu kynslóðarinnar.

Styttri framleiðslutími

Framleiðslutími gæti einnig minnkað um 4 prósent, að sögn Tostmann, þrátt fyrir að búið væri að bæta verulega við flækjustigið í framleiðslunni, þar með talið 100 metrar af raflögnum og 31 fleiri rafmagnstengingar í viðbót.

Tostmann áætlaði að VW hafi í heildina eytt upphæð sem nemur hundruðum milljóna evra til að framleiða áttunda kynslóð Golf í Wolfsburg.

2700 mismunandi hlutir

Um 8.400 starfsmenn munu smíða nýjasta Golf í verksmiðjunni í Volfsburg úr u.þ.b. 2.700 einstökum hlutum.

Um 8.400 starfsmenn munu smíða nýjasta Golfinn í verksmiðjunni í Volfsburg úr um það bil. 2.700 einstökum hlutum.

Meira en 35 milljónir Golf hafa verið smíðaðir síðan fyrsta gerðin byrjaði árið 1974, sem sannaði gríðarlegan árangur og setti viðmið í þessari stærð bíla Evrópu.

Sala á Golf í Evrópu lækkaði um 14 prósent fyrstu átta mánuðina og nam 281.871 bílum að sögn markaðsfræðinga JATO Dynamics. Næsti keppandi Golfs í magni var Skoda Octavia, sem seldist í 156.422 eintökum, og þar á eftir kom síðan Ford Focus, í þriðja sæti með 155.686 bíla.

Svipaðar greinar