Það er alveg ómögulegt að hafa ekki árin 1940 til 1949 með í upptalningunni á vinsælustu bílunum sem birt var um helgina. „Vinsælasti bíllinn árið sem þú fæddist“ hét greinin og náði yfir árin 1950 -2005. Miðast upptalningin við bílamarkaðinn vestanhafs. Bætum merkum áratug við!
1940 Graham „Spirit of Motion“

Einnig þekktur undir nafninu Graham „Sharknose“ („hákarlstrýni“ eða „hákarlstrjóna“). Trjónubílarnir hættu í framleiðslu eftir þetta ár en þeir þóttu grimmir að sjá og meira að segja kyrrstæðir virtust þeir tjah, árásargjarnir, ef svo má að orði komast!

1941 Buick Century
%20Large.jpeg)
Hann naut vinsælda fyrir árið 1941 en þegar hann kom með enn öflugri vél varð hann enn vinsælli. Átta sílindra Fireball vélin skilaði 165 hestöflum og það sem á íslensku nefnist fjölhólfablöndungur (e. compound carburetion) gerði bílinn að einum þeim öflugasta sem völ var á. Hann var víst ljúfur og þýður á 130 km/klst og fór auðveldlega upp í 160 km/klst, sem þótti virkilega gott á þeim tíma.

1942 Lincoln Continental

Þetta var síðasta framleiðsluárið á Continental fyrir framleiðslustöðvun vegna stríðsins en þá þurfti að takmarka notkun á málmum o.s.frv. Þessi bíll var með stóru 292 V12 vélinni frá Lincoln en hún skilaði 130 hestöflum.

1943-1945: Willys MB/CJ-2A
%2C_Baujahr_1944_c%20Large.jpeg)
Heimsstyrjöldin stóð í algleymingi og bílaframleiðsla var alfarið í biðstöðu. Það er að segja hefðbundin fólksbílaframleiðsla. Herjeppinn, Willys MB, trillaði fram á sjónarsviðið.

Eftir stríð var skipt yfir í framleiðslu á CJ2A sem var jeppi fyrir almenna borgara. Sá varð afar vinsæll og má segja að Willys CJ sé ættfaðir hinna fjórhjóladrifnu Jeep sem við þekkjum fram til dagsins í dag.

1946 Chrysler Town and Country Convertible

Þessir bílar voru með alvöru viðarklæðningu á hliðinni (askur og mahóní). Árið eftir var farið að skipta viðnum út fyrir gerviefni sem var raunverulegt að sjá. Síðustu alvöru „timbruðu“ bílarnir komu 1950.

1947 Chevrolet Fleetmaster

Chevrolet Fleetmaster hafði lengi haldið óbreyttu útliti. Hönnunin minnti á eitthvað frá fjórða áratugnum. En fólki virtist nokk sama um það og bíllinn seldist betur en aðrir. Svo ólmir voru Bandaríkjamenn í að eignast nýjan bíl að gamaldags hönnun breytti engu það árið.
684.145 bílar af gerðinni Chevrolet Fleetmaster seldust árið 1947.
1948 Ford F-Series

Ford F kom fyrst á markað árið 1948. Var honum tekið með trompi árið sem hann kom fyrst og allar götur síðan.
1949 Mercury 8

Straumlínulagaður fákurinn vakti strax mikla lukku og þótti mikil bót frá kantaðri hönnun fyrri árgerðar. Þessi var með „Flathead“ V8 og seldust þrisvar sinnum fleiri bílar af árgerðinni en árið á undan. Í dag er þessi gerð vinsæl í „hot rod“ eins og myndin hér fyrir neðan minnir á.

Myndir: Wikipedia
Skyldar greinar:
Vinsælasti bíllinn árið sem þú fæddist
Herjeppinn verður til
Saga jeppans – annar og þriðji hluti
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein