Tólf bílar keppa um titilinn bíll ársins 2021

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Tólf bílar keppa um titilinn bíll ársins 2021

Nú liggur fyrir hvaða bílar keppa um titilinn “bíll ársins 2021 á Íslandi”, en Bandalag Íslenskra Bílablaðamanna (BÍBB) hefur tilkynnt hvaða bílar komust í úrslit. Það var fimm manna forvalsnefnd sem velur úrslitabílana.

Keppt er til verðlauna í fjórum flokkum en stigahæsti bíllinn ár hvert hlýtur Stálstýrið til varðveislu.

En bílarnir tólf eru þessir:

Minni fólksbílar: Opel Corsa E, Toyota Yaris, Honda E

Stærri fólksbílar: VW ID-3, Peugeot e-2008, Opel Mokka

Minni jepplingar/jeppar: MG EHS PHEV, Skoda Enyaq EV, VW ID-4

Stærri jepplingar/jeppar: Ford Explorer, Kia Sorento, LR Defender

Bílarnir sem komust í úrslit verða svo prófaðir af tólf manna dómnefnd frá miðlum eins og bilablogg.is, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, FÍB blaðinu, Viðskiptablaðinu og visir.is.

Tilkynnt verður um úrslit í sérstöku hófi BÍBB í húsakynnum Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 mánudaginn 7. júní næstkomandi. Einnig munum við hér á bílablogg fjalla nánar um valið og úrslitin þegar að því kemur.

Svipaðar greinar