Þriðjudagur, 14. október, 2025 @ 14:04
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Þessir verða fornbílar á árinu

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
02/01/2020
Flokkar: Fornbílar
Lestími: 4 mín.
272 17
0
138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Árið er 1993 og Toyota kynnir nýja kynslóð Corolla, þá sjöndu í röðinni frá 1966.  

Þetta ár var Toyota söluhæsti bílinn á Íslandi með um 600 selda bíla eða um 20% af markaðnum.  Í öðru sæti var Mitsubishi frá Heklu og Nissan frá Ingvari Helgasyni.  Það sem einkennir bifreiðar frá árinu 1993 er að þeir verða fornbílar á þessu ári.

Sjöunda kynslóð Toyota var má segja byltingarkennd í sögu smábíla enda voru settar í hana nýjar vélar sem gáfu meira afl en áður og menguðu minna.  Þessi kynslóð var rúmgóð og fallega hönnuð og endingin alveg ótrúleg.  Enn má sjá bifreiðar þessarar kynslóðar keyra um vegi landsins.

Toyota Corolla árgerð 1993

Árið 1993 hafði Mazda kynnt þriðju kynslóð RX 7 bílsins árið áður.  

Hin sérstaka Wankel vél var undir húddinu á þessum RX 7 bíl sem og áður.  Um var að ræða vél með tveimur turbínum og þess tíma alveg hreint ótrúlega flókin græja.  Hægt var að fá bílinn frá 250 og upp í tæp 280 hestöfl með þremur vélargerðum, beinskiptan fimm gíra eða með fjögurra gíra sjálfskiptingu.  Spurning hvort einhver lumi á svona kerru í einhverju skúmaskoti hér á landi.

Mazda RX7 árgerð 1993

Saab kynnir 9000 gerðina í Aero útgáfu.  

Bíllinn fékkst í stallbaksútgáfu og hlaðbaksútgáfu og var í flokki stórra glæsivagna.  Saabinn hefur ávallt verið nokkuð sérstakur bíll og má nefna að svissinn á Saab var á alltaf á milli sætanna, nema í allra síðustu gerðunum.  9000 bílinn var framleiddur í Trollhattann í Svíþjóð á þessum árum og Björn Envall var aðalhönnuður en naut aðstoðar ítalans Giorgetto Giugiaro.

Saab 9000 Aero árgerð 1993

Það er síðan alveg gullfallegur Mercedes sem nær 25 ára aldrinum  í ár.

Þetta er fyrsta kynslóð E Class, byggður á W124 gerðinni og gaman fyrir Benz áhugamenn að þessi bíll skuli nú vera að detta í fornbílagírinn.  E Class var framleiddur með öflugum bensínvélum, 6 og 8 cylindra fyrir USA markað en evrópubúarnir gátu fengið hann með háværri díselvél og gerðin sú kölluð E 250.

Mercedes E 220 árgerð 1993

Í gegnum tíðina hefur lögregla og sjúkralið notið góðs af tryggum og traustum Ford Econoline ásamt fjöldanum öllum af sendibílstjórum og húsbílaeigendum Nú er tækifærið fyrir laghenta að demba sér í Fornbílaklúbbinn með einn gamlan og góðan sjúkrabíl kannski.  Bílar þessir voru til fjölda útfærslna og meðal annars stuttir, langir og extra langir, fjórhjóladrifnir eða afturdrifnir.  Eitt áttu þeir sammkerkt – þetta voru trukkar.  Yfirleitt bensínbílar með V8 4,9-5,8 lítra rokk undir húddinu og dísel knúnir með 7,3 lítra V8 turbodísel vélum.

Einn af sjúkrabílum Rauða kross Íslands af Econoline gerð.

Á hverju ári verða bílagerðir að fornbílum þess árs.  Ein gerð sker sig úr hvað þetta varðar. Land Rover Defender en sá bíll kemur inn á hverju ári, nánast án þess að nokkur taki eftir því.  Bíllinn hefur eiginlega ekkert breyst í útliti frá upphafi og til dagsins í dag.  Sammerkt með bílum af þessari gerð er þó styrkur og stæðileiki. Þróun hefur aðallega snúið að vélum og enn í dag sækjast menn eftir Defender sem framtíðarbíl til breytinga. Nú þarf Landroverklúbburinn bara að taka upp heiðursútnefningar fyrir þá bíla sem ná 25 ára aldri á starfsárinu.

Land Rover Defender árgerð 1993

VW Golf árgerð 1993 var nokkuð huggulegur bíll.  

Við erum að tala um þriðju kynslóð VW Golf MK3 gerðina.  Þriðja kynslóði bílsins tók hvað mestum breytingum frá upphaflega boddíinu, línur urðu mýkri og lægra var undir hann.  Golfinn kemur þarna með nýja dísel vél með beinni innspítingu og túrbínu ásamt 2,8 lítra VR6 bensínvél.  Nú gæti farið að kætast í hestaflagrúppunni í Fornbílaklúbbnum.

VW Golf CL árgerð 1993

?

Næsta grein

Fiat Chrysler er að koma aftur með nafnið „airflow“

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Algjör veisla fyrir rúntara

Höf: Pétur R. Pétursson
12/07/2025
0

Við tókum Guðfinn Eiríksson, stjórnarmann í Bílaklúbbnum Krúser, tali eftir þáttöku hans á Västerås Summermeet sem fram fór fyrir skömmu...

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Höf: Pétur R. Pétursson
29/06/2025
0

Þessi Nova hefur farið í gegnum algera „Frame Off“ endurbyggingu þar sem engu hefur verið til sparað. Bíllinn er sprautaður...

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

Næsta grein
Fiat Chrysler er að koma aftur með nafnið „airflow“

Fiat Chrysler er að koma aftur með nafnið „airflow“

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

2026 Polestar 3 fær 800 volta hleðslu, meira afl og stórar tækniuppfærslur

14/10/2025
Bílaframleiðsla

Honda CR-V er 30 ára gamall

13/10/2025
Álit

Smart #5 – Nýr kafli í sögu Smart: hann er ekki lengur lítill

11/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.