Það stefnir í einvígi á milli Porsche og Tesla á Nürburgring kappakstursbrautinni í Þýskalandi

Í byrjun var bara brosað. Síðan breyttist þetta í að aðdáun. Nú er þetta að þróast í einvígi á milli tveggja öflugra nafna í bílaheiminum, Porsche og Tesla.
Vettvangur uppgjörsins: Nürburgring í Þýskalandi, kappakstursbrautin sem talin er sú mest ögrandi í heiminum. Hringurinn státar af 73 þröngum beygjum (Silverstone í Bretlandi hefur 18), breytingar í hæð og lengd sem nemur meira en 20 km sem hlykkjast um laufgaðan skóginn og hefur fengið gælunafnið Græna helvítið.
Porsche Taycan setti met fyrir mánuði
Það er hér sem nýi Taycan Turbo S, Porsche, setti met sem hraðskreiðasti fjögurra dyra rafbíll í síðasta mánuði og lauk hringnum á 7 mínútum og 42 sekúndum. En það er keppinautur sem situr þúsundir kílómetra í burtu í Kaliforníu: Elon Musk hjá Tesla. Musk, sem er þekkur fyrir að njóta góðrar baráttu, tók upp hanskann og hefur sent Model S í sveitina í Þýskalandi til að endurheimta álitið sem konungur rafmagnsfólksbílanna.
Fyrrum Formúluökumaður undir stýri Tesla
Keppni bílanna hefur allt sem svona barátta getur haft, þar við bætast straumar samfélagsmiðla sem hafa harða aðdáendur sitt hvoru megin við Atlantshafið og velta því fyrir sér hvor þessara tveggja bíla geti náð að losna við þessar mikilvægu auka sekúndur úr hringakstrinum. Síðan bættist við að fyrrum keppnismeistari Formúlu-1, Nico Rosberg, sem skellti tilboði inn á Twitter til að stýra Tesla, tilboð sem Musk samþykkti með glöðu geði.
Turbo eðe ekki turbo
Musk hefur lagt mikið undir í áskoruninni. Eftir að Porsche afhjúpaði Taycan Turbo og Turbo S sem fyrstu rafmagnsbíla sína stríddi Musk vörumerkinu fyrir „túrbó“ flokkunina vegna þess að túrbóforþjöppu er aðeins að finna í brunahreyfli. Í kjölfar upphaflegar skeytasendinga kom hann fram með mildari orð í síðari „tvítum“ og viðurkenndi að Taycan „virðist vera góður bíll“ og að Nürburgring-brautartíminn „sé flottur.“
Líka mikið í húfi hjá Porsche
Í raun er jafn mikið í húfi hjá Porsche sem hefur fylgst með því að Tesla breytir sér í sannkallaðan valkost fyrir viðskiptavini sem sækjast eftir afkastamiklum bíl en með rafmótor, opinn hlið sem bílaframleiðandinn í Stuttgart vonast nú til að vernda með Taycan.
Musk sendi frá sér þann 6. september að Model S myndi láta sjá sig á brautinni „í næstu viku.“ Reyndar hefur þegar sést að breytt Tesla Model S hefur verið prófuð á Nürburgring Nordschleife, samkvæmt bílablaðinu Car and Driver, sem virtist sýna bílinn á brautinni sem hluti af almennri akstursbraut sem er opin öðrum. Bíllinn virðist vera með stærri hjólskálar og stækkaða opnun að framan, líklega til að auka kælingu.
Ekki vitað hvenær reynt verður að bæta metið
Þegar þetta er skrifað þann 15. September er ekki nákvæmlega vitað hvenær Tesla-bíllinn gæti reynt að bæta met Taycan. Tesla hefur ekki svarað beiðni um umsögn um áform sín um Nürburgring.
„Tesla-Porsche keppnin gæti verið markaðssetning, en samt nokkuð sem hjálpar til við að vekja athygli á rafknúnum ökutækjum“, sagði Gene Munster, framkvæmdastjóri og langvarandi Tesla-aðdáandi hjá áhættufjármagnsfyrirtækinu Loup Ventures. Munster spáði því að Tesla myndi keppa með uppfærðri útgáfu af Model S við hringinn og að bíllinn myndi slá met Portsche í Taycan.
„Elon myndi ekki fara með bílinn á brautina ef þeir héldu ekki að þeir myndu vinna,“ sagði Munster í símaviðtali. „Hann er gríðarlega mikill keppnismaður og elskar að kljást við hefðbundna bílaframleiðendur. Það er áhugamál hans. Hann finnur fyrir sjálfstrausti“.
Model S með nýrri drifrás hefur sett met
Komið hefur fram í fjölmiðlum að þann 11. september sló Model S með nýrri „Plaid“ drifrás metið sem hraðskreiðasti fjögurra dyra fólksbíll í Laguna Seca, keppnisbraut nálægt Monterey í Kaliforníu.
Að komast hringinn undir 10 mínútum er metnaður allra þeirra sem koma á Nürburgring. Brautin er opin bæði atvinnumönnum og áhugamönnum og var fljótlegasti tíminn með götulöglegum sportbíl er 6 mínútur og 44 sekúndur, gerð í Porsche GT2 RS MR þann 25. október síðastliðinn, samkvæmt vefsíðu brautarinnar. Þetta er meðalhraði 183,5 km/klst á 20 kílómetra brautinni.
