Föstudagur, 10. október, 2025 @ 0:22
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Tesla stækkar Supercharger hraðhleðslunetið

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
15/02/2024
Flokkar: Bílaheimurinn, Fréttatilkynning
Lestími: 4 mín.
314 24
0
162
DEILINGAR
1.5k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Tesla stækkar Supercharger hraðhleðslunetið á Íslandi í samstarfi við N1

Tesla og N1 hafa undirritað rammasamning um að þróa og efla Supercharger hraðhleðslunet Tesla á þjónustustöðvum N1 um allt land.

Hlutverk Tesla er að flýta fyrir umskiptum heimsins yfir í nýtingu á sjálfbærri orku og með því að stækka Tesla Supercharger hraðhleðslunetið stefnum við að því að auka verulega aðgengi að hraðhleðslu fyrir flest alla rafbílaeigendur á Íslandi. 

Tesla rekur í dag 9 Supercharger hraðhleðslustöðvar með 43 hraðhleðslustæði á Íslandi og nær hraðhleðslunetið hringinn í kringum landið.

Með þessum samningi mun Supercharger hraðhleðslunetið stækka og verða yfir 20 stöðvar opnar öllum viðskiptavinum með yfir 170 hraðhleðslustæðum um land allt.  

Með þessari stækkun leggur Tesla sín lóð á vogarskálarnar til að enn fleiri eigi þess kost að velja rafbíl sem næsta farartæki enda verður rafhleðsla mun hraðari og aðgengilegri.

Tesla Supercharger hraðhleðslustöðvarnar hafa allt að 250 kwh hraða, sem þýðir enn styttri hleðslutíma þegar ferðast er um á rafbílum. Til dæmis þá getur Tesla Model 3 Long Range hlaðið allt að 282 km á 15 mínútum. 

Í dag eru hátt í 7.000 Tesla ökutæki skráð á Íslandi. Árið 2023 var Tesla stærsta bílmerkið á Íslandi og fjölskylduvæni jepplingurinn, Model Y, var mest selda bíltegundin sama ár.

Í dag starfrækir Tesla sölu- og þjónustumiðstöð á höfuðborgarsvæðinu og mun opna á Akureyri síðla árs 2024 eða snemma árs 2025. 

Tesla mun á næstu árum setja upp Supercharger hraðhleðslustöðvar á þjónustustöðvum N1 í Borgarnesi, Blönduósi, Egilsstöðum, Vík, Ísafirði, Kirkjubæjarklaustri, Hveragerði og Keflavík á landsbyggðinni, auk Hringbrautar og við Ártúnshöfða í Reykjavík.

Einnig verða settar upp fleiri hraðhleðslustöðvar þar sem Tesla er nú þegar, við Staðarskála á NV-landi og í Fossvogi á höfuðborgarsvæðinu. 

Tesla vill þakka N1 fyrir frábært samstarf við stækkun á  Supercharger hraðhleðslunetinu og við hlökkum til að halda áfram að stuðla að vexti Tesla á Íslandi með opnun fleiri Supercharger hraðhleðslustöðva. 

Aukaupplýsingar um rafhleðslu og Supercharger hraðhleðslunetið: 

  • Tesla rafbílar hafa allt að 629 km drægni (WLTP). Dagleg hleðsla á sér stað þar sem bílnum er lagt, aðallega heima eða við vinnustaði, og dekkar þannig helstu hleðsluþörf. 
  • Supercharger hraðhleðslunetið er gert fyrir langferðir og ferðalög og staðsetningarnar eru valdar á mikilvægum leiðum til að auðvelda viðskiptavinum að velja hagkvæma og skilvirka hleðslu. 
  • Viðskiptavinir geta fylgst með hleðslulotunni í gegnum Tesla-appið og fá sjálfkrafa tilkynningu þegar ökutækið hefur náð nægri hleðslu til að halda áfram ferðinni. 
  • Með því að nota sjálfvirka leiðsagnarbúnaðinn í Tesla ökutækinu mun bíllinn reikna út hversu mikla orku þarf til að komast örugglega á áfangastað og stinga upp á hleðslustoppum á leiðinni. Einnig gerir „On-Route Battery Warmup“ bílnum kleift að forstilla rafhlöðu ökutækisins sjálfkrafa í ákjósanlegasta hitastig fyrir hleðslutíma áður en þú kemur í Supercharger hraðhleðslustöð. Þetta getur sparað hleðslutíma um allt að 25%. 

Fyrri grein

JLR eignast í leiðandi nýsköpunarfyrirtæki

Næsta grein

Nýr Volvo P1800 Cyan GT er hin fullkomna sænska „restómod“

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

Höf: Jóhannes Reykdal
09/10/2025
0

Kia keppir við VW um forystu í markaðssetningu rafknúinna fólksflutningabíla SEÚL — Volkswagen ID Buzz, söluhæsti meðalstóri fólksflutningabíll Evrópu, mun...

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Höf: Pétur R. Pétursson
09/10/2025
0

Laugardaginn 11. október kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um land allt. Reykjavík, október...

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

Höf: Jóhannes Reykdal
08/10/2025
0

Eftir meira en áratug á markaðnum er Kia Soul að hverfa á braut. Kia hefur staðfest að framleiðslu Soul lýkur...

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

Höf: Pétur R. Pétursson
08/10/2025
0

FSD stenur fyrir „full self driving” Útgáfa 14.1 er stærsta FSD uppfærsla í eitt ár FSD 14.1 hefur einnig nokkrar...

Næsta grein
Nýr Volvo P1800 Cyan GT er hin fullkomna sænska „restómod“

Nýr Volvo P1800 Cyan GT er hin fullkomna sænska „restómod“

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

09/10/2025
Bílasýningar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

09/10/2025
Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.