Tesla Model S hlýtur 5 stjörnur í öryggiseinkunn hjá Euro NCAP
Nú á dögunum, einungis örfáum vikum áður en afhendingar hefjast á Model S, hlaut Model S 5 stjörnu öryggiseinkunn hjá Euro NCAP
Euro NCAP gerði prófanir á nýjustu útgáfu af Model S, í samræmi við nýjustu og ströngustu prófunarstaðlana frá 2020-2022, þar sem geta ökutækisins til að vernda fullorðna einstaklinga, börn og gangandi vegfarendur er í forgangi ásamt mat á hegðun til að forðast árekstra og aðra öryggisaðstoð.

Eftir þessar prófanir hlaut Model S 5 stjörnu öryggiseinkunn og hæstu heildareinkunn af öllum ökutækjum sem voru prófuð í sama flokki.

Model S stóð sig líka einstaklega vel í ítarlegri prófunum á öllum sviðum:
- 98% einkunn í öryggisaðstoð ökutækis.
- 91% einkunn í vernd fyrir börn.
- 94% einkunn í vernd fyrir fullorðna einstaklinga.
- Hæsta einkunn sem gefin er fyrir ákomu utanaðkomandi hlutar á ökutækið.
- Hæsta einkunn sem gefin er fyrir björgun bílsins eftir slys, og útkomu eftir að slys hefur átt sér stað.

Tesla Model 3 með 5 „grænar“ stjörnur
Einnig má geta þess að Model 3 hlaut 5-stjörnu græna NCAP einkunn í síðustu viku.
Í frétt frá Green-NCAP segir: Model 3 hefur hlotið 5 stjörnur með veginni heildarvísitölu 9,8/10 af Green NCAP, óháðu framtaki sem hjálpar neytendum að meta sjálfbærni ökutækja. Í greiningu sinni tekur Green NCAP til orkunýtni ökutækis, sem og losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengunarefna.
(fréttatilkynning frá TESLA)
Umræður um þessa grein