Þriðjudagur, 19. ágúst, 2025 @ 17:06
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Tesla kynnir hraðskreiðasta bílinn sinn, Model S Plaid

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
14/06/2021
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 3 mín.
276 8
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Tesla kynnir hraðskreiðasta bílinn sinn, Model S Plaid

  • Sportbíllinn er „hraðskreiðari en nokkur Porsche, öruggari en nokkur Volvo,“ segir Musk

Tesla var að kynna á markaði nýja öfluga útgáfu af Model S, með það að markmiði að endurvekja áhuga á næstum áratugs gömlum fólksbíl og verjast keppinautum eins og Porsche, Mercedes-Benz og Lucid Motors á lúxus rafbílamarkaðnum.

Tesla endurskilgreindi rafbíla árið 2012 þegar fyrirtækið setti hágæða Model S á markað með sléttri hönnun og löngu aksturssviði og forstjórinn Elon Musk sagði að nýja útgáfan, Model S Plaid, væri hönnuð til framtíðar þar sem bílar keyrðu sjálfir.

Model S Plaid býður upp á litla breytingu í útliti en hleðst hraðar á Tesla hraðhleðlsutöðvum, er með rúmbetra aftursæti og bætt afþreyingarkerfi.

„Þessi bíll malar“, sagði Musk á kynningarviðburði að kvöldi sem haldinn var í bandarísku verksmiðju Tesla í Fremont í Kaliforníu á fimmtudaginn. „Sjálfbærir orkubílar geta verið hraðskreiðustu bílarnir, verið öruggustu bílarnir, verða þeir sem vekja mesta athygli á allan hátt“, sagði hann.

Gerðin er „hraðskreiðari en nokkur Porsche, öruggari en nokkur Volvo,“ sagði Musk, klæddur svörtum leðurjakka, eftir að hann keyrði Model S Plaid niður braut og á sviðið.

Frumkynningin á Model S Plaid, sem þegar hefur verið sýndur á netinu, hefur orðið fyrir töfum og nokkrum deilum vegna væntanlegs okstýris sem svipar stýri í flugvél.

Musk hætti við annað afbrigði, Model S Plaid+, sem hefði verið með 33 prósentum meiri akstursdrægni en Model S Plaid og notaði háþróaða rafhlöðutækni, þekkt sem 4680 sellur.

Model S Plaid er með hröðun frá 0 til 97 km/klst. á 1,99 sekúndum og áætluð akstursdrægi er 628 km.

Þó að bíllinn bjóði litla breytingu í útliti, þá hleðst Plaid S hraðar á hreðhleðslustöðvum Tesla, er með rúmbetra aftursæti og endurbætt afþreyingarkerfi.

Musk sagði að skemmtunar- og afþreyingarkerfið væri svipað og í PlayStation5 en hljóðkerfið væri með svipaða upplifun og heimabíó.

„Ef þú hugsar um hvar framtíð bílsins er, oft í sjálfstýringu eða sjálfkeyrsluham, þá verður skemmtun sífellt mikilvægari,“ sagði Musk.

„Þú munt vilja horfa á kvikmyndir, spila leiki, nota internetið.“ sagði hann.

Þörf fyrir endurnýjun

Það hefur verið löngu tímabært að Model S, bíllinn sem var bylting hjá Tesla, fengi endurnýjun. Setningin „Plaid Mode“ („köflótt stilling“) er tilvísun í gamanmyndina Spaceballs frá 1987 með Mel Brooks í aðalhlutverki.

„Model S hefur ekki breyst mikið hvað varðar útlit síðastliðinn næstum áratug“, sagði Jessica Caldwell, framkvæmdastjóri hjá Edmunds bílaupplýsingaveitunni.

„Ég held að Tesla verði að bjóða neytendum eitthvað meira eins og nýja og skemmtilega hluti.“

„Model S Plaid er örugglega ætlað að hjálpa til við að draga úr flótta núverandi Tesla eigenda frá Tesla,“ sagði Ed Kim, hjá AutoPacific.

„Ég held að það sem við erum að sjá núna er að Tesla getur ekki lengur starfað í tómarúmi“.

Hann sagði að Model S Plaid væri gerð í litlu magni sem miðaði að því að sýna bílaframleiðandann og mynda spennu í kringum fólksbílinn, þar sem Tesla þyrfti að koma með nýjar gerðir, þar á meðal Cybertruck og Semi vörubílum til að stækka hóp viðskiptavina.

Tesla sendi frá sér aðeins 2.020 eintök af Model S/X á fyrsta ársfjórðungi, sem var minnkun frá 18.920 bílum á fyrri ársfjórðungi, sem var vegna hindrana af framleiðslutöfum. Musk sagði í apríl að framleiðsla á nýrri gerð S og X yrði „háð alþjóðlegum birgðakeðjuvandamálum.“

Musk sagði að Tesla myndi afhenda fyrstu 25 Model S Plaid ökutækin núna og myndi brátt afhenda nokkur hundruð á viku og 1.000 á viku á næsta ársfjórðung.

(Reuters – Automotive News Europe)

Fyrri grein

Jeep opnar opinberlega fyrstu nýju verksmiðjuna í Detroit í 30 ár

Næsta grein

Bílafloti Bandaríkjamanna eldist

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr rafknúinn Nissan Micra

Nýr rafknúinn Nissan Micra

Höf: Jóhannes Reykdal
18/08/2025
0

Nissan mun miða „glæsilegri“ rafknúinn Micra að kvenkyns kaupendum PARÍS — Nissan gaf teyminu sem var að hanna nýja rafknúna...

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

Höf: Jóhannes Reykdal
05/08/2025
0

Skuggmynd minnir okkur á að Skoda stefnir að því að sigra markaðinn fyrir rafknúna stationbíla Skoda hefur verið að framleiða...

Honda Civic hefur fengið nýtt útlit

Honda Civic hefur fengið nýtt útlit

Höf: Jóhannes Reykdal
04/08/2025
0

Með nýrri uppfærslu á Honda Civic er kynnt nýtt útlit fyrir 11. kynslóð gerðarinnar Nýi Prelude fra Honda kemur fram...

Honda N-ONE e – Lítill rafbíll með mikinn persónuleika

Honda N-ONE e – Lítill rafbíll með mikinn persónuleika

Höf: Jóhannes Reykdal
02/08/2025
0

Það er stundum gaman að fylgjast með hvernig „smábílamarkaðurinn“ í Japan þróast.   Peter Johnson hjá electrek-vefnum var að fjalla um...

Næsta grein
Bílafloti Bandaríkjamanna eldist

Bílafloti Bandaríkjamanna eldist

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

Volkswagen ID.Buzz GTX – fortíðin mætir nútímanum

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr rafknúinn Nissan Micra

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

05/08/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.