Sýning á klassískum farartækjum í Benissa á Spáni
Spánverjar halda mikið upp á gamla bíla og víða um Spán eru klúbbar áhugamanna um gamla bíla.

Einn slíkur, Vehicles Historics La Marina, í bænum Benissa, skammt norðan Benidorm hélt upp á 25 ára afmælið sitt sunnudaginn 26. janúar og efndi til sýningar á gömlum bílum í bænum. Bílunum var raðað meðfram götunum í bænum og þar kenndi ýmsa grasa, litlir og stórir, smábílar og stærri glæsivagnar.
Íslenskur bílaáhugamaður, Ingvar Gissurarson, er búsettur í nágrannabænum Jáeva. Hann brá sér til Benissa og myndaði marga af þeim bílum sem þarna voru til sýnis. Það eru eflaust margir bílaáhugamenn hér á landi sem þekkja Ingvar, sem bjó um árabil á Suðurnesjum og er þekkur fyrir áhuga sinn á Jaguar-bílum og mótorhjólum.
Ingvar leyfði okkur góðfúslega að birta þessar myndir, og vonum við að bílaáhugamenn finni jafnvel myndir af sínum uppáhaldsbílum í þessari myndasyrpu frá Benissa á Spáni.






























































































Umræður um þessa grein