Sýna nýjan sjö sæta Kia EV9 Earth á laugardag

140
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

  • Laugardaginn 16. mars sýnir Kia á Íslandi alrafmagnaðan sjö sæta Kia EV9 Earth kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13.

Fullkominn fyrir íslenskar aðstæður.

EV9 er með mikla drægni á rafmagni og hentar því sérlega vel fyrir ferðalög. Allir EV9 eru með V2L búnaðinn sem gerir honum kleift að gefa frá sér raforku, til dæmis til að halda hleðslu á hjólhýsi eða gefa öðrum rafbílum stuð!

Kia EV9 Earth er með allt að 522 km drægni og 2.500 kg dráttargetu ásamt því að vera fjórhjóladrifinn og með rými fyrir alla fjölskylduna.

Margverðlaunaður á heimsvísu.

EV9 rafjeppinn er með viðurkenningar á borð við Gullna Stýrið í flokknum „Fjölskyldubíll ársins“ og „Lúxusbíll ársins“ í Þýskalandi, sem undirstrikar magnaða fjölhæfni EV9.

EV9 er kominn í úrslit og tilnefndur sem bæði „Besti bíll ársins“ og „Rafmagsbíll ársins“ á World Car Awards 2024. Sigurvegarinn verður tilkynntur 27. mars nk.

Þá vann hann einnig „Women‘s Worldwide Car of the Year 2024“ á dögunum þar sem hann var valinn bestur af kvenkyns bílablaðamönnum frá 52 löndum.

Sýningin fer fram kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 á laugardaginn 16. mars.

Sjá nánar í þessu myndbandi:

(fréttatilkynning frá Öskju – Kia á Íslandi)

Svipaðar greinar